21.11.2023 10:05
Haust skýrslan fór í hús í gær
Héðan fóru alls uppl um 43 mjólkurkýr og 10 kelfdar kvígur - af þessu eiga víst 4 mjólkurkýr eftir að fara í sláturhúsið - vegna aldurs og skapgalla og - svo er eitthvað af öðru kálfa uppeldi á svæðinu - yngra -
í fjárhúsi með öllum gripum verða 80 gripir og
í hrossastóðunum með öllu 126 en af því á eftir að fella úr skráningu, það sem var fellt hér á föstudaginn var, seldu hrossin sem eru ógreidd og það sem verður kannski fellt ef ekki selt - af merum -
merar eldri en 4v eru 64 og yngri hross eru 16 - (upp að þriggja vetra) svo eru eftir tveir graddar á bænum Hazar minn og Hæringur - og Hvinur hans Tomma er hér þar til hann tekur hann í bæinn.
Halldór eyddi deginum í gær að setja inn vélar og tæki og ég fór í flakk í gær - búin í fyrradag að taka til alla vsk pappíra fyrir Jórunni en - gleymdi þeim svo í bílnum og fór með þá sérferð í gær -
Enduðum í soðningu hjá Guðnýju frænku og Gauja og - hættum við kaffi húsið sem við ætluðum á með Jórunni - en það var bara svo seint ehv. að kaffihúsa ferð bíður betri tíma -
Í Landeyjum í dag er heljarinnar regn og rok - og allt komið á flot - styttist í að þurfi að setja hrúta í - en þeir eru þrír til - og einn alveg lappalaus segir HÁÓ - :P Kannski við bara hleypum til - með gamla laginu - leiðum um hrút og látum ærnar segja okkur og svo sæðum? / það væri spennandi...
Allavega, - þið eruð góð er það ekki?