Nafn:

Sæunn og Halldór Lágafelli

Farsími:

8918091

Tölvupóstfang:

lagafelli@gmail.com

Afmælisdagur:

06.06.2001

Heimilisfang:

Lágafelli 861 Hvolsvöllur Iceland

Önnur vefsíða:

www.lagafelli.is

Um:

Landbúnaður, sala heimaafurða og íbúðarleiga / ferðaþjónusta

Uppáhalds manneskjur:

mamma og pabbi

Uppáhalds matur:

steikt lifur

Eftirminnilegast:

þegar við tókum við Lágafelli

08.04.2007 14:17

Gaman! Jokes!

Tók mér bessaleyfi og gerði copy/paste við brandara á vefsíðu 847 -
Took these jokes out off 847 webside -

Það voru tveir hestar sem sátu upp í tré og voru að prjóna og spjalla um daginn og veginn. Allt í einu kemur fljúandi belja með strá í kjaftinum,þegar annar segir hey fljúandi belja. Halda hestarnir afram að prjóna þegar beljan flýgur til baka. Eftir skamma stund flýgur sama beljan frammhjá þeim aftur með annað strá í kjaftinum. Segir annar hesturinn þá: hva skildi vera beljuhreiður herna einverstaðar.

Two horses where sitting in a tree nitting a pullover - when suddenly there comes a flying cow with a straw in her mouth - then one off the horses said; "Hey - take a look at the flying cow!"  The horses then keep their work on when the cow fly´s suddenly back and comes right back with another straw in her mouth - but then the other horse has a sudden idea! " HEY - There must be a cow-nest somewhere around here!"

Gamli bóndinn lendir í því að uppáhalds merin hans rífur sig á gaddavír. hringir sá gamli í dýralæknir sem kemur og skoða merina og segir ég get nú ekkert gert fyrir hana. en eitt skaltu gera, farðu út í búð og kauptu dömubindi og búðu um merina með dömubindinu. Sá gamli ríkur til og fer í næstu búð. stendur hann fyrir framann rekkan í góðan tíman og er að ríma í þetta allt saman og sussar og sveiar. kemur afgreiðslu daman eftir skamma stund og spyr hann hvort hann þurfi aðstoð. játaði sá gamli. er hún á miklum eða litlum blæðingum spir daman. það veit ég nú ekkert um segir bóndin, sínir hann henni 20 cm milli beggja vísifingra og segir, en rifan er sirka svona löng -

The old farmer finds his old mare cut open on a wire fence and the old Vet comes to look at the mare and after a close check up he say´s; I can not do anything for her - but you should do one thing - go into the supermarket to buy a women´s
Always - and then use it to keep the blood from running down the mare´s leg!
The old farmer goes to the supermarket and after standing there in front off the shelf with all the Woman´s Always product swearing and cursing - there comes a member off the supermarket staff to help him - "Have you never bought a Women´s Always before? Can I help you? How much bleeding is there!? -
And the old farmer replay´s; "I do not know - but - "the hole" it is suppose to protect is about this long" - showing a 20 cm gap between two off his finger´s! 

Nýi yfirmaður herdeildarinnnar í Írak fékk sig fluttan um herdeild og átti nú að sjá um póstfluttninga milli þorpa yfir eyðimerkurnar - en á meðan hann var í sinni fyrstu ferð sá hann að Cameldýr voru alltaf bundin á bak við tjöldin þegar í náttstað kom. Hann spurði innlendan leiðsögumann herdeildarinnar hverju þessu sætti og sá svaraði;
´"Nú herra - taktu eftir - það eru 250 hermenn í þessari herfylkingu en vegna hættuástands í þessum ferðum eru ENGAR konur með - svo þegar mennirnir þurfa ..... þú skilur ... þá bjarga Cameldýrin því sem þarf til að framfylgja nautninni!
"ÉG VERÐ AÐ SEGJA AÐ ÉG SKILJI EKKI ÞESSA SKYNDILEGU ÞARFIR en Cameldýrin mega vera" svarar þá yfirmaðurinn.

Mánuði síðar á hann sjálfur í virkilegum vanda vegna eigin hvata svo hann ákveður að kalla til undirmann sinn og biðja hann um eitt Cameldýr að tjaldi sínu í SKYNDI -
Yfirmaðurinn setur stól fyrir aftan Cameldýrið og af ástríðu hefur hann við það villta kynlífsathöfn -

Þegar hann hefur lokið sér af - spyr hann undirmanninn -
"ER ÞAÐ SVONA SEM þIÐ UNDIRMENN MÍNIR HAFIÐ FENGIÐ NAUTNUM YKKAR FULLNÆGT Í ÞESSU STRÍÐI???"

"Nei herra - svara undirmaðurinn -
Við höfum venjulega notast við þau - TIL AÐ KOMAST TIL NÆSTA BÆJAR - ÞAR SEM ALLAR STELPURNAR ERU!!!"

The new Marine Captain was assigned to a recon company in a remote post in the desert.

During his first inspection, he noticed a camel hitched up behind the mess tent.


He asks the First Sergeant why the camel is kept there.

"Well, sir," is the nervous reply, "as you know, there are 250 men here and no women. And sir, sometimes the men have ... m-m-m.... urges. That's why we have the camel, sir."

The Captain says, "I can't say that I condone this, but I understand about urges, so the camel can stay."

About a month later, the Captain starts having a real problem with his own urges.

Crazy with passion, he asks the First Sergeant to bring the camel to his tent.

Putting a stool behind the camel, the Captain stands on it, pulls down his pants, and has wild, insane sex with the camel.

When he is done, he asks the First Sergeant, "Is that how the men do it?"

"Uh, no sir," the First Sergeant replies.

"They usually just ride the camel into town where the girls are."

08.04.2007 13:36

Páskar! Easters!

Mér dauðleiðist Páskahátíðin í ár!
I find easters this year very boring!

Hér er ég EIN í þögninni karlinn sofandi; vinnukonurnar úti að taka myndir af heiminum og krakkarnir í kjallaranum að leika sér í BARBÍ - (Valberg og Bergrún) -
I am sitting here ALONE - in the silance while Halldór is a sleep; our workers outside photo-ing the world and our kids are playing Barbí (valberg and Bergrún)

Það er ekkert í sjónvarpinu; og ég nenni ekki að leggja á hest - átti þó frábæran dag í gær á hestbaki í páskareið með Landeyingum - fór á Drunu eftir 2ja ára "hlé" - það er að segja þannig að ég kalli það að vera á útreið á Drunu - hef komið á bak henni í hringgerðinu og á vellinum en ekki í frjálsri reið - og ég verð að segja að mér líkaði hún vel til reiðar - taumlétt og lifandi - Tíbrá brást heldur ekki - þó svo mér finnist hún heldur breytt eftir heimssóknina til reiðmannsins snjalla - en tölum ekki meira um það - Hún lagar sig aftur enda komin heim til mín og verður bara í höndunum mér það sem eftir er - þetta er fannta gott reiðhross og mig vantar svoleiðis skemmtun - Ljóma útreiðar hafa verið heldur margar undanfarin ár - ekki það að Ljómi er ágætis hestur að mínu mati en ég á ekki alltaf að þurfa að ríða hrossunum sem enginn á bænum vill nota vegna þess að fólkinu líkar ekki - "ég er drottning" og á bara skilið það besta undir minn fagra rass!

There is no television; and I have no will to place a saddle on a horse to ride in the wind - but I had a wonderfull day yesterday to ride in easterride with the other farmers around Landeyjar - I took Druna as my riding horse after 2 years - for I have only used her in the riding ring or in the Peddoc - she has always been in hands off others since we trained her me and Kerstin - and that is a hole lot off time since - I think she is a very fine riding horse - has light ranges and is very living - Tíbrá was also my riding horse - but I think she is a lot different since she was send for a visit to the cleverly good rider - but we do not talk anything more about that here - She will fit to me and my riding style again and be in my hands for always for she is a super good riding horse no matter what people think - And I have a need for that right now - Ljómi even though good for me too - is not a very challanging horse and I have been using him forever it feels like it - becouse no others like to ride him - "but I am a queen" and I only should have horses for queen´s under my fine ass from here on!

