Nafn:

Sæunn og Halldór Lágafelli

Farsími:

8918091

Tölvupóstfang:

lagafelli@gmail.com

Afmælisdagur:

06.06.2001

Heimilisfang:

Lágafelli 861 Hvolsvöllur Iceland

Önnur vefsíða:

www.lagafelli.is

Um:

Landbúnaður, sala heimaafurða og íbúðarleiga / ferðaþjónusta

Uppáhalds manneskjur:

mamma og pabbi

Uppáhalds matur:

steikt lifur

Eftirminnilegast:

þegar við tókum við Lágafelli

Flokkur: vinirnir, skemmtanir og ferðalög!

25.05.2007 10:33

Farin burt / Gone away

Erum farin í burtu  yfir helgina - vanti ykkur að tala við bændur á Lágafelli - þá er það nú bara svo að þessa helgi heita þær CARMEN OG TAMARA, (verða hér ásamt þeirri nýju sem kemur á Laugardag að bjarga heiminum!)
Við ætlum að gera eins og Atlas vinur okkar forðum daga þegar hann skyldi heimin eftir á herðum Herkúles - og verðum á ferð um helgina; að elta uppi vini og ættingja um allar trissur, og hvíla okkur í sumarbústað sem við erum búin að leigja - 
OG NEI - SVEITUNGAR MíNIR GÓÐIR - ÉG ÆTLA AÐ HAFA HALLDÓR FYRIR ALEINA MIG UM HELGINA - þessi búnaðarfélagstæki eru í frí og síminn hans líka! 
Finnið ykkur eitthvað annað að gera; t.d. vökva blómin! ?????
We are now gone over the weekend - if you need to speek to the farmers at Lágafelli - then you have to know that their name over the weekend are Carmen and Tamara, (will be here along with the new worker wich comes on saturday - to save the world) -
We are going to do like Atlas our old friend did in very old history - leave the world on the shoulder´s off Herkúles - and we are going to do everything we possible can do for ourself´s this weekend, and look up our friends and family + rest in the summerhouse we have rented over the weekend -
AND NO - NEIGHBOURS - these tools and mashines you all own together and Halldórs takes care off - are also on a holiday over the weekend - HALLDÓR is going to be MINE - and his phone is off - so...FIND YOURSELF SOMETHING ELSE TO DO like; watering your plant´s!???

Ég fann folaldið hennar Árnýjar dautt áðan ... bleikálóttan stjörnóttan hest, sem hefur sennilega aldrei komist á lappir - og merin er alveg ómöguleg - en...svona er lífið - það er aldrei að vita hvoru megin maður lendir upp á dag - þess vegna þurfum við nú líka stundum að lifa lífinu - ekki bara basla, puða og púla -
Verum góð hvert við annað! Gleðilega hvítasunnu helgi - og njótið hvers annars!
I found foal off Árný - dead this morning - ... bleikálóttur with a star hengst, wich probably never got on his feed - and the mare is looking all over for him after I took him away - ... but this is live - you never know wich side off the line you are on when you wake up in the morning - therefor we need to enjoy every moment we have - not only work, work and work .... - Let´s be good to each other over this weekend!
Enjoy being you and together with someone!

Gangi ykkur vel stelpur mínar - ég verð farin þegar þið komið inn.... -
Good luck to you my girls - I will be gone when you read this...-

Kveðja Sæunn og co!

02.01.2007 02:56

Sabine Sebald

Halló allir - ég er óendalega þakklát einni konu í lífinu en það er stórvinur minn - ljósmyndari frá Þýskalandi Sabine Sebald -

Henni kynntist ég á neti fyrir allmörgum árum síðan og það er henni að þakka að Lágafell - hefur síðan við Halldór tókum við búi hér - selt svo mörg folöld til lífs!

Hennar persónulega og þrotlausa vinna - "allt gert í hennar frítíma - og frítt fyrir okkur" hefur valdið því að núna þurfum við varla að auglýsa okkar hross - það er bara haft samband og beðið um upplýsingar - og við höfum reynt eftir fremsta megni að uppfylla drauma fólks - og nærri alltaf hefur orðið til samband sem varir!

