Namn:

Sæunn og Halldór Lágafelli

Mobilnummer:

8918091

Mejladress:

lagafelli@gmail.com

Födelsedag:

06.06.2001

Postadress:

Lágafelli 861 Hvolsvöllur Iceland

Alternativ hemsida:

www.lagafelli.is

Om:

Landbúnaður, sala heimaafurða og íbúðarleiga / ferðaþjónusta

Favoritperson:

mamma og pabbi

Favoritmaträtt:

steikt lifur

Mest minnesvärda ögonblick:

þegar við tókum við Lágafelli

Blogghistorik: 2010 N/A Blog|Month_12

25.12.2010 10:11

GLEÐILEG JÓL/MERRY CHRISTMAS

Kæru vinir/dearest friends

Við sendum ykkur, okkar bestu óskir um Gleðileg jól.
We send out our deapest wishes for Merry christmas.

Héðan er það að frétta að í gær:
Á meðan ég, Valberg og Bergrún sinntum um heimilið í allan gærdag - tókum til í HERBERGINU - og gerðum hreint og undirbjuggum í leið matinn. Þá bara voru Halldór, Sanna og Freysteinn úti að sinna um skepnurnar, það var gefið extra vel í fjárhúsin, fjósið og öllum hrossum - stóra stóðinu meira að segja 2 sinnum - og svo fæddist hér kálfur úr Þyrnirós - korter í 17.00 á Aðfangadagskvöldi. Við byrjuðum að undirbúa þessa hátíð í fyrra fallinu þetta árið - en snemma í DES. var ég ekki í neinu fagi í skólanum: og hóf þá jólaundirbúninginn af krafti - gekk frá og henti því sem maður endalaust óvart safnar. En í gær var sópað, skúrað og gengir frá öllu aukadóti, sem lá á glámbekk og meira að segja farið í HERBERGIÐ og það gert vist-hæft. En Herbergið á Lágafelli er það Herbergi sem enginn dvelur í í það og það skiptið og er fyllt af drasli, sem enginn veit hvað á að gera við þegar verið er að taka til/af því að það er betra að gera þetta seinna - Sérstaklega þegar vinnufólkið er í tiltekt og veit ekki hvað á að gera við hlutina - og svo geri ég nákæmlega ekki neitt - svo... þetta herbergi á, á köflum alveg svakalega erfitt - þ.e.a.s ég þegar ég loks ákveð að hella mér í það að taka til í því - Enda komst ég að því í gær, að eins og venjulega var verið að geyma = Umbúðir, hálf-tómar gosflöskur, krassblöð og fréttablöð, óhreina sokka, dót og drasl frá krökkunum og fleira skemmtilegt á þessa veru.  En hér er sem sagt búið að fara í gegnum þetta og ganga frá. Útkoman er hreint herbergi/2 fullir ruslapokar af rusli og fundur á drasli og dóti sem allir héldu að væri "forever gone and lost"!
And we have SANNA! She is here for christmas - helping and being delightfull too!
Og við erum með eina SÖNNU - sem ætlar að eyða með okkur jólunum - og vinna upp í veruna!

These are our news:
While I, Valberg and Bergrún attended to the home all yesterday - and even cleaned the ROOM - to do IT usable - and cooked all food served yesterday. Then Halldór, Sanna and Freysteinn were outside with our animals, they gave extra to the sheepstable, cowstable and all the horses - EVEN all horses in the big hered got hey two times - for there was so much left overs from the cowstable - and then Þyrnirós - desided this was a time to deliver - and she got a female calf born at quarter to five on the day before christmas.  Luckyly I started to prepair for chirstmas early this year, for in beginning of DES I had no class in school - so I began to prepair christmas with cleaning and baking - so the clean up yesterday was eacy.  But we had to clean all floor, put up the last christmas decouration, the christmastree - wich is extra big this year - and all extra things were put to their place, even the ROOM was made livable!!!  But the ROOM is the room at Lágafelli, were everthing we do not know what to do with is put in a box and the box put inside the ROOM for Sæunn to check it out later - ... mostly this is the work of my workers - and I thank them for it - but... when Sæunn goes - Because she often doesn´t go at the same day - finally to THE ROOM - this "later" work has gone to a nightmare - and... like I expected -...yesterday I found half empty bottles of coka cola, empty candy bags, half finished candy, paper - someone was writing on - both needed to find and not - newspapers from agent history - toys, dirty socks, underwear and futher more like this - but now all has been sorted and cleaned and put to their places - I got out of all this work; a clean room, 2 black bags of waste and things that we had been looking for and thought were gone.,..