Hér er að koma kálfur, það kom lamb í morgun - það 3ja í röðinni af lambgimbra lömbunum í ár - fleiri folöld hafa ekki fæðst en það styttist í fleiri - Í dag er 8. apríl - og ég held að það geti ekki verið meira en 20 dagar í fyrstu Lágafellsfolöldin og ærnar eiga þá í alvöru að fara að skila sínum lömbum líka -
Við höfum því í nógu að snúast -

There is a calf comming today, there came a lamb this morning - and it is nr 3 off the new born lambs - there are no more foals but it is already 8. apríl and then it should not be more then 20 days till Lágafelli foals start comming - and then the sheep really  start the lambingseason this year -

Ég er búin að vera í frekar fúlu skapi að undanförnu - og er í mikilli sjálfsskoðun - það er búið að vera svo mikið álag á okkur, og ég held að það sé kominn tími til að við tökum okkur smá pásu frá öllu stressinu hér - helst mundi ég vilja komast í bústað eða heim í DALI til að pústa en...svo fer það allt eftir framvindu mála í búskapnum hvað við getum leyft okkur -

I have had a very strange temper last days - and I am really looking into my soal these days - There has been very much pressior on us - and I think it is time that we have a brake from the stress wich is at Lágafelli right now - I would like to get to a summerhouse or to my grandparents place in Dalir - to have a breathing space but this all has to wait becouse off our farming status right now!

Tvær gamlar vinnukonur eru á leiðinni HEIM á Lágafell - til að dvelja hjá okkur einhvern tíma - kannski verður það til að lyfta manni upp - enda er bara gaman að fá þessar elskur til baka - þær eru hörku konur og ættu að geta hrært aðeins í deginum með okkur - "kannski leyst okkur frá mjöltum eina kvöldstund eða svo!?" hahaha

Two off our old workers are comming HOME to Lágafelli - to stay with us for few days - perhaps they will lift our spirit up - it will be soooooo nice to have them back to our house again - They are both very very dear to us and they must be able to light up our days - and perhaps "take off our shoulders one or two milking hours!???" hahaha

Við opnuðum páskaegg í morgun og við Halldór fengum "Varðveittu barnið í sálu þér"  Kannski eru það skilaboð um það að við séum að keyra hvort annað um koll eða í það minnst okkur sjálf ??? Allavega skildi ég sneiðina þannig! hahaha

We opened our eastereggs this morning and Halldór and I had an egg with a ticket inside saying "always keep the child in your soul a live" -
Perhaps it is a sign that we are killing each other with work - or at least ourselfs!?
At least I understood this message this way -

Jæja - ég ætla að reyna að draga mannskapinn út úr húsi með mér - etv er þetta dagurinn til að fara niður á sand og æpa á hafið! ???

Well - I will now try to get the people out off the house with me - perhaps we might go to the sand and screem at the ocean! ???

Ég vona að þið eigið öll gleðilega páska og að þið komið nú við ef þið eigið tíma!
(hringið samt á undan ykkur - það er aldrei að vita nema við förum eitthvað á morgun kannksi til Víkur eða suður með sjó!???) 
I hope you have a happy easterholiday and that you visit us if you have time for it!
(pleace do call first - for we are thinking off driving somewhere tomorrow - perhaps to Vík or south way to Keflavík!???)

Bestu kveðjur
Sæunn

02.04.2007 11:51

Samantekt síðustu viku!/Last weeks event´s!

Fórum á Baugsstaði í gær í veislu hjá Ingibjörgu - fósturdóttur mömmu og pabba - hún varð 15 ára - frábært veður; sáum Lóm á flugi - en hann höfum við ekki séð síðan í fyrra sumar uppi í Affalli; - Lómurinn sem var á Lágafellsvatninu er dauður - allavega er alveg hættur að vera Lómur þar (hér er búið að vera svo mikið minkafár undanfarin ár)
We went to Baugsstaðir yesterday in a birthdayparty - Ingibjörg wich is an "dotter" off my mum and dad - became 15 years old - the weather was great - and out their we saw Lómur flying over the farm (Red - throated Diver or Sterntaucher) - but this bird we have not seen since last summer in Affall; - The Lómur, living in our Lágafellilake is dead - or at least we do not see him anymore (the mink has been here all over last years and they kill every bird they can get!)

Vorlaukarnir mínir eru allir vaknaðir í garðinum; verð að fara að halda áfram að moldvarpast og koma upp þessum blessuðu pöllum sem mig dreymir um - Ég bað Guðmund hennar Sjafnar systur að ath hvort ég gæti ekki fengið gallaðar "garðaskjólgrindur" í garðinn - (eitthvað sem endar alltaf í ruslagámnum)  - en þegar maður er peningalítill verður maður að kunna að BETLA! ;-)
My spring flower´s are all up and awake in the garden - I will have to start working there soon IF I WANT TO FINISH EVERYTHING I DREAM OFF DOING -

Hér eru flest hrossin sem komin eru inn í hús - að verða komin á járn; það á bara eftir að járna 3 stk - en það verður gert eftir páska!
Alfa, Ljómi, Freyja, Tíbrá, Mósa, Sómi, Mánadís, Sól, Lokkadís, Þerna, Glófaxi og Ljúfur hennar Þuríar eru á járnum, Atlas, Stóri Jón og "humm vantar eitt nafn núna"
eru að bíða eftir naglþjónustu!(járningarmanni!)
Here almost every horse we have inside is now on shue´s - it is just 3 left - but they will have to wait till after easters!
Alfa, Ljómi, Freyja, Tíbrá, Mósa, Sómi, Mánadís, Sól, Lokkadís, Þerna, Glófaxi og Ljúfur the horse off Þurí are on shue´s - Atlas, Stóri Jón og "humm my membery is sliping over one name here" are waiting for their shue´s!

Gleymdi að tilkynna ykkur það að Tjaldurinn er kominn, þá fer að styttast í að maður sjái Lóuna og brátt verpir líka Hrafninn hjá þeim sem eiga hrafnalaup í húsum sínum -
Mömmu og Pabba fæddist hérna folald í gær á 1.Apríl - ég sá ekki í myrkrinu í gær hvort kynið það var en ein af Strandar-merunum á það og hefur verið fengin áður en við sóttum hana að Strönd í fyrra - (folaldið er rautt!)
Forgot to tell you that Tjaldurinn is here (bird - Oystercatcher or Austernfischer), and then it is a short time till we get to see our national bird = Lóa (Golden Plover or Goldregenpfeifer) and Hrafninn (Raven or Kolkrabe) will soon have egg´s in a nest in thouse houses around here having Raven nest´s!
My mum and dad had their first foal yesterday here at Lágafelli - born 1. Apríl - I didn´t get to see it in the darkness wich gender but it is for sure red (chestnut/Fuchs)
The mare must have already had a stallion last year at the heard in Strönd - before we got her here to Lágafelli -

Ég þarf að fara að koma honum Pí mínum í betri girðingu - hann ætlar okkur alveg að æra suma daga og ég óttast það helst að hann verði komin heim einn daginn, YFIR ALLA SKURÐI - og ég sem er eiginlega bara með merar heima við! Það væri verra ef hann kæmist í það dót allt saman!
I need to get Pí to better fence - he is making all sort´s off stallion sounds and running like a crazy horse to get the mare´s attention wich are here in the ridinghorse group and I do not like to have him at home one day when their are almost only MARES here in the ridinghorses heard!

