Nafn:

Sæunn og Halldór Lágafelli

Farsími:

8918091

Tölvupóstfang:

lagafelli@gmail.com

Afmælisdagur:

06.06.2001

Heimilisfang:

Lágafelli 861 Hvolsvöllur Iceland

Önnur vefsíða:

www.lagafelli.is

Um:

Landbúnaður, sala heimaafurða og íbúðarleiga / ferðaþjónusta

Uppáhalds manneskjur:

mamma og pabbi

Uppáhalds matur:

steikt lifur

Eftirminnilegast:

þegar við tókum við Lágafelli

02.01.2007 01:46

Gleðilegt nýtt ár 2007

Halló - er búin að vera að lofa mér lengi að sinna um þessa síðu - mikið mun betur og áramótaheitið mitt - ef heit skildi kalla er að standa mig betur í því að "framkvæma það sem ég tala um að gera! :-)" Það er eins og fyrri daginn - nóg til af hugmyndum en framkvæmdin er oft ekki beisin; þó ég segi sjálf frá - en svo verð ég líka að fá að segja það að oft stoppar okkur ÞREYTA og PENINGALEYSI - en eins og góður vinur okkar segir oft þegar hann kemur hér PENINGAR ERU EKKI VANDAMÁL - helur er viðvarandi skortur á þeim - vandamál sem erfitt er að kljúfa!

Helló - have for a long time told myself to take better care of this webside - and my new years promiss to myself "if you should call it a new years promiss" - is that I would like to be able to do the things I dream off doing! - But like always we have tonn´s of plan´s and idea´s to dream off but often the "work is not done" - but if I can hide us a little behind the fact that often we are too tired or that we are short on money then I would like to do so now - for like our good friend often says when he comes here - MONEY IS NEVER A PROBLEM - but the lack of money is a problem we always are dealing with!

Búið okkar stendur sig hinsvegar að mínu mati ágætlega í rekstri  - ég viðurkenni að hér er ekki allt eftir nýjustu tísku og tipp topp - en við látum okkur nægja að spila úr því sem við höfum og stundum erum við dauðþreytt á erfiðinu en við viljum frekar erfiða svolítið til að halda búinu en að falla í þá gryfju að skuldsetja okkur í botn og standa svo kannski frammi fyrir því einn daginn að missa allt úr höndunum!?

Our farm is doing fine standing under the finance part of our buissness here at Lágafelli - I admit that we do not have everything of newest version nor do we have it all in "tipp top shape" - But we are not suffuring from any "loss" - we make things work from the things we have - and even though we are sometimes very tired off all the extra work we have to do becouse off things being old and broken down - then we would rather do our work like this and be able to buy the farm - like we are doing or we think we are doing better this way - rather then fall in to a money-pit at the bank - wich will in end flush us down the river off det´s and then we would perhaps risk to loose this all!?

Ég er ein vakandi núna - klukkan er að verða 2 að nóttu - við erum búin að hafa það afskaplega notalegt um þessa hátíð - eyddum Gamlárskvöldi hjá mömmu og pabba á Baugsstöðum; sváfum þar í nótt - og krakkarnir - en vöknuðum svo eldsnemma á nýjársdagsmorgun til að keyra heim í fjós og mjólka - Vorum búin í fjósinu um 9.30 og fórum þá inn að sofa - Ég setti svo upp matinn kl 12.00 og beið og beið eftir mömmu og pabba sem ætluð að koma og eyða daginum með okkur hér - eða dormaði á meðan ég beið og passaði matinn en svo kom enginn og þegar ég hringdi þá var eins ástand á Baugsstöðum; allir dormandi farm eftir degi - og enginn nennti að keyra hingað austur - (krakkarnir voru ennþá þar) - þannig að við Halldór fórum út í fjós um 17.30 til að mjólka og gefa - Mamma og pabbi komu svo í kvöld með krakkana og sátu hér þar til fyrir nokkrum mínútum - að þau fóru heim í myrkrinu og góða veðrinu en ég er búin að drekka svo mikið kaffi að ég get ekki sofið - svo ég bara sit hér og vona að tölvan drepi ekki á sér á meðan ég skrifa allan þennan langa pistil á bloggið!

I am alone awake now - the time is almost 2 at night - we have had an very relaxing festival during new  years night at my Mum´s and dad´s place - where we slept and woke up very early on new years morning to go home to milk - When we finished to milk around 9.30 we desided to go inside to sleep some more - and at 12 I made lunch for I thought my mum and dad were comming to visit us and bring our kids but then I spent the day half sleeping thinking off the lunch and my mum and dad´s arrrival - to find out that they were also doing like me and Halldór - sleeping new years day through and therefor lunch was not a question anymore - At 17.30 we went to milk again and then after milking my mum and dad came with our kids and all evening we spend talking; eating and loughing about things we were remembering - But now my mum and dad are gone and I am too full off coffe to go to sleep therefor I sit here writing - and hope that the computure will not shut itself down while I am making this blogg!

Ég er búin að bæta við nýjum tengli í tenglasafnið - www.austurlandeyjar.net - þar sem hægt er að fletta upp öllum bæjum í sveitinni minni og skoða myndir sem teknar hafa verið af ábúendum á svæðinu - með 10 ára millibili - alveg síðan 1964 (að mig mynnir) - og þar má meðal annars sjá Lágafell; og breytingarnar sem hafa orðið á bæjarhlaðinu og byggingunum á bænum síðan þá - og að sjálfsögðu ábúendum!

I have put in a new connection to the webside; - www.austurlandeyjar.net - where you can look up all farm´s at this area - and have a look at photos wich have been made at our neigbours and their farm´s - with 10 years apart - all the way back to 1964 (or so I recall) - There are also photos off Lágafelli; and the changes wich have been at this farm by buildings; and ofcourse people!

Ég ætla líka að bæta við tengli inn á bloggsíðu Guðmundar Ari  - sem er áhugaljósmyndari og stórvinur systur minnar - en hann kom hér fyrir jólin og tók ágætar fjölskyldumyndir af okkur öllum - TAKK GUÐMUNDUR!

I will also ad an connection to the bloggspot off Guðmundur Ari - wich is an hobby photograp. and a very dear friend to my sister - but he came here before christmas to make photos off our family - THANKS GUÐMUNDUR!

Bestu kveðjur til ykkar allra á nýju ári! Sérstakar þakkir til allra þeirra sem löggðu hönd á plóginn í þrælabúðunum á Lágafelli síðastliðið ár!  - Endilega komið sem oftast í heimssókn - það er svo gaman þegar þið farið!

Our best wishes to you all on this new year!  Exspecially to thouse wich made it their live to work at this slavery farm Lágafell - during last year! - By all mean´s come as often as you can to visit us - IT IS SO NICE WHEN YOU ARE LEAVING AGAIN!

Kossar og knús!

Sæunn

clockhere
Flettingar í dag: 130
Gestir í dag: 110
Flettingar í gær: 99
Gestir í gær: 71
Samtals flettingar: 223890
Samtals gestir: 29922
Tölur uppfærðar: 7.5.2024 09:54:45