Nafn:

Sæunn og Halldór Lágafelli

Farsími:

8918091

Tölvupóstfang:

lagafelli@gmail.com

Afmælisdagur:

06.06.2001

Heimilisfang:

Lágafelli 861 Hvolsvöllur Iceland

Önnur vefsíða:

www.lagafelli.is

Um:

Landbúnaður, sala heimaafurða og íbúðarleiga / ferðaþjónusta

Uppáhalds manneskjur:

mamma og pabbi

Uppáhalds matur:

steikt lifur

Eftirminnilegast:

þegar við tókum við Lágafelli

18.03.2010 10:16

Gúndi - aftur!

Eitt sinn þegar Indý Karls blaðamaður á DV var að aka um grundir grænar austur af Akureyri kom hún skyndilega auga á svín, sem var aðeins með tvær framlappir en engar afturlappir.

Hún ákveður að athuga hvort það sé eitthvað fréttnæmt hér á ferð og ekur því upp að bóndabænum.

Þar hittir hún konu sem segist heita Vallý, og spyr hana hvað sé eiginlega í gangi með svínið?

Þetta svín er hetja segir Vallý. Fyrir nokkrum árum var sonur minn, hann Álfur litli að leika sér niður við ána þar sem hann datt út í hana.

Svínið sá hann og dró hann upp úr og bjargaði lífi hans.

En af hverju er það bara með tvær lappir? spyr Indý blaðamaður?

Þá muldrar Vallý eitthvað og gengur í burtu.

Sér þá blaðakonan hvar vinnumaður stendur og er að huga að hestum.

Hún gengur upp að honum og spyr hið sama..

Þetta svín er hetja.. Fyrir nokkrum árum drapst ég eftir of mikla drykkju á töðuballi og sofnaði út í hlöðu, kviknaði þá í henni og svínið kom og dró mig út úr brennandi hlöðunni og bjargaði lífi mínu.

"En af hverju er það bara með tvær lappir? spyr blaðakonan nett pirruð, og vitið menn, hann muldrar eitthvað ofan í bringuna á sér og gengur í burtu..

Svo sér hún annan karl, gengur upp að honum og kannast eitthvað við svipinn á honum,.. hehe þetta skildi þó ekki vera hann Gúndi glans sjálfur hugsar hún, og spyr hann hvort hann viti hver stjórnar hér..

Ég ætti nú að vita það,, ég er Gúndi bóndi, sæl Indý og takk fyrir síðast..
Af hverju vantar tvær lappir á hetju-svínið þitt?? spyr hún.

Ja sko,þetta svín er hetja, það vakti okkur Vallý upp þegar handrukkarar úr stórborginni brutust hér inn og bjargaði okkur öllum hér frá limlestingum og dauða..

Jájá ég veit það en af hverju vantar á það tvær lappir???. Öskraði Indý mjög reið.

,,Ja tja, svona kostagrip étur maður ekki í
einni máltíð" svaraði Gúndi..


þessum brandara stal ég frá einum besta Bloggara í Bloggheimum - sem kallar sig Brussulína!

clockhere
Flettingar í dag: 219
Gestir í dag: 50
Flettingar í gær: 149
Gestir í gær: 35
Samtals flettingar: 399533
Samtals gestir: 47423
Tölur uppfærðar: 23.12.2024 01:27:09