Við erum búin að taka folöldin/trippin okkar undan og hreinsa trippadótið úr merarstóðinu; en merarnar sem voru settar í trippastóðið (vegna þess að þær þurftu ekki eins mikið eldi og merarnar með folöldin undir) eru enn í trippastóðinu og þetta þarf að fara að sortera í sundur - Það geta vel komi fleiri folöld úr Strandarmerunum - og þá þurfa mæðurnar nú heldur betur að fá að éta!
We have already took our foals/one year´s old horses from their mum´s - and took all the youngstairs to a separaited heard -  ( for it is now time to feed the mares having foals more then the younghorses - the next springs foals are growing so much in their mum´s now!)

Hér er seinni lota af burði í fjósinu í gangi - frá því í júlí í fyrra eru bornar 32 kýr - og af því eru 12 kvígur fæddar, restin eru naut en tveir kálfar af öllum þessum hópi eru dauðir - (svo tala bændur um KÁLFADAUÐA???? Báðir þessir kálfar drápust fyrir klaufaskap okkar Halldórs, annar var fastur í kúnni og við fórum ekki að aðstoða fyrr en of seint og hinn var tvíkelfingur og við gerðum okkur enga grein fyrir því og fórum bara að sofa !)
The cows are having secound row off giving birth to calfs these day´s - now there are 32 cows wich have had their calfs since Júlí 2006 and we have had 12 female calfs and the rest is bull calfs - but only two off these calfs are dead - even though people out here talk about PROBLEM around DEAD CALFS - (????) That is they like to say there is something wronge becouse so many calfs get born dead in the stable around us - but we made a mistake in these two we have had dead - one was to stuck in his mum and we didn´t help till to late and then the other was a twin calf and we didn´t think about it (unusual to have twins) so we just went inside to sleep! )

Krakkarnir eru komnir í páskafrí - og strákarnir eru á Baugsstöðum hjá mömmu og pabba - en Bergrún er í prinsessuleik heima hjá okkur - Hún er búin að fá að fara á hestbak og allt (held hún sé að braggast eftir að missa kjarkinn í fyrra þegar hún datt af baki og meiddi sig!) -
The kids have easter holiday - and the boys are at Baugsstaðir with my mum and dad - but Bergrún playing the PRINSESS in our Lágafelli - She has already went riding and I belive the nerves are back from the fall off a horse last year - when she hurt herself in the fall!

Erum að fara á Nautgriparæktarfund á eftir - að heyra talað um nautin á nautastöðinni og sjá niðurstöður úr því batteríi öllu - ætla að nota tímann þangað til til að fara í garðinn og reita upp illgresi og EITRA fyrir því! Rósirnar mínar eru lifnaðar við inni í gróðurhúsi og krókusarnir sem eru þar inni eru lifnaðir líka!
We are going to a meeting about the Bulls we are offered to use by the Bullcentrum - wich is a place farmer´s try to collect the most promissing Bulls off every year - to use for futher breeding and - before I go there I would like to look better over my garden and see if I can not start killing some UGLY PLANT´s and look after my roses wich are all up inside the greenhouse and also the Krokus plants I have in there!
Blessi ykkur öll!  BLess you all!
Sæunn

31.03.2007 11:47

When I get older....many years from now!/Þegar ég verð 67!

Sæl - ÉG ER ALSÆL!

Ég er búin að tala um það í ótal mörg ár að miðað við mína starfsdaga í gegnum árin þá hljóti ég að eiga rétt á því að hætta ALGJÖRLEGA AÐ VINNA þegar ég verð 67 ára - því að mínir starfsdagar hófust þegar ég var um 10 eða 11 ára gömul - "þá að passa læknasoninn í Vestmannaeyjum þegar foreldrunum vantaði aðstoð" - (líka á næturnar) - Þegar ég varð 12 ára var ég komin í fiskvinnslu (saltfisk með öllum hinum vinkonum mínum eftir að skólinn var búinn) - og passa börn ALLAR STUNDIR SEM ÉG ÁTTI FRÍAR - um 15 ára aldurinn var ég komin í vinnu við að flaka og fletja fisk bæði fyrir og eftir skóla; um helgar og í flestum jóla og páskafríum; ég pakkaði grálúðu á næturnar í Ísfélaginu í Vestmannaeyjum áður en ég mætti í skólann ef ekkert var að gera í saltfisknum, passaði börn öllum stundum, afgreiddi hamborgara og pulsur í Pulsuvagninum og svo fór ég líka oft í spariföt og tók af borðum og afgreiddi á veitingastað í Eyjum - (sem sennilega má ekki nefna því ég var sannarlega undir aldri þegar þetta var) -

Ég átti sem sagt langan vinnuferil að baki þegar ég náði 18 ára LÖGaldri = hafði þá unnið við hin ýmsust störf í frítíma; og með skóla og í dag þykir mér það ekki leiðinlegt að hafa prófað þetta allt - Enda hálfgerður vinnualki framan af ævi - og fólkið í ættinni hreinlega HATAÐI MIG vegna þess að ég gat aldrei stoppað - vakti fólkið mitt upp á frídögum til að REDDA EINHVERJU sem það hafði beðið um að fá aðstoð við eða til að fá einhvern með mér í hesthúsið eða til að gera eitthvað skemmtilegt - ef enginn vildi þýðast mig eyddi ég tíma í garðinum hjá mömmu við að moldvarpast og líka heima í sveitinni hjá ömmu og afa; ALLIR SEM KOMU Í HLAÐ FENGU DÝRYNDIS BLÓMAVENDI ÚR GARÐINUM og ég var hreint ofvirk - (er enn!)

Ég hef ekki bara verið moldvarpa og grútskítug í sveitinni á sumrin hjá Afa og ömmu því ég get líka verið óttaleg snyrtibudda; vann til dæmis við að þjóna til borðs uppi í Grilli á Hótel Sögu og í Súlna Sal heilan vetur eða á meðan ég lærði eitthvað fag í skólanum tengt þjónustu og ÞAÐ VAR FRÁBÆR TÍMI - (skemmtilegt að vinna svona vinnu innan um fullt af fólki; og svona hrein og fín alla daga!:-) - Vann líka einu sinni við að afgreiða á kassa, setja í hillur og fleira í einni af stærstu verslun á StórHafnarfjarðarsvæðinu; en það átti illa við mig - þó að mér hafi í raun aldrei leiðst nein vinna - ekki svakalega allavega - Með náminu í Fjölbraut í Garðabæ vann ég við að þrífa inni á heimilum í Garðabæ; hjá fólki sem átti erfitt um vik af einhverjum ástæðum - þar kynntist ég mörgu frábæru fólki sem átti margt mjög bágt en stóð sig óendanlega vel í lífsbaráttu sinni - Ég bjó hjá Lovísu frá Hítarnesi; fallegri og greindri konu á áttræðisaldri heilan vetur - (blessuð sé minning hennar) og hún kenndi mér margt um lífið enda sönn lífskona og yndisleg í alla staði. 

Ég hef af öllu þessu lært að vinna og tel mig í flestu geta tekið til hendinni og tel mig gera það vel! Ég er óhrædd við að verða skítug og ég vil endilega hjálpa til þegar ég sé að mín er þörf - (er ekki sú týpa að ég þurfi nauðsynlega að sitja á rassinum og fylgjast með!) - Ég get skipt um dekk á bílnum mínum sjálf; skipt á barnsrössum; bakað og eldað ofan í stóran hóp af fólki og dekkað upp á borð; en skemmtilegast finnst mér samt að vinna við það sem við Halldór erum að vinna við núna - að vinna á Lágafelli; með öllu því sem því tilheyrir - (ég mundi hinsvegar vilja vera eins og Halldór - meira í vinnu úti við; við að sinna um býlið - en ekki á þessum endalausa þeytingi með börnin í skólann og úr tómstundastarfi og í reddingum - því að mér finnst hvergi leiðinlegra en þegar ég sit undir stýri á bíl - (ég er líka svo helvíti bílveik að það á illa við mig að vera á þessum þvælingi (verð bæði slöpp og leið í skapi!)) -
En hvers vegna er ég að segja ykkur þetta allt???

