29.12.2006 13:15
Dekur dag í Byrginu!
Sæl þið öll!
Var búin að sitja við tölvuna í morgun og skrifa og skrifa en svo tók tölvan upp á því að drepa á sér - áður en ég var búin að vista svo ég er komin í enn meiri fýlu núna en ég var í þá - VEGNA VEÐRÁTTUNNAR - svo ég lýsi því yfir - þessi dagur skal haldin uppi í rúmi með lokuð augun og SOFANDI! Nenni ekki enn einn daginn að berjast úti í veðrinu við að þræla - í rigningu með hárið niður í augu! :-(
Finnst ég eiga það skilið að fá DEKUR DAG Í BYRGINU eftir allan þennan þrældóm sem búinn er að vera á mér síðustu vikur! hahahaha!!! 8-þ
(átti að vera Jólagjöfin mín í ár - samkvæmt Halldóri en....hahahahha - fékk bara REIÐA OG REIÐSKÓ!)
Kveðja Sæunn
p.s er að leita að vinnumanni/konu í hrossin frá og með FEB 2007 - ef þið vitið um eitthvað LÁTIÐ VITA!