Nafn:

Sæunn og Halldór Lágafelli

Farsími:

8918091

Tölvupóstfang:

lagafelli@gmail.com

Afmælisdagur:

06.06.2001

Heimilisfang:

Lágafelli 861 Hvolsvöllur Iceland

Önnur vefsíða:

www.lagafelli.is

Um:

Landbúnaður, sala heimaafurða og íbúðarleiga / ferðaþjónusta

Uppáhalds manneskjur:

mamma og pabbi

Uppáhalds matur:

steikt lifur

Eftirminnilegast:

þegar við tókum við Lágafelli

Færslur: 2009 Janúar

30.01.2009 21:53

Sýnatökur í síðustu viku -

Last weeks samples from each milking cow!
We use these info. to get a view on how our cows are doing consitering how to save money  on craftfood and so on... how they are doing in their milking by sells and germs and how we can make sure milk that is not fit to the tank - gets sorted out and put for use at calfs - wich is also important to do when you bring young calfs to grown up calfs!

Mánaðarlega tökum við sýni úr kúnum til að geta reiknað út fóðurþörf og spara fóðurbæti - til að taka frá kýr sem eru ekki hæfar í tankinn og til að sjá út eftir hvern mánuð hvernig við stöndum í mjólkinni - og hvaða kýr eru að gera hvað!
Kýr með hæstu frumutöluna enda í kálfauppeldi - og mjólkin úr þeim er mjólkuð í fötu og fer ekki í kerfið! -

Þetta eru sýni - síðasta mánaðar....
30/01/2009    28     148     Sóley            20   2.35   3.01    2.37  0.3   4.94  
 5.6 
30/01/2009    9      154     Nína            189   4.34   3.99    3.18  0.5   4.61  
 5.7 
30/01/2009    5      155     Malín           289   3.45   3.44    2.70  0.6   4.59  
 6.4 
30/01/2009    30     167     Sokka           296   4.11   3.55    2.78  0.6   4.36  
 5.9 
30/01/2009    17     180     Bergþóra        178   5.18   3.99    3.13  0.9   4.36  
 7.0 
30/01/2009    19     184     Ösp             370   4.34   3.50    2.75  1.0   4.51  
 5.9 
30/01/2009    4      189     Skán            155   3.99   3.53    2.79  0.8   4.61  
 6.0 
30/01/2009    2      190     Jessika          29   3.48   3.60    2.85  0.5   4.71  
 6.0 
30/01/2009    10     206     Nadía           174   4.63   3.81    3.06  1.0   4.91  
 5.3 
30/01/2009    34     207     Rassmína         67   2.99   2.80    2.19  0.6   4.79  
 6.1 
30/01/2009    31     213     Síða             68   3.69   3.93    3.13  0.5   4.78  
 7.3 
30/01/2009    15     214     Mía              29   4.59   3.86    3.04  1.0   4.78  
 7.4 
30/01/2009    29     215     Úa               85   4.65   3.77    2.97  1.1   4.73  
 6.3 
30/01/2009    16     216     Inga            212   3.85   3.50    2.73  0.8   4.39  
 5.4 
30/01/2009    20     219     Milla           398   3.35   3.25    2.56  0.3   4.69  
 6.7 
30/01/2009    13     220     Prinsessa       157   4.31   4.19    3.29  0.9   4.27  
 5.2 
30/01/2009    11     221     Tamara           33   3.77   3.35    2.63  0.9   4.69  
 6.8 
30/01/2009    24     222     Mæja             23   3.25   3.07    2.47  0.3   4.95  
 5.2 
30/01/2009    6      228     Carmen           22   3.18   3.39    2.65  0.4   4.70  
 5.7 
30/01/2009    3      230     Næla             24   4.13   3.95    3.14  1.2   5.02  
 4.7 
30/01/2009    12     232     Bangsa           14   3.63   3.34    2.67  0.7   5.00  
 5.5 
30/01/2009    7      236     Auðhumla         28   4.32   3.67    2.89  0.7   4.57  
 6.9 
30/01/2009    8      238     Anja             17   3.98   3.50    2.81  0.8   4.93  
 6.8 
30/01/2009    14     240     Birgitta         85   4.51   3.67    2.92  0.8   4.90  
 4.9 
30/01/2009    18     242     Lýsa             23   4.46   3.86    3.08  0.6   4.71  
 6.4 
30/01/2009    1      246     Floppý           55   3.56   3.50    2.74  0.6   4.44  
 5.1 
30/01/2009    27     247     Hosa             29   3.49   3.36    2.67  0.5   4.94  
 6.7 
30/01/2009    25     250     Laugabjörg       77   4.03   3.67    2.92  0.5   4.78  
 6.1 
30/01/2009    23     251     Baula            14   3.29   3.68    2.95  0.3   4.83  
 6.5 
30/01/2009    21     255     Solla            24   4.05   3.73    2.98  0.4   4.87  
 6.4 
30/01/2009    26     257     -                26   3.48   2.97    2.36  0.3   4.83  
 5.6 
30/01/2009    22     258     -                30   4.31   3.23    2.58  0.8   5.08  
 8.2 
30/01/2009    32     265     -                27   3.95   2.52    1.99  0.7   4.84  
 6.6 
30/01/2009    33    3001     -                65   3.59   3.49    2.78  0.4   4.95  
 5.3 
------------------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi sýna : 34             Meðaltal:        98   3.89   3.52    2.79  0.7   4.74  
 6.1 