Jú - ég nefnilega hef komist að því að það VERÐUR LÍF ÞEGAR ÉG VERÐ 67!
ÉG ÞARF EKKERT AÐ HALDA ÞAÐ AÐ ÉG ÞURFI AÐ EIGA RÉTT Á ÞVí AÐ SETJAST Í HELGAN STEIN - og eyða ellinni í "ELLISMELLALÍF" -

Ég fór nefnilega með henni mömmu minni að sjá Sir Cliff Richards um daginn í Laugardalshöll og HANN er ótrúlegur maður; þannig ætla ég að vera þegar ég verð 67  - að vinna að því sem mér finnst skemmtilegast í lífinu - og vera svona ótrúlega spræk eins og hann; "Hann var bara alveg ágætur - þó ég hafi búist við að hann yrði kannski með 3ja vasaklúta ballöðu prógramm!" Og það sem kom á óvart er að hann er prófessíonal músíkant frá toppi til táar; ROKKARI AF GUÐS NÁÐ, - Hann hefur músíkina í blóðinu = það sá ég á þessum tónleikum!
 
Hann er líka svakalegur "showisti" og getur heillað "hvaða konu sem er upp úr skónum með sjarma sínum - þó hann sé 67!"  Hann hoppaði og dillaði sér; sveiflaðist um sviðið og söng frá því prógrammið hófst á SLAGINU 20.00 í 1 og hálfan tíma og svo var gert hálftíma hlé og aftur í klukkutíma eftir hlé og það sá ekki á hans "plast" andliti að það tæki á hann að djöflast svona; Hélt á einhverjum tímapunkti að "HANN" færi að drepa sig á þessu sprikli - og mig langaði að fara að spyrja þá sem næst mér stóðu hvort þeir vissu hvort að "HANN" væri veill fyrir hjarta og tæki hjartatöflurnar sínar reglulega!  EN HANN BARA VAR Í GÍR og það var ákvaflega gaman að upplifa þetta - Ég kom endurnærð til baka;  - þó að það hafi verið fyrir mömmu gert að kaupa þessa miða = Ég sem sagt ólst upp við það að heyra í þessum "karli" vegna þess að MAMMA ÁTTI PLÖTURNAR og SPÓLURNAR en hann náði mér alveg þarna á tónleikunum og EF 'EG EINHVERNTÍMA GIFTI MIG - þá vil ég endilega nota fyrstu ballöðuna sem hann söng þarna um kvöldið - en lagið fjallaði um það að ELSKA ÞANN SEM MAÐUR VELUR SÉR SEM LÍFSFÖRUNAUT með öllum kostum og göllum; taka hverjum degi sem óvæntri gjöf og ég held ég hafi aldrei heyrt þetta lag áður en ÞAÐ SITUR Í HUGA MÉR og ég verð að finna það út hvað það heitir til að lofa ykkur að heyra (svo alheimur viti þá langar mig að gifta mig einhvern daginn þó ég verði að draga KARLINN MINN upp að altarinu (eða finna mér nýjan??? hahahahahaha!!!) -

En bara svo þið vitið það þá á Cliff Richard heimasíðu og þar er hægt að heyra flest hans lög spiluð daginn út og inn; sjá vörurnar sem hafa verið gerðar í mynjagripaversluninni sem hann rekur og karlinn er meira að segja með blogg en ég er svo mikill bjáni að sækja um aðgang að svona síðum að ég hef enn ekki séð þau skrif EN maður verður að hafa aðgang til að nálgast þessi skrif hans!
Það kom mér líka á óvart að hann er einn stærsti "LIVE AID" tónlistarmaður í heimi og hann er mikill náttúruverndarsinni!   Gaman væri að láta hann heyra náttúruvernarhugsun "Sæunnar"! (hahahahaha!!!)

En jæja - nú verð ég að hætta - langaði bara að klára þennan texta - sem mér finnst enn ekki tilbúinn en ég ætla að hætta núna til að hjálpa FH við að klára heimanámið og elda - en verð hér aftur bráðum því ég verð að komast í það að gera upp síðustu viku - enda hellingur búinn að gerast sem ykkur finnst sennilega skemmtilegt að lesa um - "HEFUR EINHVER AÐSTOÐAÐ VAL MÓÐURBRÓÐIR VIÐ AÐ FINNA SÍÐUNA MÍNA????" -
Bestu kveðjur úr sveitinni
Sæunn


26.03.2007 13:10

Meira gaman, bara af því ég átti afmæli fyrir stuttu!

More fun becouse I had a birthday few days ago!

Halldór var að spjalla við félaga sinn -
og kvartaði sáran yfir því að hann hafði ekki hugmynd um hvað hann ætti að gefa "mér" í afmælisgjöf.
"Ég er alveg lens, hún á allt og svo er hún svo dugleg að EYÐA HVERRI KRóNU að hún er alltaf búin að kaupa allt sem hana vantar! Ég stend bara á gati hérna!"
Félaginn kom þá með frábæra hugmynd;
"Búðu til gjafakort handa henni sem á stendur að henni standi til boða klukkutími af frábæru kynlífi! Og gefðu henni í afmælisgjöf!"
Halldór var upprifinn og flýtti sér að föndra kortið!
Daginn eftir hitti hann vininn - og hann spurði "virkaði ekki gjöfin!?"
"Jú, jú -hún var voðalega spennt, stökk hæð sína í loft upp, brunaði út um dyrnar um leið og hún kallaði; -
"ÉG KEM AFUR EFTIR KLUKKUTÍMA!!!"

Halldór was talking to his friend and had a big complain over what he should give "me" for a birthday -
"I do not have a clue - she has it all - and she spends every króna for the things she needs so I do not know what to give her!"
His friend tryed to help by saying -
"Make her a card saying that she will get one hour off super sex and give it to her"
Halldór liked the idea - and hurried home to make this great gift ready -
The day after he met his friend - wich asked; "And did the gift work out???"
"Yes, yes she was exsided, jumped up and down, hurried out the door and yelled;
"I promiss to be back in one hour!"

Svona til að taka af allan vafa - þá er Halldór besti strákur - sem að sjálfssögðu veit hvernig á að koma konu sinni á óvart á afmælinu; hann gaf mér nudd í Yl - á Hvolsvelli og ég átti frábæran afmælisdag þar og hér heima á eftir!  Tölum ekki meira um það!
By the way - Halldór is probably the best man ever - and ofcourse he knew how to surprise me in his gifts - I got a massage in Ylur massage/cosmetic shop in Hvolsvöllur - and I had a great time on my birthday!  Don´t say one word about this to anyone!

26.03.2007 12:55

Hundar/kettir vs Menn/konur

Hvað er köttur? What is a cat?

Kettir gera það sem þeir vilja - Cats do what they want to
Þeir hlusta aldrei á þig - They never listen to you
Þeir eru óútreiknanlegir - you can never figer out what they will do next
Þegar þú vilt leika, vilja þeir vera einir - When you would like to play, they like to be alone -
Þegar þú vilt vera einn, vilja þeir leika - When you would like to be alone, they like to play -
Þeir ætlast til að þú bregðist við í hvert sinn sem þeir væla - They expect you to react every time they "cry out" -
Þeir eru geðvondir - they have bad temper
Þeir skilja eftir sig hár ALLS STAÐAR - They leave their hair´s EVERYWHERE!

Niðurstaðan er; ÞEIR ERU LITLAR KONUR Í LOÐNUM BÚK!
CONCLUTION; THEY ARE SMALL WOMENs in A BODY COVERD WITH HAIR!

Hvað er Hundur? What is a dog?