Mig langaði að segja ykkur þetta allt því ég veit að það hefur vantað tengil inn á síðuna hennar Sabine og þó ég hafi haft 100 tækifæri til að bæta henni á tengla listann minn - þá hefur einhver veginn aldrei komist í verk að tengja okkar síður saman! -

En nú er ég búin að bæta henni inn í tengla - og ég vona Sabine mín að við báðar komum til með að njóta!

1000 kossar á færibandi frá Íslandi til þín og þinna!

Kveðja Sæunn

p.s Mér finnst íslenskan þín vera næstum fullkomin núna - þú mátt ekki verða betri en ég!

Helló everyone - I have to tell you that I am forever thankfull for the help I have been given by one woman - named Sabine Sebald (an exelant friend and a photographer) -

I met here one day at the internet - talking about horses and since then we have been friends - and with her help - Lágafelli horses have been brought back to buissness - and every year we sell more and more foals alive away from the farm!

Her personal help and endless work "she has been giving to Lágafelli for free in her own free time"  - has made it so that we hardly have got to "publish our foals" - the buyers just show up willingly - looking for foals we have for sale - becouse off rumor!  And we have almost every time been able to forfill the need of those person´s and made a connection wich will hopefully last forever!

I just wanted to tell you these things for somehow - even though I have been working endless hours on my webside - a connections between Sabines webside and mine - have never been made - and I think it is so horrible wronge - I desided to fix it now - before I forget it once again! 

I hope my dearest Sabine - that you will benefit from this connection - for I know you want to be able to sell your photos!

1000 kisses to you and your family from us here at Lágafelli!

Kveðja Sæunn

p.s I think your icelandic is almost perfect now - you can not be better then I am!

 

 

22.12.2006 13:04

Vatn!

Halló allir

Það eru eins og allir vita er búið að rigna stanslaust í einhvern tíma - svo mikið að allar ár á Íslandi hafa þanist út og yfir alla árbakka - og í gær þegar við fórum á Selfoss í verslunarleiðangur þá var meira að segja vatnselgur í kjallaranum á Nóatúni - þar sem bílastæðin eru!

Hafið þið ekki séð myndir af þessu þá bendi ég á að það er hægt að sjá fréttatíma Rúv - í endursýningu á www.ruv.is  - undir innlendar féttir -

It has been raining so much here for many days that all rivers in Iceland have grown to big sea - and there is fload everywhere - even yesterday when we went to Selfoss shop-ing - there was a RIVER in the garage under Nóatún-shopingcentrum!

If you have not heard off this or seen picture ´s off this - you can look at the news at RÚV - (television) - back in time - at innlendar fréttir - under www.ruv.is

Ég er frekar upptekin - hef þetta ekki lengra að sinni -

I am rather bussy so i will not have this longer -

Kveðja SÆUNN

 

21.11.2006 01:47

Ex-squeeee ´s me/Afsakið mig!

Exsqueeee ´s me - I beg your powder bara - eða í lauslegri þýðingu AFSAKIÐ MIG!

Fór á söngæfingu í kvöld og lærði að ég held helling en ég er þvílíkt rám og ómöguleg í hálsinum og svo segir lækna "probbinn" EKKERT AÐ ÞÉR þú ert bara ímyndunarveik og allt kvöldið á eftir æfingu eru að koma upp úr mér "graftarkögglar" og ég þvílíkt sár í hálsinum að það hálfa væri meira enn helling nóg - svo ég verð bara "BARA" að fá að gefa skít í læknirinn - það er ekki eðlilegt að ég sé nærri ALLTAF með hálsbólgu og kvef - og aum í hálsi - ég er hraust kona að öllu leiti NEMA ÞESSU og ætla að krefjast þess eftir jól að hálskirtlarnir eða eitthvað verði "lagað" - er ekki að meika það að vera raddlaus og fölsk enda alin upp á heimili þar sem alltaf er verið að syngja og mér finnst fátt skemmtilegra en að reka upp GAUL - og börnin mín eru sungin í svefn á hverju kvöldi - auk þess sem Peugotinn hefur ekki útvarp frekar en gamla Peugot-ljónið okkar og því eru allar stundir sem gefast notaðar til að komast á TOPPINN í söngnum!

