27.12.2023 11:58
Tarot?
ÁTTA í bikurum
Þú hefur gleymt sjálfum þér, tilfinningaþroski þinn er í ákveðinni stöðnun vegna þess að þú hefur verið að gefa of mikið af sjálfum þér til fólks sem ekkert gefur tilbaka.
Af þessum sökum átt þú lítið sem ekkert eftir af orku til handa sjálfum þér til að drífa sjálfa/n þig áfram. Það er því þörf á nýjum vinum, eða jafnvel nýju umhverfi til þess að þú getir skapað sjálfum þér skilyrði, til þess að vaxa og dafna andlega.
Þú gætir verið búinn að vera að fást við eitthvað verkefni sem ekki nærir þig á neinn hátt og þetta er ábending um að þú eigir að finna nýja leið í lífinu.