30.01.2009 13:01

Getur verið... Can it be...

Halló
Halldór er kominn heim - og ég svaf út í morgun - en vaknaði upp með hræðilega verki í ÖLLUM LÍKAMANUM - svo ég er alvarlega farin að hugsa - GETUR VERIÐ AР ÉG SÉ SVONA MIKIÐ GRÆNMETI að ÉG ÞOLI EKKI AUKIÐ VINNUÁLAG Í NOKKRA DAGA ÁN ÞESS AÐ ÉG FÁI HARÐSPERRUR UM ALLAN LíKAMAN?
Halldór is back home - and I slept in this morning - but woke up with horrible pain all over my body - and then I started wondering - COULD IT BE THAT I AM SUCH A VEGST.BLE  THAT MY BODY DOESN´T STAND EXTRA WORK FOR FEW DAYS WITHOUT ME GETTING MUSCLE PAIN ALL OVER MY BODY! ???

Erna er með hressasta móti - Hresstist öll við að fá móður sína og systk. í heimssókn - og við það að þið eruð búin að vera að hugsa svona hlýlega til hennar - En hún er enn á spítala.
Erna is doing better - She got so happy to see her mum and brothers and sister at the hospital that she got more energy - But also I belive that it has helped her that you have been thinking so kindly and praying for her! She is still on a hospital though.

Í gær fæddist KVÍGUKÁLFUR og ég tók ein á móti - en  Gummi sá um að sprauta kýrina fyrir mig því það var útlit fyrir að hún væri að fá doða - og við unnum úti sleytulaust frá því klukkan átta um morguninn - við að gera allt fínt því Halldór var að koma heim aftur ...
Svo að við komum ekki inn fyrr en um 22 í gærkvöldi og þá var allt svo vel gert að ég efast um að við þurfum nokkuð að gera næstu  daga! hahahaha - (tökum bara hey og vatn af beljunum og þá þarf ekki einu sinni að mjólka! hahahah - FRÁBÆR HUGMYND!???)
(ÚBS ekki senda eftirlitið á mig - þetta er bara AULAHÚMOR!!!)
Yesterday we got ANOTHER FEMALE CALF - and I delivered it alone - but Gummi helped me to get Kalsíum and Magnesíum into Silví´s body - so that she wouldn´t get a cramp after the birth and then all yesterday got into an endless work off making everything so nice for Halldór - for he was comming home again - that today - we do not have to do anything but milk - (perhaps we should also have took the water and the food away from the cows - so they wouldn´t give any milk and then we could have also NOT MILKED!) hahahaha - GREAT IDEA??? ( ö - hey - do not send the supervision team after us! -... this is just a joke!)