Í gærmorgun var snjóstormur á Lágafelli, svo ég keyrði ekki út landeyja-kortin - ákvað að það væri mikilvægara fyrir mig að eyða tíma hér innandyra en að festa mig út af kortum heima hjá þeim sem voru örugglega líka á kafi að undirbúa jól - svo núna sé ég eftir því að hafa ekki tekið kortin með mér í Þorláksmessuskötuna - en.... mig langaði bara að keyra heim að bæjunum til að sjá jólaljósin á hverjum bæ og eyða svona "MOMENTUM" fyrir sjálfa mig - eins og sagt er - þar sem ég fer bara ein og geri e-h .. sem ég svo treysti mér ekki í - og ég verð bara að fara með kortin á milli jóla og nýárs í leiðangur og "vísitera" liðið!!!
Yesterday morning there was a snowstorm in Lágafelli, we went from brown fields to heavy much snowy fields in few hours - and I didn´t like to drive around with the christmascards for my naigbours - for I was affraid to get stuck in snow - and I regreated it all yesterday not to take out the cards during the Þorláksmessu-skata - festival in Gunnarshólmi - ... but I wanted to see the christmas decourations on the naigbourfarms to have such a MOMENTUM for myself - or so to speak - but were as I am not able to get stuck in snow anywere - I desided it is better I drive out these cards between christmas and new year - ... and then perhaps I will "visit" the people that are to get them - and have an extra joy out of the deliver!???

Ég undirbjó, á Þorláksmessu - matinn í dag - sem er hangikjöt/hryggur af lambi frá Lágafelli.
I made, on Þorláksmessa - the food for today - wich is hangikjöt/a back of a lamb from Lágafelli.
With it we serve today potatos - white souse and salat al a mamma -

Um miðjan dag, átum við Ris a la mandle - með hnetu í af því ég átti svo aldrei möndlur þegar til kom - En pakkaleikur var samt viðhafður að venju og í ár fékk Halldór Áki sjálfur möndluna! Og Möndlugjöfina!
Middle of the day, we ate  Ris a la mandle, with hasel nut in it instead of mandle for when I look there was no mandle in my house! but how ever we had a packet-game - and this year Halldór got the packet ... and the nut!!!

Ég bjó til í gær - með dyggri aðstoð Gunnars "gamla" - svínahamborgarahrygg. Sem ég hafði keypt í Bónus og var alltof stór í ALLA MÍNA POTTA. Svo Gunnar tók sig til og sagaði hann passlegann í pottinn.  Í made yesterday, with help of Gunnar "gamli" - a part of a back of a pig(light smoked) - that I had bought in Bónus - and was much to big for all my cooking pot. So Gunnar made it fit by sawing it in smaller unit and made it fit to the pot in the stowe.
We made it finished and served it yesterday - with brown potatos - salat and ate my homemade icecream after the meat meal!

