Nafn:

Sæunn og Halldór Lágafelli

Farsími:

8918091

Tölvupóstfang:

lagafelli@gmail.com

Afmælisdagur:

06.06.2001

Heimilisfang:

Lágafelli 861 Hvolsvöllur Iceland

Önnur vefsíða:

www.lagafelli.is

Um:

Landbúnaður, sala heimaafurða og íbúðarleiga / ferðaþjónusta

Uppáhalds manneskjur:

mamma og pabbi

Uppáhalds matur:

steikt lifur

Eftirminnilegast:

þegar við tókum við Lágafelli

26.04.2007 16:05

Hundur/A dog - (til að vera viss þetta er gamanmál!/to be sure this is a joke!)

Bolabítur til sölu -
Borðar hvað sem er -
Sérlega hrifin af börnum -

Bulldog for sale -
Eat´s everything -
Likes children -


Leiðbeiningar úr kennslubók í heimilisfræði frá 1950
(þetta var konum ráðlagt til að halda hjónabandinu góðu!)

1. Hafðu kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma - Það veitir honum þá tilfinningu að þú hafir verið að hugsa um hann og að þér sé annt um þarfir hans -  Flestir karlmenn eru svangir þegar þeir koma hiem og tilbúinn matur er hluti af því að láta hann finna hversu velkominn hann er heim, en það er karlmönnum nauðsynlegt!
2. Notaðu 15 mín. til að snyrta þig og skipta um föt áður en hann kemur. Hann er að koma heim úr leiðinlegri/erfiðri vinnu og er þreyttur.  Vertu svolítið hress og skemmtileg til að hressa hann við!
3. Taktu upp allt rusl og dót.  Farðu eina umferð um húsið og safnaðu saman skólabókum, leikföngum, pappírsrusli og blöðum.  Renndu svo tusku yfir borðin til að þurra af og þrífa svolítið.  Eiginmanni þínum mun finnast hann koma heim í friðarparadís og það hefur mikð að segja fyrir hann.
4. Snyrtu börnin til. Það tekur aðeins nokkrar mín. að þrífa hendur og andlit og greiða þeim.  Ef þarf, skaltu láta þau skipta um föt.  Þau eru hans fjársjóður og hann vill sjá þau þannig.
5. Sjáðu til þess að húsið sé hljóðlátt.  Slökktu á öllum vélum, s.s. uppþvottavél, þvottavél, þurrkara og ryksugu.  Reyndu að sjá til þess að börnin hafi hljótt. Taktu á móti honum með glöðu brosi.
6. Gættu þess að hella ekki yfir hann kvörtunum þegar hann kemur.  Ekki heldur kvarta þó hann komi of seint í mat.  Þú getur verið viss um að þínar kvartanir eru minniháttar í samanburði við það sem hann hefur þurft að þola yfir daginn.
7. Sjáðu til þess að hann hafi það sem þægilegast.  Láttu hann halla sér aftur á bak í hægindastól eða stingdu upp á því að hann halli sér smástund í rúminu.  Vertu tilbúin með kaldan eða heitan drykk handa honum.  Bjóddu honum að klæða hann úr skónum og hagræddu púðunum undir honum.  Ræddu við hann með rólegri, mjúkri röddu. Leyfðu honum að slaka á.
8. Láttu hann ráða kvöldinu.  Ekki kvarta þótt hann fari ekki með þig út að borða eða á aðrar skemmtanir, reyndu í stað þess að skila að hann hefur fengið sinn skerf af þreytu látum yfir daginn og þarfnast hvíldar heima.  Markmiðið er að gera heimilið að stað þar sem eiginmaður þinn getur fundið frið og reglu og getur slakað á eftir erfiðan dag í vinnunni!

(KARLREMBA?????) hahahahaha

Og fyrir manninn hennar eru þessi skilaboð!

Góður eiginmaður elskar konu sína, rækir heimili sitt og ofhleður sig ekki störfum.
Hann er nærgætinn og umhyggjusamur við hana og lætur hana ekki skorta neitt það sem hann getur veitt henni til þæginda og ánægju!  Hann fer einnig með hana á skemmtanir af og til og lætur hana ekki vera svo störfum hlaðna að hún hafi ekki tíma til að lyfta sér upp.  Afbrýðisemi þótt aðir menn veiti henni eftirtekt er ekki til í góðum eiginmanni því með því gefur hann í skyn að hann beri ei fullt traust til hennar.
Hann leggst heldur ekki upp í legubekk og fer að sofa þegar hann hefur matast eftir að hann kemur heim frá vinnu.  Hann talar við konu sína og lætur hana verða vara við að hann fylgist með störfum hennar og hefur hana ætíð með sér í ráðum og fer ekki á bak við hana með neitt.  Tilhugalífið á aldrei að taka enda og sá maður sem er alltaf jafn kurteis og nærgætin uppsker það að kona hans mun alltaf elska hann jafnheitt og gera hann glaðan og hamingjusaman. 

(ÞETTA FINNST MÉR NÆSTUM ALLT VERA RÉTT OG SATT!!!
clockhere
Flettingar í dag: 388
Gestir í dag: 71
Flettingar í gær: 149
Gestir í gær: 35
Samtals flettingar: 399702
Samtals gestir: 47444
Tölur uppfærðar: 23.12.2024 01:48:15