27.09.2006 21:44
27.sept 2006
Ég er að verða galin af annríki - auk búskapar erum við Halldór að láta krukka í okkur vísindalega séð - hjá Læknum RVK borgar sem lítið skilja í "bændabúskapshaustverkum" og setja tíma eins oft og þétt og þeim hentar til að fá okkur sem erum greinilega svona skemmtileg - eins oft og hægt er á stofu í skoðun!
Krakkarnir eru allir farnir í skóla og gengur vel - Bergrún og Valberg eru allan daginn frá 8-17 og Freysteinn er 3 daga í viku til kl 15 í skóla en 2 fram að hádegi - annan daginn þann fer hann í extra sport!
Við slógum aukalega eitt tún því BEITIN fyrir haustið var svo MIKIL og við kærðum okkur ekki um alla þessa sinu á túnunum næsta vor - auk þess sem BJÖSSI BRÓÐIR hefði bara keyrt grösin niður í svaðið ef hann hefði "komið til að slá kornið" næstu daga!!!
Fékk heimssókn skrifa síðar!