Hundar flatmaga alltaf í þægilegasta stólnum í húsinu - dogs always sleep in the most comfortable chair in the house
Þeir heyra þegar nammipoki er opnaður langt í burtu en heyra ekki í þér þó að þú sért í sama herbergi -  They can hear it if you open a candy miles away but they do not hear you even though you are in the same room
Þeir geta litið heimskulega og elskulega út á sama tíma
They can express a stupit face at the same time they look like your DARLING -
Þeir væla þegar þeir eru óánægðir They cry when they are unhappy
Þegar þú vilt leika, þá vilja þeir leika!
Þegar þú vilt vera ein, þá vilja þeir leika!
When you would like to play, then they like to play!
When you would like to have time for yourself; then they would like to play!
Þeir skilja dótið sitt eftir allsstaðar - they leave their toys everywhere
Þeir gera ógeðslega hluti með munninum og reyna síðan að kyssa þig!
They do horrible things with their mouth and then they try to kiss you!
Þeir vaða beint í klofið á þér þegar þeir hitta þig!
They go straigth for your privat part´s when they meet you!

Niðurstaðan er; Þeir eru litlir karlar í loðnum búk!
Conclution; they are small men in A BODY COVERED WITH HAIR! 


24.03.2007 20:27

ALMA FRÁ LÁGAFELLI NR 101 - fallin!

Hæ hæ -
Gleymdi að segja ykkur það að síðasta kýrin sem við keyptum af Magnúsi fyrrverandi bónda á Lágafelli er FALLIN; Hún hét Alma frá Lágafelli nr 101 - og hans búskap því alveg lokið í fjósinu - þó að svo sé eru hér enn hryssur og kindur sem hann setti á fyrir okkar tíð!  Svo hans "fingra" gætir enn í ræktunarstarfinu hér á bæ -

Forgot to tell you that the cow ALMA FRÁ LÁGAFELLI nr 101 - was sent to sloughterhouse last week - but she was the last cow to be sent to sloughterhouse off the cows Magnús the former farmer here in Lágafelli had as his cow - when we bought the farm in 2001 - (hummm sounds strange - will fix this later...- )
But the breeding off Magnús is still in the sheep stable and at the mares heard - so his "finger tuch" is still here at Lágafelli!

Kveðja Sæunn

24.03.2007 19:10

Vorjafndægur - (the day we call SPRING DAY is here)

Sæl
Ætlaði að vera svo skipulögð að skrifa inn uppl um vorjafndægur þegar þau tímamót væru en nú eru komnir 3 dagar síðan og ég að sjálfssögðu orðin alltof sein til þess að skrifa um þetta fyrirbrigði nokkra visku en þar sem ég er nú bara svona að Guði gerð ætla ég að tilkunna ykkur að nú ER formlega komið VOR - (og þeir sem vitið hafa segja að ef þú bíður þar til 7 mínútur eru gengnar YFIR vorjafndægur = þá megi láta egg standa! - Hvaða tilgang sem það nú hefur!)

Was planing to be soooo orginized that I would in time make a comment when the day we call Vorjafndægur came - but now I am much to late AGAIN - and therefor I will just tell you right now that SPRING IS HERE FINALLY (comes with Vorjafndægur) (and the belive is so in Iceland that you can make an egg stand when the time is 7 mín over vorjafndægur - WICH EVER MEANING THAT GIVES YOU! ??)

Eins og þið hafið öll orðið vör við hefur tíðafarið á Íslandi verið heldur risjótt að undanförnu - sannarlega er hægt að segja að það hafa skipst á skin og skúrir en þó það sem mér finnst enn nú merkilegra - að skúrirnar hafa verið í merkilega föstu formi miðað við árstíma og því hefur verið ógeðslega leiðinlegt að stunda búskap og sér í lagi útreiðar - þó að ekki sé undan neinu að kvarta þegar kemur að mínu vinnufólki - sem stendur sig með stakri prýði!

Like you must know by now then the weather in Iceland has been very strange past weeks - it has really been raining; snowing and then the sun has been werming us up - but what I think is remarkable is that our rain has been in all type off form - from being snowy - to blowing - and then icey to splat-sy - and therefor it is rather difficult to do the farmwork and the riding - even though I CAN FOR SURE NOT COMPLAIN OVER MY STAFF - wich has really been doing their job as they best can and better than best

Við erum komin með nokkuð mörg hross á járn núna - aðallega hross sem stefnt er á að selja - Fannar frá Hólmahjálegu og Pascal úr Þykkvabæ hafa séð um járningar - og flest það sem komið er heim er komið í nokkuð góðan gír varðandi kraft og úthald - og trippin sem verið er að halda áfram með eftir góðan undirbúning í haust eru komin það vel af stað í tamningunni að þau eru farin að stíga tölt og það finnst mér góðs viti - því að þá er jafnvægið komið - og þau þá á hraðferð að verða söluvænleg!
(ein sem hugsar bara í peningum þessa dagana!!!)

We have already quite a few horses on shues now - mainly horses that we plan to sell - Fannar frá Hólmahjálega and Pascal úr Þykkvabæ have been shueing for me - and most off the horses are already that well trained that they are able and have power to be ritten - and the younghorses that we had "started in training" in the fall - are now quite far on their way to learn how to TÖLT that they are soon to be much more "intressting for buyers!   (one wich only things in money these days!)

Ég fór í "hestaferð" í dag með félögum úr hrossaræktardeildinni; komum við að Kirkjubæ; sáum hestasundlaugina á Áskoti - (heitir það ekki Áskot???); komum að Pulu hjá Danna og fórum svo í Hestheima - (auk þess að borða á Hellu í hádeginu) -
Dagurinn var frábær - þrátt fyrir veðrið - og þakka ég samferðamönnum mínum mikið vel fyrir daginn!

I went on a "horsetrip" today along with my fellows in hrossaræktardeildinni (union off horsemen); we had a look at horses in Kirkjubær; went to see the horseswimmingpool wich is a brand new program in the flora off training horses (I think it is placed at Áskoti); then we went to see Daníel Jónssons farm at Pula and then we went to see Hestheima - (also we all ate together at lunch time in Hella)
The day was great - exsept the weather - and I would like to say thanks for the day!

Strákarnir okkar eru að fara að spila á stórtónleikum á Laugarlandi á morgun - sunnudag - en Tónlistarskóli Rangæinga er 50 ára um þessar mundir og á morgun stendur til að halda heljarinnar afmælishátíð þar sem nemendur sýna afraksturinn og gestum er boðið til Tónleika!  Hefjast kl 14.oo fyrir þá sem langar að eiga góðan dag með múskík! -

Our boys are going to play at a big consert at Laugarlandi tomorrow - sunday - but Tónlistarskóli Rangæinga (music school off Rangárvallasýla) will become 50 years old in these days and then tomorrow they are going to selebrait this great event by having students play for guests at a consert - wich starts at 14.00 hours - if you would like to spend a great day with music!

Þegar ég var krakki spilaði ég á BARiNTON - HORN - og strunsaði niður allar Vestmannaeyjar með þetta stóra og þunga hljóðfæri í hendi; - mörgum sinnum í viku til að fara á Lúðrasveitaræfingu hjá tónlistaskólanum þar - og ég verð að segja að ég átti frábæra æsku í félagi við marga af mínum bestu vinum í dag - við tónlistarfluttning; bæði klassískan og nútímalegan!  Og að þessu bý ég enn í dag - þó að ég spili ekki lengur - en við ætlum að gefa börnunum okkar tækifæri til að upplifa það að fá að læra að spila á hljóðfæri!  Það er hverju barni hollt að læra að halda takt og yfirfæra tilfinningar sínar yfir á nótur!