Ég útbjó líka svona lamb á grænmetisbeði - eins og ég lærði síðastliðið vor í Matvinnsluskólanum - þar sem ég tók ferskan lambahrygg og setti undir hann sætar kartöflur, hráar, venjulegar kartöflur, hráar, lauka (3 sortir), gulrófur, hráar, gulrætur, hráar, papriku, sveppi og gráðost/piparost/sólþurrkaðurtómatarost - vatn undir allt - Pakkaði þessu í álpappír og setti í ofninn - og þessi máltíð á að vera til-og ready þegar allt hitt er ekki lengur "BEST 'A BORÐIÐ" - en er í raun tilbúið strax - svona smakk - máltíð ef e-h vilja grípa í annað og verður með öllu hinu og aðal - svo ég þurfi ekki að standa yfir pottunum alla hátíðina - Og NAMMM NAMM! Þetta er bomba!
(gleymdi að segja ykkur það að ég kryddaði með salt og pipar og HVÖNN) NAMM NAMMM!!!
I also made a frezh stake of a lamb, with a lot of vegstable - and cheese souse over it, if someone would rather have lamb - but the lamb is such a " have it ready" when we are to lazy to make dinner ready over christmas - stake, and will be on the menue - over christmas to fyll up the empty space, when there is no enough of this or that and someone likes to have something else.

Um miðjan dag í gær komu Valur bróðir og Kristján frændi, en þeir eru í mömmu húsum um jólin - færandi hendi með restina af jólastússinu fyrir þennan bæ - og Kristján bjó til þetta fína Kakó! -
Og Gunnar "gamli" kom um miðjan dag líka - til að hjálpa til - þó hann hafi nú verið alveg óundirbúinn undir það - hjálpaði til við hrossarekstur, skurð á kjöti og suðu á því - en hann fékk leyfi til að gista hér í gærnótt - af því hann á hund sem heitir TÓNÝ og hundurinn er ekki velkominn ´Stínu-hús´ um jólin - svo Gunnar skildi hann eftir hjá mér í pössun á meðan farið var í kvöldmat og pakkaveislu í Stínu-húsum - og kom svo og svaf hjá mér og fær alveg frábæra máltíð hér eftir augnablik! hehehehe - Ekkert nema gróði hjá gamla!!! :-) OG MÉR!!!
Middle og day yesterday Valur my brother and Kristján my cousin came here with the rest of the christmas in my house - ... and Kristján made us this great Kakó!
And Gunnar "gamli" came here also middle of day yesterday - to help - though he didn´t know it before he came - hehehe - he helped putting horses back to the paddoc, and helped putting my meat in the pot and then he got to stay over night - for he was on his way to a christams - invitation in Hvolsvöllur and ... for he has a dog TÓNÝ - then he had to stay somewere where he was allowed - ... and we both got a good deal out of this trade ME AND HIM - ... and soon we are going to eat .... so he will be happy!!! hehehehe

Eftir máltíð í gær, var farið inn í stofu - og ég hafði ekki undan að vera ritari - komst ekki í það að skrifa hver gaf hverjum hvað og hvað var í pökkunum - samt hafði ég varið ráðin til þess við matborðið - hehehe - Besta móment í gærkvöldi - var þegar Valberg stóð og taldi bitana ofan í pabba sinn og reif svo af honum diskinn = það er komið nóg - farðu inn í stofu! Karlinn minn stóð upp og teygði sig en fór svo inn á bað til að þvo sér um hendurnar og aumingja barnið - :-þ það lá við að hann tapaði sér!!! :-)  En svo fannst mér leikurinn vera orðinn of langur! Eftir allt stritið í gær þá var komið nóg af fyndni hjá mínum manni. Svo konan sem var orðin drulluþreytt - rak alla í sætin við tréið og hleypti krökkunum undir tréið -... og þaðan kom m.a.: endalaust margar bækur, CD, DVD, áskrift að Andrés Önd, Hnakkur, fatnaður, engill (frá engli til mömmu sinnar - sem veit að hún er að safna englum!), vöfflujárn, á allra rúm = merkt, bollastell/þægilegir bollar í réttri stærð, dót, klukka, ilmur, skrifborðsstóll, krókur (til að hengja e-h í) - og nammi
Endalaust mikið magn af öllu og allir sáttir - nema unglingurinn; greyið upplifir í ár - sama og ég, þegar ég varð skyndilega unglingur og dótapakkarnir hættu að streyma að - (í minni ætt er miðað við að gefa krökkum upp að fermingar aldri, eftir það fá þau bara pakka innan fjölskyldunnar - og ... þetta er viss höfnun - held ég en samt hluti af því að alast upp og þroskast!)
After dinner yesterday we went to the livingroom to open the packets, and I was hired a clerk to write down what all had for christmas - Before this happened - Valberg had been soooo stressed over the opening that the counted how much food his father was putting into his belly! hehehe
But then I even gave up - for we were all tired from working hard and then a game like this isn´t funny for a long time - so I rushed all to the living room and gave the kids a permission to open all the packets and - it was soo funny to see them - hehehe Almost opened all packets themselfs - even if they belonged to other people!!! hehehehe  From under the christmastree was; many books, CD, DVD, angle, cloths, one year of Andrés Önd/Donald DUCK - entering every week to the house in his paper - A saddle, for everyone on the bed/market to the owners - waffel iron, (becouse mine disapeared this summer) caffee cups, a chair, alarm, good smell, toys and and ....