Síðasti frumumiði hljóðaði upp á 130.frumur og 5 gerla - próteinið er 3.45 og fitan 4.71 -
man ekki alveg en minnir að úrefnið sé í kringum 6.5 - einhversstaðar -
Svo þetta er súper fínt fjós hjá okkur þessa stundina!
Allar kýr í kerfið og mikil mjólk - um 650 L á dag og tankurinn alltaf fullur!
Last check off the milkfabric - showed our milk has only 130 sells and 5 germs; prótein is 3.45 and the fat 4.71 - can not remember how much the lactosa is but around 6.5 -
So you see our milk is super good at this point!
All cows go into the system and the tank is totally full when the milkcar comes here every secound day - around 650 liters per day!)

Það er snjór yfir öllu - búið að snjóa grimmt á kvöldin og nóttinnni síðustu 2 daga en svo er sól og hiti á daginn oft um +4°C; algjört logn og mjög fallegt um að litast en á kvöldin er mjög kalt - þannig að þetta eru rosalega sveiflur í veðrinu - (í gærkvöldi var hitinn -8°C á mæli og snjókoma) -
Outside we have snow all over - it has been snowing during evenings and nights - for the last 2 days - but then during days it is sun and hot outside - or up to +4°C - and no wind - perfect weather for outdoor activity - and then during evening it gets very cold - yesterday eve down to -8°C and wind and snow - ... so you see it is a huge weather change! :-(

Gummi frændi er að fara í helgarfrí um helgina - Hann er búinn að smíða hurðina fyrir fjárhúsið (þar sem rúllan á að fara inn) en hann kemur svo eftir helgi aftur - Um helgina ætlar Kerstin Langenberg - fyrrum vinnukona og vinkona okkar að vera hér hjá okkur - og það verður rosalega gaman að hitta hana loksins - ... Höfum ekki séð hana síðan síðastliðið vor!
My ungle Gummi is going to go home during this weekend - He has finished to make the door where the hay is going into the sheepstable - but then after the weekend he will come back again - ... During this weekend we will get a visit from our exworker and dear friend Kerstin Langenberg - ... and it will be sooooooo nice to have her here with us finally - for we have not seen her here since last spring!

Hér er Kristbjörg búin að gera rosalegar breytingar á húsinu með sínum tuskutrylling - og það er svo gaman að eiga heima í húsi sem er allt hreint - ... Verst að það skuli ekki vera hægt að ættleiða konur sem eru komnar á áttræðisaldurinn - og finnst gaman að vera úti í sveit! :-( :-)
Kristbjörg has been here helping me to clean the house last days - and it is so nice to live in a house that is clean like there is a hospital run here at Lágafelli - ... I wonder if you can adoped a lady wich is already on her 80´s -... and likes working on the country side! :-)))

Have to go...  Verð að hætta - ... það bíður heilt fjall af þvotti - a mountain off loundry is waiting for me downstairs!
Sæunn

28.01.2009 22:10

Bóndinn ÉG

Sæl Allt gengur vel hér á bæ -
ALLAR KÝRNAR LIFANDI - kálfurinn sem átti að koma í dag - ætlar eitthvað að láta bíða eftir sér en "ég óska eftir að allt gangi vel" - NENNI EKKI AÐ EIGA VIÐ NÝBORNA KÚ EIN! :-/
(reyndar með Gumma hjálp EN HANN ER BARA BORGARBARN og kann ekkert á kálfa!)
Halldór er sem sagt enn fyrir austan -
Erna er eitthvað betri en hún var þegar þau fóru öll austur og hún fékk í dag að fara heim af sjúkrahúsinu til að fara HEIM  til sín í heimssókn - en var svo flutt aftur á spítalan í kvöld - því ferðalagið reyndist henni erfitt - Þau systk. eru öll á staðnum og Alma líka - ásamt fjölsk. Ernu - og eins og staðan er - er ekkert vitað um framhaldið -
Held að Erna sé svona hress af því þið hafið verið að biðja fyrir henni - og ég bið þess að því verði haldið áfram - ÉG ÆTLA ALLA VEGA AÐ LEGGJA ALLA MÍNAR BÆNDIR TIL HANDA HENNI ÞESSA DAGANA - og TIL HANDA MAGNÚSI MÍNUM -
Vona að þið eigið góða nótt -
Sæunn

