25.11.2009 11:50
Kærleikur
+hvert góðverk sem þú vinnur.
+hvert bros sem þú gefur.
+að gefa þeim sem þarfnast.
+umhyggja fyrir öllu sem lifir.
+að biðja fyrir öllum, góðum sem slæmum
+að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra.
+að dæma ekki.
+ljósið sem býr í hjarta þínu.
+hvert bros sem þú gefur.
+að faðma þann sem grætur.
+að hugga þann sem syrgir.
Blessaður er sá sem lifir hvern dag þannig að hann geti sagt að kvöldi:
"Ég hef lagt mig fram í dag um að gera mitt besta fyrir bæði Guð og menn".
Sem manneskja hef ég rétt til að.
- vera eins og ég er
- segja nei án þess að fyllast sektarkennd
- vera meðvitum um og stolt af andlegu atgerfi mínu
- finna til reiði og tjá tilfinningu
- biðja um aðstoð, jafnvel þó öll sund virðist lokuð
- mér sé sýnd virðing og komið fram við mig sem fullorðna, heilbrigða mannesju
- taka órökréttar ákvarðanir
- gera mistök og standa ábyrg gagnvart þeim
- skipta um skoðun
- segja : "Ég veit ekki, mér er sama, ég er ósammála og ég skil ekki"
- gefa ekki skýringar eða biðjast afsökunar, til að réttlæta gerðir mínar
- vænta þess að skoðunum mínum verði sýnd viðeigandi virðing
- virða þarfir mínar til jafns við þarfir annarra
- láta langanir mínar í ljós, jafnvel þó þær ráði engum úrslitum
- vera stolt af líkama mínum eins og hann er
- þroskast, læra og breytast
- virða aldur minn og reynslu
- lifa því trúarlífi sem ég sjálf kýs
- gera stundum kröfur á aðra
Átti gott samtal í síma við ágætan sveitunga minn í morgun sem varð til þess að ég leitaði þetta allt uppi á netinu - til að skella hérna inn, því að jú - umræða okkar snérust um það að við erum nú bara öll eins og við erum og eigum rétt á því að vera alveg eins og Guð skapaði okkur til þessa lífs, við eigum ALDREI að tala niður til okkar sjálfra eða annarra og hugsa jákvætt til lífsins og náunganna - jákvæð orka er jú það sem heldur samfélögunum gangandi. Tilvist mannanna hér á jörð er ekki nógu löng fyrir neikvæðni og niðurdrepandi umræður.
Verum hress!
Kveðja Sæunn