 En stærsta gjöfin var samt kálfurinn sem fæddist rétt eftir miðnótt í gærkvöldi, úr uppáhalds kvígunni á bænum: Skrýtlu - en hún er dóttir Nínu og tvíburasystir Skoppu sem bar hér um daginn - því miður eignaðist gripurinn nautkálf en...dóttir mín sem var með Skoppu og Skrýtlu í bandi á hlaupum hér um öll hlöð fyrir 2 árum síðan er ALSÆL - veit ekki betri pakka!!!
But the biggest gift this christmas was the calf that got born just after midnight yesterday evening
from the young cow Skrýtla (first one) - wich is a dotter of Nína, and twin sister of Skoppa. -
How ever the calf had to be a bull, wich is bad!!! But my dotter had Skoppa and Skrýtla as her toys 2 years ago - they followed her every were and she even trained them in band like dogs and she is very happy about this arrangement - 2 calfs in one month from her own cows!!!

Við borðuðum svo ísinn rétt áður en við fórum að sofa, súkkulaði ís - al la mamma!!!
og fórum svo að sofa!!!
We ate our ice - just before we went to sleep - homemade ice a la mamma - wich chockolate cup
then we went to bed!!!

GLEÐILEG JÓL/MERRY CHRISTMAS!!!

18.12.2010 13:27

Það er svo óralangt síðan síðast.....

It has now gone way past time ....