Helló My farming is doing fine
All the cows are still alive - but the calf that was to be born today - is still inside his mum - waiting for Halldór to come home - ... OR I HOPE SO! :-/
Halldór is still near Egilsstaðir where his sister is - very sick - and the family doesn´t know how it will go - but Erna (Halldórs - sister) - was somehow better today - from her pain and I belive the pray I asked people to say for her - really helped SO KEEP UP YOUR GOOD THOUGHTS FOR HER FUTURE and HEALTH and PRAY FOR HER - THANK YOU!
Also for Magnús Finnbogason - the former owner off this farm - - They both shure deserve it!
Hope you have a good night!
Sæunn

26.01.2009 13:49

Fannhvít

Helló Sabine
Fannhvít is on thouse pictures at the front page on my homepage -
I took them 2.jan 2009 - so they are about new - but I can make some more if you like to have them - but today I am to bussy becouse Halldór is with his mum, and brothers and sister on his way to visit his very sick sister Erna - on a hospital near Egilsstaðir - and becouse off this I have very little time to play around - I have to manage the farm with our worker - so... I do hope you like these photos and what I have told you about Fannhvít - I am shure her trainer Rikki would also ad some info if you need them to make up your mind - but... the prise doesn´t change -
I have to get at least what I already have spent on her training! :-) -
Till I am back - I hope you have a good day!
Thanks
Sæunn

Sæl verið þið
Hér er verið að nota tölvuna mína í fréttafluttningi vegna mögulegrar hrossasölu -
Ég verð að vera stuttorð - Halldór er ekki heima í dag og sennilega ekki á morgun heldur -
Erna mágkona er mikið veik á spítala austur á Héraði og það fóru allir í Álftarhólsfjölsk. að hitta hana - Vona að þið sem þekkið hana hjálpið til við fagrar hugsanir til handa Ernu - því að hún á vikilega erfitt núna og ég bið þess að þið biðjið fallega fyrir henni líka!
Vona að þið eigið glaðan dag - og ég kveð að sinni -
Sæunn

24.01.2009 11:03

Brandarar -

Heyrt á bar á Wall Street -
Þessi kreppa er ömurleg - ég er búin að  missa allt en sit samt uppi með konuna!

This was heard on a bar at Wall street -
This horrible time off crises sucks - I have already lost everything - but my WIFE is still there!

Og

2 svertingjar stóðu á brú og voru að pissa yfir brúarhandriðið -
þá segir annar við hinn -
ÚFF - rosalega er áin köld maður!
og hinn svarar -
já en það er samt ekkert miðað við það hvað botninn er hrjúfur!

2 black men stood at a bridge - having a piss over the bridge - safetywall
when one said to the other...
Burrrrr - the water is horrible cold - dued!
and the other one answered ... -
well - that is nothing compaired to how hard the bottom off the river is!

hahhahahahahah

24.01.2009 10:45

Rekstur

Buisness

Hluti af því námi sem ég hef valið mér yfir veturinn á Hólum fjallar um Rekstur -
part off the study´s I am going to learn in Hólar will be about Buisness -

Og ég er búin að vera að reyna að versla bókina Small Buisness Bible - eftir Strauss. síðan ég skráði mig til leiks á Hólum en ekki getað verslað hana - þar til ég frétti af því að Bóksala Stúdenta sérpantar bækur af netinu fyrir fólk - eftir þeirra upplýsingum - sem segir mér og ykkur hvað við eigum góðan Háskóla - og hvað það er frábært að geta leitað svona að áhugaverðu efni en verið örugg um að enginn komist í kreditkortin manns á netinu -
Bókasalan sér um þann pakka fyrir þig og þú bara býður!
Since my study´s started I have been trying to buy The Small Buisness Bible - by Strauss - but have not been albe to buy it - for everywhere I have to sign up on internet - but then I found out we have something called Bóksala Stúdenta - special bookshop for students - wich you can contact over internet and let them know what you are looking for over internet in books, papers or articles - they order it for you and then you just have to go there and pick up the books and pay!
Don´t you think this is fantastic!

Það sem ég mun koma til með að læra í vetur er
HVERNIG FULLKLÁRA Á VIÐSKIPTA HUGMYND SVO HÚN VERÐI AÐ VERULEIKA!
(stóra ritgerðin mín í vetur - sem ég á að skila 12.apríl!)
og
Hvernig þróa á viðskiptahugmyndir, hvernig kaupa á fyrirtæki sem þegar er í rekstri, hvernig skrifa á fyrirmyndar viðskiptahugmynd upp á blað svo aðrir skilji!,
Hvernig á að ráða starfsfólk, verðlauna starfsfólk og reka á starfsfólk,
bókhald og tryggingar, Markaðssókn og auglýsingar - og fleira og fleira!

