19.04.2010 13:24
Finnst ég svolítið eins og JÓJÓ!
Hæhæ þið sem eruð að velta þessu ástandi fyrir ykkur!
Ég hef ekkert bloggað af því ég hef verið eins og JÓ JÓ á flótta undan hugsanlegu flóði!
Við vorum 2 nætur frá gos-stað, annars höfum við verið heima -
Mikið að gera við að undirbúa fermingarveisluna hans Freysteins sem er um næstu helgi 25.04.10
Ég hef ekki mikið verið úti við að vinna, en samt hefur verið flokkað í pör = við að klára verkefni hér á bæ = Halldór og Angie hafa séð um fjósið en við Freysteinn um hross og kindur -
Krakkarnir voru þar til í gærkvöldi hjá mömmu = fjarri þessu öllu./fóru þangað á gosnóttina!
Við gerðum herferð hér um mýrarnar í gærkvöldi, eftir að hafa mokað út úr einum kofa = og settum kvígurnar inn en tókum graddana á kerru og fluttum þá út á Baugsstaði.
Þá verður hægt að vaða í það á Miðvikudag/fimmtudag að koma merunum í suður mýrina og folöldunum inn/í geldingahópinn.
Annars erum við í dag - bara að spara kraftana og reyna að hvíla okkur.
Það eru búin að vera átök í svo langan tíma.
Knús
Sæunn

Skrifað af Sæunn Lágafelli