22.11.2023 12:56
Búin að hendast aðeins yfir húsið og þrífa
allt að ske
-
Hér er ehvkonar illviðri þó það sé ekkert illviðri - kemur í sterkum stengjum og skellur á húsinu, svo það nötrar og titrar og skelfur og hristist -
óvenjulega við þetta er að svo er algjört dúnalogn á milli og bjartur himinn yfir - og engin ofankoma að ráði í þessu - ... svona er staðan á bænum í dag
er með afgang af fískrétt í ofninum og egg og sild og rúgbrauð á borðum og bíð eftir fjósamönnum
setti í báðar þvottavélarnar í morgun og uppþvottavélin er búin - svo ég stefni á að tæma hana e smá - en ... í þvottavélinni eru flíkur af mér og svo ætla ég að þvo lopapeysur á ullarprógrammi og
enda á öllum tuskum og handklæðum sem hafa hlaðist upp - af því að fólk heldur að þetta þvoi sig sjálft í vélunum - og þurrki - og fjallið vex og vex - og komið í heila vél - ...
enginn hinsvegar þvær slíkan þvott nema ég - svo ég er borðtuskan í þeim efnum -
Fór á leikritið Maður í mislitum sokkum í gærkvöldi og langar eiginlega að fara aftur - því að ég naut mín ekki nægilega í gær - og það var ehv í sýningunni í gær sem var svolítið stirrt og snúið að mínu mati - held það hafi verið ég - og mínar hugsanir - ætla að reyna aftur aðra sýningu - en þetta er verk sem hægt er að hlægja að og eiga frábæran tíma við að hlægja með góðum vinum - það er klárt mál -
Hér er - kveðið í kútinn - ... orðaforðinn farinn frá mér og bless í bili
kv S