I went on a coir practis tonight - and learned I think alot - but I always have problem in my throught these days and the "prof" doctor I have always says " THERE IS NOTHING WRONGE WITH YOU -" "you are just imagining things" - but the hole night after pract. I have very much pain in my throught and still I try to use my muscles in the ASS and stomage to press out the horrible sounds that come out of my body!  I have had many hours of hurting in bed over this; running noes and for I am never sick I demand that after christmas the doctor fixes something - I can not walk around without a voice I am horrible "tuned" and a shamed of myself for I am raised in a home where we sing alot; and my children listen to me sing before they go to sleep and they sing every day - and our little Lion car doesn´t have a radio so there is only FUN  to drive it then I am at TOP of my singing! -

Núna get ég ekki sofnað vegna þess að mér er illt í hálsinum, ég er þvílíkt pirruð yfir að GETA EKKI MEIRA í söngnum í kvöld því ég kann þetta alveg og meira en GET - og samt reyndi ég að opna vel fyrir röddina - sitja rétt og standa rétt og LAUS en....urrrrrr AULI!

Now I can not fall a sleep for my throuht hurts and I am very irretaided over not being able to "use my voice right - still I try -ed to stand up tall and open for the tune! urrrr AULI!

Hummmmm - I am here for I already put in a new Video off the foals from this summer waiting at the fence for their mum´s to be finished in their work!

Humm - ég sit hér líka vegna þess að það er nýtt video af folöldunum frá því í sumar á síðunni - þau eru að bíða eftir því að mömmurnar verði búnar í vinnunni!

Og nú er sorgarsaga af fuglinum hans Freysteins - And now there is a sad storie about Freysteins bird COCO -

Ég veit ekki hvort ég var búin að segja frá því að ég á kött - hann Borða - sem hefur nú fylgt okkur í 10 ár - og er frekar pirrandi eintak af ketti því hann er ótrúlega seigur að bjarga sér - sér í lagi að krækja í eitthvað að éta!

I do not know if I already told you I have a cat; Borði - wich has been following us for 10 years - and he is increatable cool cat - though he can be soooo boring - he always managed to find something to eat!

Um þessa helgi brugðum við okkur af bæ til að útrétta og fleira og á meðan sat sá gamli og gæddi sér að páfagauknum hans Freysteins - og fannst við bara LEIÐINLEG að fatta að það var hann sem át hann en það sem kom upp um kauða voru fjaðrirnar sem stóðu út úr honum þegar við komum heim!

This weekend we went off the farm for a short whyle and when we were gone this oldy sat and ate the bird my son Freysteinn had - and when we found him only the green feathers stood out of his mouth - and then he was very surprised when we started yelling at him for doing this!

Þetta hefur Borði svo sem gert áður - því hér áður fyrr í denn átti Magni bróðir frábæran Frosk - með svona burrrr hljóðum og allt þegar fór að kvölda og þegar hann skrapp í ferðalag með mömmu og pabba eitt sinn vorum við Halldór fengin til að gæta Frosksins - en BORÐI sá fyrir því að Froskurinn færi hvergi eftir nokkra daga - hann ÁT HANN - og Magni þegar þú lest þetta - þá máttu vita að það var gert fyrir þig að ljúga að froskurinn hefði hoppað upp úr krukkunni sinni og kramist til bana í fallinu - því þú værir sennilega enn á hlaupum eftir Borða ef þú hefðir fengið að vita sannleikann! (en nagrísinn þinn féll í alvöru niður af hillu og dó!)

This Borði has done before - in the old days Magni my brother had a frog - this kind wich says burrrrrr in the evenings (frogs to not live in Iceland but you can buy them as pets) - but when Magni went off for a summerholiday with our parents one summer - and we were suppose to take care off the frog for him - Borði desided to eat him so that he wouldn´t exscape - so Magni when you read this it was done for your protection to tell you the frog fell down after climing up and out of his glas-home - you would probably still be running after Borði if we would have told you the truth from the start - (but your "ginny-pig"(?) is dead from a fall it took by itself when we had him over one weekend!)

Besta sagan af honum Borða er þó af honum nokkra mán gömlum að reyna að veiða TJALDA og ENDUR í kringum gamla húsið okkar - þegar venjulegur köttur mundi nú láta sér nægja að ráðast á minni fugla!

The best storie off Borði is though when he thought he could cash a DUCK when he was smaller then nothing in the very old days - behind our old house - when a normal cat would have tryed for smaller bird!

Ok - núna er komin tími á bænirnar - eftir allar þessar sorgarsögur og svo er mér líka orðið kalt á því að sitja hér í myrkrinu og EIN allir farnir að sofa nema ég!

