Nafn:

Sæunn og Halldór Lágafelli

Farsími:

8918091

Tölvupóstfang:

lagafelli@gmail.com

Afmælisdagur:

06.06.2001

Heimilisfang:

Lágafelli 861 Hvolsvöllur Iceland

Önnur vefsíða:

www.lagafelli.is

Um:

Landbúnaður, sala heimaafurða og íbúðarleiga / ferðaþjónusta

Uppáhalds manneskjur:

mamma og pabbi

Uppáhalds matur:

steikt lifur

Eftirminnilegast:

þegar við tókum við Lágafelli

09.03.2010 09:03

Kindur = sheep

Ærbókin segir!!!

Að bera fé:afklæða kind

aflafé:kindur sem stunda veiðiskap

áhættufé:fífldjarfar sauðkindur

eigið fé:kindur sem maður á sjálfur

fégirnd:afbrigðileg kynhneigð(að girnast sauðfé)

fégræðgi:að vera einstaklega sólgin í sauðaket

féhirðir:smali.

félag:lag sem samið er um sauðfé.

félagi:sá sem leggur lag sitt við sauðfé
félegur:eins og sauður
féleysi:þegar skorið hefur verið niður vegna riðuveiki
fjárdráttur:samræði við kind
fjárhagur:einhver sem er afar laginn við kind
fjárhirslur:geymslur fyrir sauðfé.
fjárlög:mörg lög sem samin eru um sauðfé
fjármagn:þegar margar ær koma saman.


fjármál:tungumál sauðkinda/jarm-tóndæmi = ME  MEEE
fjármálaráðherra:
yfirsmali
fjármunir:lausamunir í eigu sauðkinda
fjárnám:skóli fyrir kindur
fjarplógsstarfsemi:jarðyrkja þar sem sauðfé er breytt fyrir plóg
fjársöfnun:smalamennska
fjárútlát:þ
egar ærnar eru settar út á vorin
fjárvarsla:það að geyma kindur.
fjárveitingar:þegar boðið er uppá sauðket í matarboðum.

fjáröflun:smalamennska

fundið fé:kindur sem búið er að smala

glatað fé:fé sem ekki hefur komið aftur af fjalli.

grímsá:kind í eigu gríms

handbært fé frá rekstri:kindur sem menn hafa gefist upp á að reka og ákveðið að bera á höndum sér

hlutafé:súpukjöt

langá:einstaklega löng kind

lausafé:kindur sem eru lausar á afréttinum

norðuá:kind að norðan

opinbert fé:kindur í eigu ríkisins (t.d. ef eigendur þeirra hafa orðið gjaldþrota?)

sauðburður:þegar handbært fé er borið á milli staða
sparifé:kindur sem ekki eru notaðarhversdags
stofnfé:fyrstu kindurnar sem maður eignast
tryggingafé:öruggt sauðfé
veltufé:afvelta kindur
þjórfé:drykkfelldar ær
þverá:ÞRJÓSK KIND


Ja, segið svo að það sé ekki mikið fé til í landinu okkar ennþá!

clockhere
Flettingar í dag: 219
Gestir í dag: 50
Flettingar í gær: 149
Gestir í gær: 35
Samtals flettingar: 399533
Samtals gestir: 47423
Tölur uppfærðar: 23.12.2024 01:27:09