Nafn:

Sæunn og Halldór Lágafelli

Farsími:

8918091

Tölvupóstfang:

lagafelli@gmail.com

Afmælisdagur:

06.06.2001

Heimilisfang:

Lágafelli 861 Hvolsvöllur Iceland

Önnur vefsíða:

www.lagafelli.is

Um:

Landbúnaður, sala heimaafurða og íbúðarleiga / ferðaþjónusta

Uppáhalds manneskjur:

mamma og pabbi

Uppáhalds matur:

steikt lifur

Eftirminnilegast:

þegar við tókum við Lágafelli

03.03.2009 23:55

Milljón í VSK - TAKK!!!

Hæhæ
Vorum að fá niðurstöður um VSK okkar - eftir hálft ár!
Milljón kall takk! - NÚ ER KOMIN KREPPA Á LÁGAFELL! ÚFFF! emoticon

Héðan er annars það að frétta að ég er búin að "spotta út" Tölvu til að kaupa mér -
þarf bara að komast í bæinn að kaupa hana!
Mamma var svo yndisleg að bjóðast til að hjálpa mér að eignast hana - og hef ákveðið að þyggja boðið - SEGIÐ SVO AÐ MÖMMUR SÉU EKKI ÁGÆTAR INN VIÐ BEINIÐ!

Ég gerðist líka DJÖRF í fjármálum um daginn og keypti mér hlut í LJÓSÁLFI -
Hvað er það!?
Já - það er nú það!
Segi betur frá þeim kaupum í næsta bloggi -
En ég held að e.t.v sé ég loksins dottin í lukkupottinn - því að "félagsskapurinn" sem fylgir einum Ljósálfi er ekkert slor! hahahaha

Freysteinn fór í skólaferðalag í gærdag - Hann á að vera í burtu með 7.bekkingum í Hvolsskóla fram á föstudag - í vísindaferð upp á Reykjum -
Valberg var beðinn af fiðlukennaranum sínum að spila á 5 tónleikum frá og með síðasta Föstudegi - til að hann fái að njóta sín sem fiðluleikari og svo aðrir krakkar sjái hvað hann er orðinn klár!
(tónleikarnir verða haldnir í öllum skólunum í Rangárvallasýslu og 2 leikskólum - GAMAN!?)
Bergrún skottast hérna heima í dýrunum - Allt öðruvísi en strákarnir í geðslagi - Vill bara vera heima með okkur að ráðskast með hunda, ketti og Ölfu sína - en það er merkilegt hvað merin lætur hana komast upp með og er viljug að bíða eftir næstu ráðum í Ráðgátunni um það hvert þær stöllur eru að fara og hvað skal svo gera næst!
MUN ALDREI SJÁ EFTIR AÐ EYÐA SVONA MIKLUM PENINGUM Í AÐ KAUPA ÞESSA MERI
Á SÍNUM TÍMA - HÚN ER BÚIN AÐ STANDA FYRIR SÍNU - ALLRA MANNA HROSS og Endalaus uppspretta af gleði og hamingju!

Hér varð einhver kveisupest í kúnum um daginn - það fengu nokkuð margar kýr JÚGURBÓLGU og við börðumst við að halda þeim góðum en Maja okkar ætlar ekki að hafa sig út úr þessu og verður sennilega send í sláturhús í næstu viku og Sokka með henni - því að sú er bæði orðin gömul, ósædd síðan síðast að hún bar (fyrravor) og svo á Nautið okkar að fara í sláturhúsið í dag - þannig að einhver fækkun verður í nautgripunum næstu dagana!
(enn er bara fæddur 1 nautkálfur síðan um áramót en kvígurnar eru í allt orðnar 10 síðan í haust - ... sem er frábær árangur miðað við hvernig hlutirnir æxluðust í fyrra í kálfamálum!)

Við erum komin með 5 hross á hús - og stefnt er að því að taka inn 3 í viðbót næstu daga - Vinnukonurnar eru orðnar 2 og  þær þurfa að hafa eitthvað á milli lappana - þar sem drengurinn á næsta bæ virðist ekki vera á leiðinni þangað! (eða ertu búinn að prófa??? hahahaha!)

Andri vinur hans Halldórs kom hér um helgina og tók 2 minka úr minkagildrunni niður á vatni - í honum var minkurinn sem við mamma keyrðum næstum á um áramótin (ég bremsaði niður til að forðast að keyra yfir aumingja KANÍNUNA - og gerði mömmu þvílíkt hneikslaða - því ef ég hefði keyrt áfram hefði ég örugglega náð minknum!) hahaha Smá dýra - feill!
Og svo er sagt að ég sé búin í Landbúnaðarskóla! hahahahah

Hér er snjór yfir öllu - eftir mikil hlýindi - Sól í heiði og logn -
En í gærkvöldi fór frostið niður í -11°C   DJÖFULLI KALT ÞÁ! :-(((

Jæja -
Hef það á tilfinningunni að tölvan ætli að fara að frjósa aftur -

Vorið er í lofti og nokkrir dagar þar til fyrstu farfuglarnir fara að týnast til landsins - (sá gæsahóp um 10mars í fyrra - sem greinilega var að koma að utan - hvenær kemur dagurinn í ár ?  Ég er allavega farin að góna út um gluggan og upp í loft alla daga! GET EKKI BEÐIÐ!)

Bið kærlega að heilsa öllum
Sæunn




clockhere
Flettingar í dag: 320
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 683
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 972267
Samtals gestir: 63039
Tölur uppfærðar: 12.5.2026 14:53:34