SENNILEGA HEFÐI ÉG ÁTT AÐ BYRJA Á AÐ LÆRA ALLT ÞETTA - ÁÐUR EN VIÐ KEYPTUM LÁGAFELL - og AUMINGJA STARFSFÓLKIÐ OKKAR!!! hahaha

What I will learn this winter is HOW TO MAKE A BUISNESS IDEA SO COMPLETE that IT MIGHT COME TRUE IN REAL LIVE!
(wich will be my goal this winter - ... for this I have to make as an Essay - wich have to be delivered 12. april. 2009)
and this;
  • Developing your business idea
  • Buying an existing business or franchise
  • Writing a winning business plan
  • Hiring, rewarding, and firing employees
  • Branding your business
  • Bookkeeping and credit made easy
  • Insurance and legalese
  • Marketing and publicity
  • Home-based businesses
  • Operating and growing on a shoestring budget
  • Common mistakes to avoid
And now I know it! POOR STAFF OVER PASSED YEARS! - or ...  WHY DIDN´T I LEARN THIS BEFORE I BOUGHT LÁGAFELL - 2001??? hahahaha

En núna er kaffitími hjá fólkinu á Lágafelli
Langaði bara að segja ykkur frá því hvað Bóksala Stúdenta er frábær!
But now it is coffee time at Lágafelli -
I just wanted to tell you - how great bookshop we have by Students in the University!

Kveðja
Sæunn

22.01.2009 21:01

Kreppuhúmor!

Hvað er sameiginlegt íslenskum banka og íslenskum stripplingi?

Báðir eru með dýrmætustu eigur sínar frosnar.

22.01.2009 20:24

Latest news!/Nýjustu fréttir

Hæ hæ
Héðan er svona lala að frétta -
Veit ekki hvaða álög þetta eru en hér  hríðfalla málleysingjarnir eins og þeir fái borgað fyrir að drepast hjá okkur og mér er ekki skemmt yfir því enda vil ég fyrir alla muni halda þessu öllu lifandi - en það er hart þegar skepnurnar eru endalaust að koma sér í vandræði sjálfar!
Heimalingurinn frá því síðasta sumar drapst í gær úti í fjárhúsum - HEFUR SENNLEGA ÉTIÐ EINANGRUN ÚR VEGGNUM FÍNA sem við vorum að reisa fyrir jól - ... :-(  Og það var ekkert hægt að gera fyrir hana - en þetta rifjaði fyrir mér söguna af því þegar við Valur bróðir vorum lítil og mamma og pabbi fengu til sín gesti í eyjum sem áttu smábörn á þeim tíma - ... og eftir góðan vinnudag við að gera kjallarann í húsinu nothæfan - þá vorum við krakkarnir kölluð inn að borða en LITLA SYSTIRIN - sem VIÐ ÁTTUM AÐ VERA AÐ PASSA - ÞURFTI EKKERT AÐ BORÐA - því að hún var búin að borða svo mikið FRAUÐPLAST! :-))) hahahahaa -  Velti því fyrir mér nú - hvernig meltingarstarfsemin í líkamanum á henni er ef LAMB drepst af því að éta einangrun innan úr vegg?
I have only lala news for you!
I just do not know wich kind off desteny we have over our livestock - for it is like they get paid to die in our hands these days - ... and I am very sad over all off this!   But then again - why should I be sad and not totally "irretaited" when it is the animals wich are making themselfs having problems that eventually couse them their live???
LIKE THE LAMB FROM THIS SUMMER - that got milk from a bottle - and was to live - but died yesterday - for it ATE the "warming-filter" that was to keep the house where the sheep are living warm enough - ... :-((( (from inside the wall we were building before christmas!) -
But when I found out what she had done and watched her die becouse off this - I remembered - when I was a kid - in Vestmannaeyjar - and my mum and dad had guest from ICELAND - wich had two very small children with them that I was to take care off - ... but did it so well - the little girl didn´t have to eat her supper - becouse she already ate so much warming-plastic - from inside the wall - off the house my mum and dad builded when we lived in Eyjar - so...
I guess her stomage has never been healty after seeing what such thing does to a lamb!? :-)