Ok now it is time for your bed time pray. after all these sad storyes - then also I am getting cold sitting here in the dark alone for everyone has gone to sleep now!

Faðir vor - ÞAÐ ER VOR

Þú sem ert á himnum - ÞÚ SEM ERT Á HIMNI

Helgist þitt nafn - HELGI ER ÞITT NAFN

tilkomi þitt ríki - KEYRIR ÞÚ Í RÍKIÐ?

--------------------------------------------------

svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldu nautum -

Svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldugu nautum!

Eigi leið þú oss í freystni - heldur frelsa oss frá illu -

EIGI GLEYM ÞÚ OST Í FRYSTI - HELDUR FRELSA HROSS FRÁ ILLU

-------------------------------------------

HUMM KANNSKI EKKERT TIL AÐ GRÍNAST MEÐ!????

--------------------------------------------

Vitið þið hvað þið fáið í afurðir eftir eina taugaveiklaða kú!? (mjólkurhristing)                

Do you know what a nervous cow gives for product? (milkshake!)

---------------------------------------------

Valberg var að horfa á FANNAR FRÁ HÓLMAHJÁLEGU járna og þegar síðasta fjöðrin var komin á sinn stað sagði hann;

Vá - fyrst þú ert búinn með þennan - verður þú að smíða einn hest handa mér!

---------------------------------------------

 

Afsakið villurnar er þreytt og pirruð og nenni ekki að lesa þetta yfir aftur!

Sorry for the mistakes in the writing I am tired and sad and I do not feel like reading it over again!

ENJOY THE VIDEO - skemmtið ykkur yfir videóinu!

Sæunn

                                                      

 

17.08.2006 10:18

önnur vika af ágúst 2006

Hér er búið að vera mikið að gera síðustu vikur - og allir orðnir dauðuppgefnir -

Við erum búin að afreka það að fara á Emstrur að hitta K.Langenberg - og keyra um allan Mælifellssand og hálft syðra - Fjallabak - og það allt milli Mjalta (reyndar voru Carmen og Stephen heima og mjólkuðu um kvöldið svo við fórum bara hægt og varlega með Björgvin frænda (89 ára) - og Grilluðum í lok dags í skóginum við tjaldstæðið í Hrífunes í frábæru veðri!)

 

We have managed to do a lot last weeks - and now all people are dead-tired -

We have finally  managed to go to Emstrur to visit our friend K.Langenberg - and we drow all Mælifellssandur and half of syðra - Fjallabak - and this was all done between milking ( actually Carmen and Stephen were home and did the cows at the evening so we just took it eazy and drow slowly with cousin Björgvin (89 years old) - and then we grilled in the end of the day by the camping zone of Hrífunes in a fantastic weather!)

Skepnurnar okkar hafa eru allar hraustar og fínar - við erum löngu búin með fyrri heyskapinn - en erum á fullu að taka til og undirbúa veturinn -

Our animals have all been healty and fine - we have longe time a go finished our hay season - but we are now spending all our time and effort in cleening around and making things done for the winter -

Við erum enn með 3 af vinnufólki sumarsins á heimilinu - og við þökkum öllu því fólki sem komið hefur að búskapnum með okkur í sumar fyrir frábærlega unnin störf - án þess hefðu hlutirnir ekki verið svona auðveldir - allt small fullkomlega saman!

We still have 3 of our workers present - and now we would like to thank all the people wich has helped during this summer to make our farmlive eazy-er for perfectly good help - with out you all thing at Lágafelli would not have been so eazy - all these stressfull moments were perfect becouse of you!

 

Núna verð ég að hætta - veit ekki hvenær ég fæ tíma í að vinna meira í heimasíðunni - er að smala saman myndum til að setja hér inn - en góðir hlutir gerast hægt - EKKI SATT???

Now I have to go - i do not know when I get time to do more work on the webside - i am gathering together pictures to put in here - but like you know = GOOD THINGS HAPPEN SLOWLY! Ain´t it???

 

Kveðja/Greetings

Sæunn

clockhere
Flettingar í dag: 388
Gestir í dag: 71
Flettingar í gær: 149
Gestir í gær: 35
Samtals flettingar: 399702
Samtals gestir: 47444
Tölur uppfærðar: 23.12.2024 01:48:15