When I was a kid I played on a Barinton Horn - and I walked many times a week with this heavy music horn to a practis in Lúðrasveit Vestmannaeyja - and I have to say this time wich I spent making music with my friends - both classical and modern - gave me a great childhood - and we are going to give our children the possibility to learn how to play music - for to learn how to express your feelings in music is very healthy for the soal live and for the comunication to other children - Most off my very dearest friends today are friends I made in that Lúðrasveit - band; and I am very greatfull for this time!

Jæja - ég ætla að kveðja ykkur núna með Gömlum vísum um tíðafarið!
I will say bless now with a poem I found about the weather!

Ef í heiði sólin sést
á sjálfa kyndilmessu,
snjóa vænta máttu mest,
maður upp frá þessu.

Öskudaginn marka má.
Mundu hverju viðrar þá.
Fróðir vita að hann á
átján bræður líka að sjá.

Á Jónsmessu ef viðrar vott,
við því flestir kvíða,
þá mun verða þeygi gott
að þurrka heyin víða.

p.s.
Gleymdi að segja ykkur frá því að ég heyrði í Gæsum fyrir 2 dögum síðan en sá þá svo á heimleið í dag - þannig að reglan stendur; þær eru mættar greyin um 20.mars - og hafa gert undanfarin ár - nærri upp á dag!
I forgot to tell you that 2 days ago I heard Goses; but I finally got to see them today - when we were comming back from the "horsetrip" - so the rule is - almost like this every year = they are here at 20. marsh!

22.03.2007 16:28

Söluhross á myndum/Salehorses on picture´s!

http://www.123.is/album/display.aspx?fn=lagafellbugardurfarmoghestarhorsespferd&aid=2073597619

This is the link to my salehorses pictures - Finally there came a weather to finish this map and you can have a look!

Þetta er slóðin á myndirnar af söluhrossunum  - loks kom veður til að ljúka þessari möppu og þið sjáið árangurinn!

Kveðja Sæunn

Og gamli skrifaði listinn fær að fylgja líka and this old one get´s to go in here too!

http://www.123.is/lagafellbugardurfarmoghestarhorsespferd/default.aspx?page=home&sa=ByCategory&cat=547

16.03.2007 08:46

V.H.S

Hæ hæ
Þegar ég var lítil átti ég mér "idol" - Það var hún Bína frænka - ótrúlega smart og skemmtileg stelpa - sem fór með mig í langar göngur OG REYKTI - (sorry Bína); (það var samt ekki fyrr en í nútímanum sem ég uppgvötaði að hún var sennilega að fela það fyrir ömmu og afa að hún reykti!)  - Hún var líka HIPPI - (eða ég held að hún hljóti að hafa tilheyrt svona HIPPATÝSKU - því hún var með sítt "GERVIBLONDÍNU" hár - leðurarmbönd um úlnliðina og á þeim voru svona "HNAPPAR" og hún var oft í níðþröngum gallabuxum (MJÓNAN) og með legghlífar og belti sem var svo stórt að ég skil það ekki í dag hvernig buxurnar héngu upp um hana - (og þetta belti var líka alsett "HNÖPPUM" og hún hlustaði á lög í útvarpinu og spilaði af spólum - og hengdi "plagöt" upp á vegg með köppum eins og ALICE COOPER og NICK CAVE! (hét hann það ekki Bína!???))
Og þetta fannst mér ÆÐI!
Núna upplifi ég það sem móðir að Freysteinn á sér "idol" - Hann skrifaði orðið nafnið sitt alltaf Freysteinn Helgi Halldórsson á allar bækur og blöð sem hann kom með heim úr skólanum og ég var orðin þvílíkt pirruð á þessu því HELGI HEITIR HANN EKKI - en svo fór ég mjúku leiðina og fór að spyrja hann betur út í hvers vegna hann bæti alltaf Helga nafninu við nafnið sitt og þá er það vegna þess að honum finnst Helgi frændi sinn svo frábær! (Helgi er sonur Bjössa á Álftarhóli; (Bjössi er föðurbróðir)) Og mér finnst ég upplifa þessa dýrkunn sonar míns á frænda sínum upp á nýtt! - Fyndið hvað maður getur séð sjálfan sig í börnunum sínum þegar maður bara kveikir á FATTARANUM! 
Ég er hinsvegar að spá í það hvað það merkir hjá Valberg - þegar hann skrifar V.H.S á alla sína pappíra - "ER ÞAÐ ViDEó - V.H.S - eða ætlar hann virkilega að fara að halda því til streytu á þessum aldri að kalla sig VALBERG HALLDÓRS SÆUNNARSON - en þetta hefur hann marg sagt upp úr þurru og við ekkert amast við því enda er hann sonur okkar beggja en...V.H.S - stendur orðið á æði mögum blöðum og bókum sem hann kemur með heim -  FLOTTUR STRÁKUR AÐ FATTA ÞETTA! - En svo sá ég svo sem blað þar sem hann hafði kvittað undir V.H.S.Ó.T - og þá er kenningin mín farin forgörðum - ekki nema hann ætli að fara að kalla sig;
Valberg Halldórs Sæunnar Ólafíu og Tótason!????? OG þetta getur bara ekki verið rétt - því mamma og pabbi voru hvergi nærri þegar Valberg kom undir - því get ég lofað ykkur!

Hæ hæ!
When I was a smaller girl I had an idol - my mum´s youngest sister Bína - she was uncretable funny and smart teenager (STILL IS!) She often took me on a long walk and SMOKED (how ever it was just now in new - time when I realished probably she did this to hide from my grandmum and -dad that she was smoking!)  She also was a "HIPPI" - (or I think it must have been a "HIPPIFASHION" she was into - for she was wearing a very tight jean´s and on them she had this belt with huge nail´s on it and then she had leather around her arm´s and then also a long "blond hair" (unnatural hair with this real yellow colour - SORRY BÍNA!?) And she was listening to music off Alice COOPER and NICK CAVE! (or I think it was NICK CAVE!???)
Today I have the same experiance off idoling people - that is through Freysteinn - my son. He has been for a long time always writing his name on a paper with the middle name HELGI - (WICH IS NOT HIS NAME) and this was starting to make me go ...urrrrr! But then I desided to ask him about it WHY do you do this when it is not right and he answered for Helgi (son off Bjössi - Halldórs Brother) is my idol!
And then I woke up to the fact that my son is having an IDOL - in Helgi! Nice how you can experiance through your children the experiance you had when you were a kid! Now Freysteinn markes all papers and books with F.H.H - like his name was Freysteinn "HELGI" Halldórsson! CUTE????
But however Valberg is always writing on his books and papers; V.H.S - and I wonder what that is - VIDEO CASSET??? - or is he going to "fight for his right to be VALBERG HALLDÓRS SÆUNNARSON" - We have often heard him say this like that - and we have not done anything against it for he is both our son - so this is kind off right but....??? - then again I also found a papers saying V.H.S.Ó.T - and that can only in the same thinking mean - 
VALBERG HALLDÓRS SÆUNNAR ÓLAFÍU OG TÓTA SONUR - but then it is enough! For Ólafía and Tóti are my mum and dad - and I know they were not there when Valberg was made! hahahaha
 

15.03.2007 13:23

Tiltekt! Sól úti og snjór!/ Cleening our home! Sun and snow outside!