Well -
But then I am in school -my computure has been very boring today - frozen - ... not opening ... I can´t find out were to give in the papers that I was to give in today and... well - I AM DEAD STRESSED over this situaition ..... but perhaps they give me 1or 2 weeks to learn how to do this ... after that I admit - perhaps I am to stupit for all this work???
En að öðru
ég er í skóla og tölvan mín er búin að láta eins og bjáni í allan dag - frosnar og opnar ekki skjölin sem Hólaskóli sendir mér og vill ekki lesa talgærur og... - svo get ég ekki fundið út úr skólavefnum hvernig ég á að senda inn pappírana sem ég átti að skila inn í dag ... en 
ÉG viðurkenni að ég er drullu stressuð yfir þessu - - og sennilega gefur kennarinn minn mér alveg 1-2 vikur að læra á vef-umhverið fyrir Hólaskóla á vefnum - þetta allavega eru svona huggunar orð sem ég er að reyna að temja mér ´-... áður en ég viðurkenni að ég er etv of heimsk fyrir svona vinnu??? :'(((

Fór í Reykjavík í gær -... að láta fjarlægja saumana - og skurðurinn á þeirri hægri er enn meiri en á þeirri vinstri. Hinsvegar lítur hann mun betur út ... Ég hef verið svo góð að vera inni og láta aðra þræla ... en Læknirinn bað mig um að hafa mig hæga í að minnsta kosti 2 daga enn - vegna þess að skurðirnir eru tæplega nógu vel grónir til að treysta að þeir opnist ekki aftur án saumana - svo ég er ... búin að vera úti með Halldóri í allan dag - að gefa hrossum og heimssækja Halla og Helgu á Búðarhóli - (í ákv. erindagjörum v. hrossana) og ... núna lofa ég að vera alveg góð á morgun... þá eru 2 dagar liðnir ! EKKI GÓÐ!???
Went to RVK yesterday - to have the stiches remooved - ...and the cut I have on my right arm is much more then on the left one - I can tell you... - but it looks much better - for I have been so good this time - NOT DO DO ANYTHING to get infected or damage my bandage - but ... then my doctor asked me to stay still for 2 more days - becouse the cut was hardly closed enough to take the stich - ... so I have only gone with Halldór to feed the horses today - and ... with him on the traktor to visit a naigbour becouse off the horses - so... IF I PROMISS TO BE AS GOOD AS POSSIBLE TOMORROW - my 2 days promissed should be covered - IS NOT IT???

Það er rosalega hálka hér yfir öllu - það er hiti á daginn en ísbreiðan er þvílík að það er varla hægt að fóta sig um úti við og hrossin eru á mjög hálu svelli - ...
Samt var smalað í fyrradag - til að senda Jónu systur mömmu og hennar manni hrossin þeirra og koma þeim á bíl í gær og 2 folöld áttu að fara í flug um helgina en fluginu var frestað um viku svo að núna eru 3 hross á húsi á Lágafelli - Glaður hans Gumma frænda - sem býr hér og starfar með okkur á meðan ég jafna mig í hendinni og svo þessi 2 folöld - frá Heike P. - en þau eiga að fljúga þar næsta laugardag - fyrst fluginu var frestað um viku!
It is horrible slippery outside - frost all over like on a iceskate - track - but ... still we have had no frost at all all day for many days - ...How ever we needed to get horses home to collect them for their flight to Europe and for transport to Reykjvík -... How ever the flight was cancelled - so now we have two foals inside the horse-stable - waiting for their next scedulet flight and then Glaður was put inside - since his owner Gummi is here working for us at the moment - and just so he doesn´t forget anything off his training!