Hér á Lágafelli er allt við það sama. Mikið að gera að venju. Kannski óvenju mikið því nú er bæði verið að hleypa til hrútum, og fyrsta kálfskvígurnar eru að byrja að bera.  Við erum heppin að því leiti að það hefur verið óskaplega góð tíð, og við höfum ekkert verið að gefa útigangi - nema bara rudda úr fjósinu - Almennar gjafir í útigang eru ekki hafnar. Enda koma merarnar varla heim - þær eru bara langt uppi á mýri á beit alla daga - og varla nokkur ástæða að vera að bröllta við það að gefa þeim neitt - þegar þær koma ekki í moðið úr fjósinu? / Það er ekkert smá moð sem þaðan kemur - (ca. helmingur af hverri rúllu endar úti í stóði) - Við höfum nefnilega ekki enn komist í það að nota turninn - það var fyrst núna í góða veðrinu sem vatnið hætti að vera frosið í farginu ofan á turnheyinu inni í turni og það verða e-h dagar þar til allt hefur verið smurt og gert klárt til að gefa með góðu honum - ... 7 9 13 að verkunin sé góð!!!
Krakkarnir eru komnir í jólafrí og á morgun (sunnudag 19des) kemst ég í frí frá mínum skóla, Nadine er að fara heim í jólafrí og í dag kemur Saana - sem er finnsk - til að dvelja hjá okkur um jólin og hjálpa til í búskapnum! En hennar stærsti draumur er að fá að upplifa jól í sveit á Íslandi - og við erum tilbúin að veita henni þessa upplifun og fá örlitla hjálp í staðin - því að það er svo mikið að gera á bænum núna.
Halldór minn er maður ársins á Lágafelli, að mínu mati - búinn að gera kraftarverk á bænum...mörgu hefur verið áorkað í sumar sem við höfum hingað til aðeins látið okkur dreyma um - og allt hefur þetta gerst meðfram öðrum önnum við búskapinn - OG ÞAÐ MÁ EKKI GLEYMA ÖLLU FÓLKINU SEM HEFUR VERIÐ HÉR MEÐ OKKUR/HONUM VIÐ AÐ LÁTA DRAUMANA RÆTAST!  Hér hefur verið girt, túnin stækkuð, mokað út úr fjárhúsi, lagfært í fjósi/nýr tankur í mjólkurhúsi, það er búið að laga til í kjallara húsins og henda rusli sem flest fólk geymir ekki heima hjá sér, það er búið að setja upp stíur í kringum kálfana og endurnýja í kringum turninn, traktórarnir hafa verið yfirfarnir einn af örðum og hagrætt í búskapnum á ýmsan máta - Þessi hagræðing er e-h sem við Halldór erum enn að skoða en okkar draumar eru orðnir svolítið KLIKKAÐIR þessa dagana - hehehehe - Draumurinn er eftir að verða 10 ára veru hér á bæ - að gerast lífrænir bændur! - Já, og þið lásuð rétt - það eru að verða komin 10 ár síðan við tókum við á Lágafelli - ... enda stefnum við á það að halda partý og bjóða ykkur að koma og fá ykkur veitingar hér á bæ - 1.júní 2011 - TAKIÐ DAGINN FRÁ!!! - En um þessar lífrænu hugmyndir - eins og þið hafið flest heyrt og séð í fjölmiðlum - þá er kreppa í landinu, og öll aðföng við búreksturinn hafa hækkað svo um munar - sem gerir það að verkum að staða okkar á þessu smá koti er ekkert alltof góð. NEI VIÐ ERUM EKKI AÐ FARA Á HAUSINN og við HÖFUM ÞAÐ SJÁLFSSAGT BETRA EN MARGIR AÐRIR en þessi kreppa og allar þessar hækkanir hafa leitt huga okkar að lífrænu ferli í búskapnum - Við erum að skoða þessi mál - en svo hefur fleira valdið því að við erum farið að skoða okkar mál, varðandi bætta heilsu og betra líferni. 
Ég, eins og allir vita - datt hér niður í kjallara, í kjallaratröppunum - og fór í klessu!  Er líkamlega of þung og alltaf að reyna að gera e-h í málunum, en ekkert gerist!!! Alltaf jafn helvíti feit, djöf - bölv!
En nóg af þessum hugsunum! - Hugsum um e-h lífrænt!
Það eru nefnilega pælingar hér á bæ að fara að snúa öllu í lífrænt og koma svo e.t.v. e.h.konar ferðaþjónustu af stað í þeim efnum og læra að hugsa um sig "á eðlilegan hátt" - bæði líkama og sál - eftir fræðum sem miða að bættu líferni/líkamlegu atgerfi!a
