08.03.2010 11:48
Brandari
GÚNDI GLANS FER TIL HELVÍTIS!
Þar kom að því að Gúndi glans hrökk upp af.
Hann rankar við sér í biðröð fyrir framan helvíti.
Hann verður að sjálfsögðu ekki mjög ánægður og fer að hugsa þar sem hann stendur í biðröðinni, þar sem menn eru skráðir inn.
Hann hugsar með sér að hann hafi nú ekki verið svo slæmur að hann ætti þetta skilið, þegar hann lítur upp sér hann sér til mikillar skelfingar að röðin er komin að honum að skrá sig inn.
Hann gengur rólega að ráðgjafanum við hliðið og getur ekki falið hve vonsvikinn hann er. Hvað er að?, spyr ráðgjafinn við hliðið, þú virðist ekki vera hamingjusamur?
"Við hverju bíðstu, ég er í helvíti" svarar Gúndi..
Það er nú ekki svo slæmt, við reynum að hafa gaman hérna svarar ráðgjafinn.
Drekkurðu spyr ráðgjafinn..
"Auðvitað, ég drekk mikið segir Gúndi, og eitthvað er að lifna yfir honum..
Nú þá áttu eftir að elska mánudaga, á mánudögum drekkum við okkur blindfulla, þú getur fengið wisky. rom, tekíla, bjór, og hvað sem hugurinn girnist. Við höfum partý alla nóttina og þú mátt drekka eins mikið og þú vilt.
Reykjurðu?.. Já reyndar geri ég það svarar Gúndi.
"Hva, flott!, þá áttu eftir að elska þriðjudaga, við reykjum alla þriðjudaga, það eru svona reykdagar. Við reykjum fína vindla og fínar sígarettur, það er leit að öðru eins gæðatóbaki. Þú getur reykt eins og þú vilt án þess að hafa áhyggjur af krabbameini eða hjartasjúkdómum, því þú ert nú jú dauður nú þegar..
En notarðu eiturlyf?
Aðeins hef ég prófað það, á mínum yngri árum, sko,svarar Gúndi.
Þá er tími að prófa það sem þú átt eftir að prófa, því miðvikudagar eru dópdagar.
Engar áhyggjur af því að taka of stóran skammt eða verða háður því, því allir erum við dauðir hvort sem er .
En finnst þér gaman að fjárhættuspilum?..
Ég dýrka það og nú er minn farinn að brosa og í góðum fíling.
Þá eru fimmtudagar þínir dagar, þá spilum við póker, 21, kappreiðar og allt sem hugurinn girnist, bara allt.
Ertu hommi?.. Nei reyndar ekki, svaraði Slagbjörn.
."Ó, humm ... okey, þá áttu ekki eftir að fíla föstudaga...
******
Skrifað af Sæunn Lágafelli