Það er þorrablót um næstu helgi - Ég get ekki sagt að mig langi mikið út að skemmta mér með lasna hendi ... en ég ætla að láta mig hafa það ... Haltur leiðir bara blindan - því á sama borði og ég verður Jórunn vinkona og hún er eins og ég nýkomin úr aðgerð - reyndar á mjöðminni en... það verður þó allavega væntanlega ein heil kona úr þessum tveimur biluðu - á fremsta bekk í salnum! hahahaha -
Next weekend we have Þorrablót in Austur-Landeyjar - that is when all people around here come together for a GALA-dinner at the communitycenter wich is near by and dance the night away ... (dinner starts around 20.30 and last people out off the house are normally leaving home for milking around 06.00 in the morning AFTER!) And we dress out in our finest dress and eat traditional ice-food = as made in the very old days and then there is homemade intertainment - from the people around here! ... It is super fun and I wish you would all be there ... I am not very up to danceing and drinking right now - with a bad arm - but... I will sit near by my friend Jórunn ... - wich also has resently had an operaiton (on her hip) -... wich makes the two off us into one COMPLETE WOMAN - if we are sitting next to each other -
AM I RIGHT OR WHAT???

Bestu kveðjur til ykkar allra...
All my best to all off you...
Sæunn


18.01.2009 20:41

Nýtt ár :-(((

New year :-(((

Síðan ég byrjaði að búa með Halldóri höfum við alltaf tekið einhverjar flensur í Janúar - og núna eru 3 af 5 búnir að liggja - ... OJ BARA -...
Ég lá í móki í alla nótt - Hélt að ég væri hreinlega bara DAUÐ - en Halldór sagði að það væri svo sem allveg í lagi - Það væri svo til  frostlaus jörð - versta væri að ég væri NIÐRI Í KJALLARA - og hann þyrfti að finna ráð til að koma mér út!
Verst fannst mér samt að Valberg greyið varð einn að berjast við sín veikyndi í dag - því að ég var alveg út úr heiminum og gat engum hjálpað! - ... Og hann er þvílík hetja í mínum huga - aumingja litli karl! -
Since I started my life as Halldórs girlfriend and mother off our children our house has always been SICK sometimes in Janúar - that is someone has gotten the flue and passed it out to the other family members - well ... I GOT SICK DURING THIS NIGHT AND WAS HORRIBLE - thought in times I was dead and on my way to heaven -... Halldór said that wouldn´t be a problem for there is no frost outside and easy to make a hole to put me in - worst thing was that our bedroom is downstairs and... it wouldn´t be easy to get me outside!

Núna eiga bara Bergrún og Halldór eftir að leggjast veik - OG GUMMI en hann er BARA VINNUMAÐUR og má ekki MISSA DAG FRÁ VINNU! hahahha -
En ég vona samt að þau sleppi við þetta ÖLL SÖMUL - því þetta er þvílíkt ógeðsleg flensa!
Ha ... but Now I am just waiting for him and Bergrún to get sick to... -
and Gummi but Gummi is our slave so he really has no right for days to be sick! hahaha
Valberg had to fight his sickness alone - for I was out and couldn´t moove but he surrvived this alone and in my eyes he is a real hero from making it! :-)

En svo eru það dýrin mín -... í gær lásum við nr af öllum kindum í fjárhúsinu og komum þeim öllum í norður húsið til að þau sé auðveldara að gefa og tókum hrútana úr .
Fundum svo eina hryssu í dýpsta skurðinum á Landareigninni og þurftum að drösla henni í böndum á þurrt aftur - því hún var alveg búin á því eftir volkið!
Einn hestur er svo dauður á klaka hér efra - sem er hræðilegt því að hann er ekki okkar eigu!
En hann var háaldraður orðinn greyið. -
But then we have to go to the farmlive - yesterday we ready all sheep nr and got them all in one group in the NORTH HOUSE off the sheepstalbe - for then it will be more eacy to feed them and then the malesheep where sent on holiday again... their SEXLIVE IS FINISHED THIS YEAR - hahahaha
We found one mare in the "skurður" / the waterdrain system - and becouse off how cold she had gotten - she couldn´t moove - so we had to get her up from there by rope and traktor - and she is now ok - LUCKY US IT WAS NO FROST OUTSIDE and we found her!
How ever we have an old friends horse found dead on an icy lake up in our fields - and that is always so horrible sad - but.. he was already so old that poor one!