Sæl verið þið!
Er að týna til myndir af hrossum - taka til - tala í síma um allt og ekkert - redda vinnufólkinu verkefni og hjálpa þeim ef þarf - og Halldóri - fór á Leikskólann í morgun með Bergrúnu = hafði þá ekki komið að morgni til í Hvolsvöll í bráðum viku - VERÐ AÐ SEGJA AÐ ÉG SAKNA ÞESS EKKI! Og vona að dóttir Óla og Tobbu ákveði að það sé víst gaman í Leikskóla - en hún greyið er svo ný byrjuð að það er best að þvinga hana ekki til að þykja þetta VESEN neitt gaman! - Hún stendur sig alveg prýðilega sem skólastelpa! - Eins gott samt að ég fór uppúr - því það var foreldraviðtal - SEM ÉG VAR ALVEG BÚIN AÐ GLEYMA - og þar fékk ég að vita að mín er ÞRJÓSK - en stendur sig að öðru leiti vel - GERIR ÞAÐ SEM HÚN VILL GERA - (hummm .... mynnir þetta ykkur á einhvern/einhverja!???) -
Merin sem drapst í gær liggur hræðilega illa - gat ekki sótt hana í skófluna á traktornum - ein - verð að fá aðstoð og Halldór er upptekin í turninum - GREYIÐ var ekki búin að liggja lengi þegar Krummi kom og tók úr henni auga - en....svona er náttúran - TRUNTA!!!   Fer með hana eftir hádegi - þá hlýtur Halldór að vera búinn að  gera það sem hann er að gera! (hádegi hjá okkur er aldrei fyrr en kl 14.00 því að morgunmatur er aldrei fyrr en undir 11.00 - og því að éta þegar maður er ný búinn að éta!???)
Gurrrr - Vildi óska að draslið bara hoppaði inn í skápa og í ruslapoka og ryksugupoka - þá þyrfti ég ekki að stýra aðgerðum! En er farin - ætla að vera rosalega dugleg í dag!
KOMIÐ NÚ EINHVERNTÍMA ÞEGAR ÉG ER NÝBÚIN AÐ TAKA TIL - EKKI ALLTAF ÞEGAR ALLT ER Á HVOLFI!!!
Kveðja Sæunn

14.03.2007 22:08

Hulda went ill and is dead!

Helló you all -
Fann hana Huldu mína veika að morgni 12 mars - en núna er hún dauð greyið! -
I found Hulda very very sick in the morning off 12. mars 2007 - and now today at 14 mars - she is dead - HROSSASÓTT/HEYEITRUN eða eitthvað innvortis - að öllum líkyndum -

14.03.2007 14:34

Haftyrðill á hlaðinu!

Sæl
Veðrið er enn mjög umhleypingasamt -
Er að fara í dag til hans Óla í Miðkoti að taka út tamningarnar -
Hér voru hrossaspekingar í hlaði í hádeginu - en ég veit ekkert hvort ég náði að heilla þá - það verður bara að koma í ljós - HÉR ER ALLT FALLT FYRIR RÉTTAN PENING! :-)
Þegar ég kom út úr fjósi í morgun flaug upp Haftyrðill og lenti næstum í andlitinu á mér; þetta er annar fuglinn af þessari tegund síðan ég tók við á Lágafelli sem "villist" hingað upp á hlað - hinn fannst dauður en þessi sat svolitla stund en þegar ég ætlaði að grípa hann þá raknaði hann úr rotinu og flaug upp og út í vindinn!  Mér er sagt að þeir þrífist ekki lengur við Ísland - hér sé orðið of hlýtt og átan sem hann étur úr sjó er ekki hér við strendur lengur - og þegar þeir sjást hér við land þá hafa þeir venjulega villst hingað eða fokið og rata svo ekki heim eða hafa ekki orku í það; þannig að venjulega drepast þeir eftir einhverja daga og þó þessi hafi enn haft krafta til að fljúga; þá er mjög líklegt að hann drepist bráðum; því hér uppi í landi er sannarlega EKKERT að éta fyrir sjófugl sem þarf síli og drasl í fjörunni!
Hummm - Lífið gengur sinn vanagang - við erum að basla við að búa; krakkarnir vaxa og dafna og við erum mjög heppin með vinnufólk þessa daganna - þau eru öll iðin og áhugasöm um að standa sig vel til vinnu; tvær stelpur sinna hrossunum og þær standa sig bara vel - Markús er í öllu sem þarf að gera extra hér á bæ; (smíða stalla í fjárhúsin; mála búnaðinn inni í turni og laga tæki og tól) - hann er hörkuduglegur og ekkert undan honum að kvarta -
Ég verð hinsvegar að segja að ÉG er búin að vera í óvenju púkalegu skapi þessa daganna - mér gengur ekkert að gera það sem ég ætla mér; kem mér ekki á hestbak - tek ekki almennilega til - ýmislegt á að klára hér innan dyra áður en það kemur vor sem liggur nú bara tætt og sundrað um allt hús og verður ekki klárað nema ÉG komi mér aftur í gír - Ég nenni varla að vera vakandi þessa daganna því mér finnst þessir dagar svo ógurlega lengi að líða - EN KANNSKI ÁTTI ÉG AÐ VERA BÚIN AÐ TAKA ÞVÍ TRÚANLEGA AÐ ÉG ER BÚIN AÐ VERA HÁLFSLÖPP; með magaverk, höfuðverk og hitaverki um allan líkama og sef varla á nóttunni vegna þess að nefið er svo stíflað og svo geri ég ekki annað allan daginn en að HORAST () og hnerra!   Ég er ekki vön að taka mér pásur ef ég er veik en sennilega er það ekki gott til lengdar að vera svona vitlaus!????
Svo hef ég áhyggjur af karlinum - þó að ég viti það vel að þið haldið að ég fari endalaust illa með hann! En hann er sjálfum sér verstur; bakið á honum er farið fyrir löngu og ég er endalaust að reka á eftir honum að herja betur á lækna eða koma sér á þessari kvittun sem hann fékk síðast til nuddara en...- hann vill frekar vera heima að puða og púla en að láta gera við sig og ÞÁ SEGI ÉG NÚ BARA; 
HANN UM ÞAÐ!!!   Ekki ætla ég að bera hann þangað!
Hafði lofað því fyrir margt löngu að týna til myndir af söluhrossum - þetta er allt að gerast núna þessa daganna - verð með sér möppu af þessum hrossum tilbúna fyrir HELGI - (annað er ekki hægt að gera í þessu veðri!!!)
Vona að þið hafið það sem allra allra best kæru vinir!
Kveðja frá Lágafelli
Sæunn

11.03.2007 15:17

Hæ hæ!
I dag er frábært íslenskt veður - eitthvað sem við höfum verið að bíða eftir TIL AÐ GETA HVÍLST hahaha - ROK OG RIGNING - SÓLIN KEMUR STUNDUM FRAM ÚR SKÝJUNUM - allt er hrátt og blautt og við erum innan dyra að njóta þess að það er sunnudagur - veðrið er fúlt og við getum bara hangið með börnunum að horfa á Bansímon og fríllinn!

Today it is fantastic icelandic weather - something we have been waiting for - TO BE ABLE TO REST hahaha - STORMY AND RAINING - THE SUN SOMETIMES SHOWES HER FACE IN THE SKY BEHIND THE CLOWED's - everything is wet and cold and we are just inside the house enjoying it that it is sunday - how bad the weather is and that we can just hang around with the children to watch Bangsímon and fríllinn (chilren´s cartoon!)

Ég sá fýl í gær - þannig að sennilega er fuglinn sestur upp í fjöllin - hef ekki farið undir fjöll eða heyrt í Eyjamönnum; - en þegar fyrsti fuglinn er kominn er sennilegast að þeir séu margir komnir!!! ;-)
I saw a "fulmar"/"Eissturmvogel" yesterday - so probably the birds are sitting in the cliffs already - have not gone to Eyjafjöll nor have I heard from people in Vestmannaeyjar to tell you but when the first bird is there then normally they are all there! ;-) 

Og Affallið var fullt af öndum síðast þegar ég keyrði þar framhjá en það er svo sem búið að vera svoleiðis undanfarin ár og segir því svo sem ekkert um það hvort vorið sé að koma eður ei!
- VEGNA HLÝNANDI LOFTSLAGS ERU SVANIR, GÆSIR OG ENDUR orðnir að staðarfuglum á Íslandi - og Affallið virðist vera vinsæll staður að vera á ef þú hefur sundfit!