Ég er ofsalega stollt af því að Landeyingar eru komnir með eigin líkamræktaraðstöðu og ætla mér eftir áramót að koma mér upp prógrammi til að fara eftir - til að styrkja þennan handónýta líkama -
Held það suma daga að næsta mál á dagskrá hjá mér sé að panta mér farmiða í djúpa gröf - og panta gistingu í hvítri kistu! Þetta hefur rosalega niðurdrepandi áhrif á mig, þetta niður-fall í stiganum og þessi endalausta fita - OG BARA ÉG GET LAGFÆRT STÖÐU MÁLA!!! Loksins er  mér farið að líða betur - vegna þeirra læknina sem ég hef fengið að undanförnu - og nú get ég farið að hugsa um sjálfa mig, og vonandi komið mér í e-h form sem er ásættanlegt!
Við erum að fara í tamningar eftir áramót - ætlum að hafa hestaskipti við Skúla/Stein og Skúla - og fá út úr þeim viðskiptum; 4 fulltamin tryppi - Reiðhestarnir á bænum eru að verða gamlir, og endurnýjun er mjög skammt á veg komin. En á síðasta ári var næstum ekkert tamið - og það sem tamið var er engann veginn tilbúið til nokkurrar reiðar!!!
Við ætlum að reyna að losa aðeins um allan þennan hestaflota, og í ár voru feld 25 hross - en við keyptum 11 - og svo voru 12 ásett - svo í raun eru bara fækkun um 3 í stóðinu! Þvílíkur aulagangur við að fækka þessu drasli öllu saman! hehehe 
Kindunum fækkaði óvart! Þær voru 101 á fóðrum í fyrra - en í ár eru þær rétt um 90 - og af því eru 5 smálömb sem við ætlum að éta um páskana - nýslátruðum!!!
Kúnum er hinsvegar að fjölga, og fjölga og fjölga!!! Þær eru orðnar um 40, og okkur dreymir um að hafa þær fleiri og kaupa meiri kvóta!!!  Næsta ár, er sem sagt mikið breytinga ár - við erum með margar hugmyndir uppi um hvað á að gera og hvernig, og stefnum að mikilli hagræðingu!
Mikið af skemmtilegum atburðum hafa orðið á þessu ári sem hafa kætt okkur og bætt tilveruna. Við fermdum fyrsta barnið okkar í Krosskirkju á sumardaginn fyrsta, afmælisdag Halldórs míns og komu margir í ferminguna. Við réðum Bigga, til að vera matmaðurinn í veislunni og hann og Hlín og Arna vinkona mín ásamt vinnufólkinu mínu - og Svandísi vinkonu - björguðu okkur þennan dag! Fermingin hefði ekkert orðið án þeirra.  Ég er örugglega eina konan í landinu sem gleymdi TENGDAMÖMMU - varðandi fermingardaginn hans Freysteins. Og skammast mín enn ofan í hæla að hún var ekki sótt til kirkjunnar - til að vera viðstödd þegar Freysteinn var fermdur! Í öllu stressinu í kringum þennan dag, þá bara fyrirfórst þetta atriði. Og elsku Alma mín, mér þykir þetta óendanlega leiðinlegt, það var alls ekki meiningin - og verður ekki aftur tekið!! En við áttum samt dásamlegan dag og Freysteinn sjálfur er hæst ánægður! Sem var tilgangurinn með fermingunni, auk þess sem hann er búinn að staðfesta skírnina og kirkjuna! Við fórum í 10 daga ferðalag um Vestfirði um mitt sumar og nutum þess í botn, Halldór fór norður á "Agureyri" og í hendingskasti heim sólarhring síðar - því að það fór að gjósa í Eyjafjallajökli - en þar áður hafði gosið á Fimmvörðuhálsi/á tveimur stöðum - og í öll skiptin var tilveran okkur hagstæð - því að gosin 3 höfðu ekki mikil áhrifa á okkur hér á bæ - Nema bara fyrir þær sakir að það fór að gjósa, og við vorum vakin og beðin um að rýma í skyndi til að verða ekki fyrir hugsanlegu flóði sem hefði getað fylgt þessum hamförum - en þetta slapp allt saman og við erum heil á sálini eftir.  Á meðan á gosunum stóð - varð mikið sjónarspil til Austurs frá bænum okkur séð og ómældar mínútur sem fóru í það að dásama meistaraverkið JÖRÐINA/og Náttúru hennar - en um leið voru margar mínútur/og eru svo sem enn - sem heimilisfólkið hefur vorkennt þeim sem verst fóru út úr þessu öllu saman! Enda örugglega ekkert gaman að búa á því svæði þar sem mestur öskumökkur lagðist yfir allt, svo maður tali nú ekki um þá óvissu sem framtíðin ber í skauti sér - því þarna á svæðinu er enn allt óljóst með peningastyrki og bætur!  Sem er óþolandi fyrir þá aðila sem verst urðu úti. FINNST YKKUR ÞAU EKKI HAFA ÁTT NÓGU ERFITT - spyr ég bara -ÞÓ SVO PENINGAÁHYGGJUR BÆTIST EKKI OFAN Á ALLT ANNAÐ!???-(
Við vorum mjög heppin þetta árið að fólkið okkar; kom og hjálpaði okkar við það sem þurfti að gera vegna búskaparmála hér á bæ - Gunnar "gamli" kom og bjargaði málum í fjárhúsi og ég veit hann trúir því ekki hvað hann er mikil HETJA í OKKAR AUGUM - við eigum honum svo margt að þakka! En Flóin okkar stóð vaktina með okkur fram á haust eins og svo oft áður, og verður alltaf og ævinlega nr. 1 í okkar huga. Kerstin/Kristín Langenberger - kom hér til okkar í kringum fermingardaga Freysteins og var allt í öllu. Angie, sem var vinnukona hér frá Feb fram í Ágúst - En Pabbi hennar kom á endanum og SÓTTI HANA, hehehee. Hestastelpan Lilja, kom hér í vor sem hestastelpa en fór í haust sem fjósakona  - Jessica okkar Sænska, kom í heimssókn í sumarfríinu sínu og var hér allt í öllu eins og venjulega. Gunnar "litli" kom svo aftur í sumar og var hér í 2 mánuði, við allt mögulegt - Hlutverkið var að elta Halldór, en held hann hafi nú mestmegnis elt stelpurnar!!! hehehe. Júlía, kom um mitt sumar til að ríða út fyrir okkur og fór í lok okt. - Nadine, kom í verknám til okkar um mitt sumar og verður í heilt ár. Í okt kom til okkar, dönsk stelpa - Nadina - í 3ja vikna verknám! Þetta fólk ásamt MÖMMU OG PABBA, og öllu hinu fólkinu mínu á ótrúlega miklar þakkir inni hér á bæ - fyrir endalausa þolinmæði og hjálpsemi. Gummi, frændi minn átti heima hjá okkur í allt sumar - og fær hann hér þakkir af því að hann er svo dásamlega yndislegur - og bestasti frændi í heimi! Sigurbjörg Fríða, er á lista yfir TOPP FÓLK ársins, enda er hún fallegasta kona Íslands. Bjössi bró, Atli bró, Jón Úlfur og frú, Óli og Tobba, Guðni og Arna, Silja og Axel, Hlynur og Gulla, Pétur og Ísabella, Jói og Hildur og co, Hlín og Biggi, Sara mín og Elli og fleiri og fleiri - (setja sig á lista - fyrir afrek ársins í COMMENTUNUM!!!) Guðbjörg á Skíðbakka og Albert hennar, fá bestu þakkir fyrir að senda TROMMUSETTIÐ Í HÚSIÐ! hehehe -
En jæja, þetta er það sem ég hef að segja um árið 2010 og læt hér staðar numið!
Ég ætla núna að ganga í það mál að smala saman - fésbókarfærslum og setja hér inn - í stað allra óskrifuðu bloggfærslanna. Og enska textana - þegar ég finn stund í það!
Hér verður settur punktur aftan við i-ið - Ég er að fara að ganga frá Jólakortunum og koma þeim í póst og verð að láta prenta þennan texta fyrir mig á e-h góðu heimili - því að það er ekki til prentari hér á bænum - ... því sumir af þeim sem fá jólakort komast ekki til að lesa þetta JÓLAbréf - á vefnum og verða að fá þetta útprentað með sínu korti!

Knús og jólakveðjur úr bænum á Lágafelli til ykkar allra!
Við erum svo heppin í lífinu að við göngum út þetta ár hnarrreist og glöð og fögnum ævintýrum næsta árs með tilhlökkun!  Árið 2011 verður svo sannarlega spennandi!
Bestu þakkir fyrir fermingarbarnið í vor - allir saman!
Kv Sæunn og co Lágafelli

  • 1
clockhere
Antal sidvisningar idag: 71
Antal unika besökare idag: 11
Antal sidvisningar igår: 116
Antal unika besökare igår: 23
Totalt antal sidvisningar: 600399
Antal unika besökare totalt: 55735
Uppdaterat antal: 28.6.2025 06:49:31