And Affall (small fishing river in AusturLandeyjar VERY GOOD FOR FISHING!) - was full off duck´s last time I passed there - but it has also been so for the past years - and does therefor not tell anything about the spring being here! - Becouse off glopal heat changing the SWAN´S, GOOSES AND DUCK´S are like a lockal bird´s in Iceland - and this AFFALL is a popular place to be when you have feather´s and

Á Íslandi eru um 30 tegundir villtra anda og gæsa - ár, vötn og tjarnir eru kjörsvæði - Affallið er einmitt tilvalið svæði; og er gróf sendið sem einmitt er ein aðal ástæðan fyrir því að þangað sækja svona margir syndir fuglar! (nota sand til að hreinsa meltingarkerfið! :-)

At Iceland there are over 30 kind´s off wild duck´s and gooses - river´s, lakes and pool´s are exstreemly likebalbe to them; Affall is exsactly what they like best - there is sand wich is the main reason for why the bird´s love to spend time there - (they have to use sand to clear out their stomage system!)

Annars er ég ekki viss um að þeir sem eru að reyna að stunda fiskeldi í Affallinu séu ánægðir með allt þetta fuglager sem í því þrífst -  þó mér sem áhugamanni (konu) um fugla finnst þetta frábær staður þarna sér maður bæði kafendur og buslendur; og mikið  af annars konar fuglum líka - heilan vetur var hægt að finna þarna Gráhegra;  - ) (sumir þessara fugla eru mjög duglegir við fiskveiðar!)

How ever I am not sure that the people living on farm´s next to Affall are happy  about all these bird´s wich survive there - but I as natural lover and bird watcher think it is a marvalous place to be at when you get to see both fishduck´s and swimming duck´s - and many other kind´s off bird´s too - and for a hole winter I found a "Gráhegri" (this bird you think is normal but has not lived out here - BIG AND GRAY WITH LONG PEAK and LEG´S AND LOVES TO EAT FROG'S!) - ( some off thouse birds are great in fishing!)

10.03.2007 20:39

Hvernig á að fá hjartaáfall!/how to get a hart attact!

Gerðu lista/make a list
Byrjaðu hvern dag á því að gera lista yfir all það sem þú verður að gera!
Start each day by making a list over what you MUST do!
Ekki hvílast fyrr en öll verkefni eru leyst!
Do not take a brake till all the work is done!
Hafðu MIKLAR væntingar/HAVE GREAT EXSPECTATION
Reyndu að ná fullkomnun í öllu sem þú gerir. Algjört tjón verður þá afleiðing minnstu ófullkomnunar!
Try to get perfection in everything you do. It must be a complete desaster if there is any falior!
Eyddu eins og þú getur/SPEND ALL YOU CAN!
Það er ekkert vit í að eiga peninga í banka.  Þeir eru ekki til neins þegar þú deyrð.  Vertu alltaf í mikilli skuld.  Hafðu það að markmiði að eyða einhverjum % meira en þú hefur í laun því það mun hvetja þig til að vinna hörðum höndum til að eiga fyrir skuldum!
There is no sence to have money at a bank. They vanish if you die!  Always spend more money than you possible have!  Every day you should spend more % off your salery then what you earn it will incorrage you to work more to have money for what you are owing!

                            MEGABÆT/MEGABÆT
        Keyptu þér Tölvu./ GO AND BUY A COMPUTURE
     (lágmarkskröfur 4.o Ghz 160 GB ATA 512KB flýtiminni 512 MB DDR 400 MHz UBS 2.0 DVD - R/RW) (minimum 4.0 Ghz 160 ATA 512KB spead memo 512 MB DDR 400 MHz UBS 2.0 DVD - R/RW)
       Tölvan getur þá leyst vandamál sem þú hafðir ekki áður!!!
        A computure can solve problems you didn´t have before!!!

Verið knöpp á tíma/NEVER BE ON TIME
Dýrmætur tími getur sparast með því að koma í þann mund sem atburðirnir eru að gerast!
Valuable time can be saved by comming at the start off every event! (or little later!)

RÍFSTU TIL AÐ SIGRA!!!/FIGHT FOR VICTORY!
Haltu huganum fimum og undir álagi með því að leita stöðugt að ágreiningi.
Settu þessar reglur;
Þú verður að vinna hvað sem það kostar þó þú hafir rangt fyrir þér!
Þú verður að fá andstæðinginn til að viðurkenna rangindi sín!
Málamiðlun er engin réttlæting!
Keep your mind in good condition and under pressiour by looking for a fight!
Make rules;
You have to win no matter if you are wronge!
You have to get the competative to admit perhaps he/she is wronge!
To make peace is not justice!

Hernaðaráætlun!/MILLITARY PLAN
Gerðu lista með maka þínum yfir slæmum ávana og pirrandi eiginleika hvors annars.
Berjist saman í því að sigrast á þeim.  Hengið vikulega stöðu á vegginn og sjáið hvort ykkar sendur sig betur í það að sigra hinn aðilann!
Make a list with your partner in live over all bad habbit´s and enoying action´s with each other.
Fight each other for victory getting rid off the bad habbit´s.  Weekly make a list over the sition and have a look at how you are doing in getting this victory!

Giftu þig!  Eignstu BÖRN!!!  GET MARRIAGE! HAVE CHILDREN!!!

Fylltu þig af koffíni/GET YOURSELF FILLED UP WITH COFFEE!

Drekktu eins mikið te og kaffi og þú getur.
Koffínið hjálpar þér að halda þér vakandi og ná tveimur tímum í viðbót út úr hverjum degi!
Drink as much tee and coffee as you can.
Koffín helps to stay awake and get two hours more out off every day!

Forðastu frí eins og hægt er!  DO NOT MAKE AN HOLIDAY!
Þegar þau eru óumflýjanleg passaðu að segja öllum að það sé hægt að ná í þig í neyðartilvikum.
Taktu tölvuna með þér.  Þannig getur lífstíll þinn haldið áfram eins og ekkert sé!
If this plan is unbetable - take care you tell everyone how to reach you in time´s off emergency.
Take the computure with you.  Then you can hold the livestyle as long as possible!

Flystu búferlum.  Skiptu um starf. Flyttu og skiptu um starf. Skiptu um maka. Flyttu, skiptu um starf og maka.  EF það er hægt að breyta - breyttu því! OFT!!!
Move a lot. Change your work. Move and change your work. Change partner. Move, change your work and partner. IF it is possible to change - change it!  OFTEN!!!

Gerðu meira en þú getur!/DO AS MUCH AS YOU CAN!
Settu þér markmið í lífinu - og útdeildu tíma á viðeigandi hátt til að ná þeim!  Ef fjólskyldumál þurfa aukatíma EKKI taka hann af þeim tímum sem er úthlutað til vinnu!
Set a future - and only use time to get there!  If family problems need extra time DO NOT TAKE IT off the valueble time wich you have to use for the future plan!

Endalausar áhyggjur!/ENDLESS WORRIES!
Hlutirnir sem þú  hefur áhyggjur af gerast yfirleitt ekki!
Þess vegna hljóta að vera margir mun alvarlegri hlutir sem þú ættir að hafa áhyggjur af. Reyndu að komast að því hverjir þeir eru til að þú herðir róðurinn og styrkir óttatilfinningar þínar!
Thing you worrie the most will happen normally do not happen!
Therefor there must be many other serious things to worrie about.  Try to find out wich these things are so that you get even more unsecure and worried!

ÞAÐ ER ENGINN ENDIR ÁHYGGJUR ERU ENDALAUSAR!!!!!
THERE IS NO END ON WORRIE´S FOR YOUR WORRI´S ARE ENDLESS!

clockhere
Flettingar í dag: 89
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 2880
Gestir í gær: 869
Samtals flettingar: 241940
Samtals gestir: 32299
Tölur uppfærðar: 20.5.2024 06:03:08