Tommi er himinlifandi þessa dagana - Spyrill hans er að meika það í höndum nýju eigandanna og ég geri ekki annað en að naga á mér handabökin því að ég á EKKERT undan hestinum - ... hahahaha - ALLTAF AÐ GRÆÐA - Jú ég á einn rauðan tvístjörnóttan hest síðan í sumar -
Tommi is very happy these days - his Spyrill - wich he just sold - is making it as a compat.horse and showing all his best these days - so I am very sad off keeping NO MARES after him alive after last summer -... The only foal I have from him is Hríma son!
I will never be ritch! :-(((

Spyrill fra Reykjavik


hestur ... wildlife ...
4 mín 39 sek
www.youtube.com/watch?v=G8CEEMk1e2k




vissi að þessi hestur yrði stjarna!  Vona bara að hún eigi eftir að verða skærari!
I knew this horse was going to be a star! I just hope it will shine extra bright!

Hummm - fleira er ekki að frétta - nema ég er komin með þvílíkan kvíðahnút í magan yfir fyrsta verkefninu sem ég á að skrifa fyrir Hólaskóla - JARÐFRÆÐI ÍSLANDS! :-( HJÁLP!
(þ.e.a.s bara stress yfir TÖLVUNNI og skilum á netinu!)
Hummm - well - there are no more news - only thing is that I am dead worried over my signed essay for the school - about GEOGR./ ICELAND - ... :-((( H ELP!
(this stress is mostly about the computure and the internet - delivery off my essay!)

Bless you!
Sæunn

16.01.2009 11:52

Of hægri sinnuð!

Halldór er með svo mikinn AULAHÚMOR  -stundum ... hahaha
Veður um allsstaðar þar sem við förum og tilkynnir að ég sé svona á hendinni - því að ég hafi verið of HÆGRI SINNUÐ og hann hafi verið að LÁTA LAGA MIG!
Nú er ég sem sagt alveg að verða alveg til VINSTI  og alveg GRÆN!
Þannig að AÐGERÐARLEYSI HEFÐI SENNILEGA MARG BORGAÐ SIG??? hahahaha
Svona er þetta þegar maður getur ekki verið AÐGERÐAR - LAUS!

Sæunn


We talk off right arm and left arm in politic -  Halldórs dad was "for far left" - but ... well
to tell you the truth I have never been very much for politic - only want the best for everyone - but now suddenly my ARM is this way for HALLDÓR was having me fixed -
I WAS TO MUCH TO THE RIGHT! -
so .... this operaition is now suddenly a politic matter !
Perhaps I just should have had the arm like it WAS BEFORE???

This is what you get when you start hanging out with the wrong GANGSTERS!

Sæunn

16.01.2009 11:06

Bændamál Farmermatters



Langaði að segja ykkur frá því að við bændur erum í kreppunni að upplifa alveg ótrúlega hluti -
það á að leggja af svo kallaðar "verðbætur" - en það eru peningar sem áttu að tryggja það að;

1. Framleiðendum búvöru verði tryggð afkoma sem er sambærileg við afkomu verkafólks og iðnaðarmanna.

2. Landsmönnum verði tryggt stöðugt framboð landbúnaðarafurða með sem lægstum tilkostnaði og án þess að langtíma hagsmunum og öryggi sé stefnt í hættu.

(tekið úr 75 erindi - Alþ. um stefnumörkun í Landbúnaði)

Þetta þýðirfyrir mig sem bónda að ég hlýt að verða að hækka verðið  á afurðum mínum -
og þar með hækkar neysluverð út úr búð - sem mundi þýða hækkun á öllu öðru!

Okkur bændum er gert að greiða afborganir af lánum MEÐ VERÐBÓTUM -
En til hvers - ...

Það er búið í búvörusamningi að festa inn VERÐBÆTUR til bænda og komið í sáttmála milli ríkis og bændastéttarinnar en svo er hægt einhliða að LEGGJA ÞÆR NIÐUR?

Hér finnst mér bændum VANTA SÉRFRÓÐAN MANN TIL SAMNINGAVIÐRÆÐNA - sem veit hvernig bæta á úr ástandinu en ... ég held því miður að mótmæli nokkurra bænda og hótanir um frekari aðgerðir á Arnarhóli - séu bara til að gefa ríkinu aukinn tíma til að  hunsa okkar rétt

Við hefðum átt að vera búin að tryggja okkar afkomu betur! (með því að ráða til okkar
ESB; lögfróðan - ... samningamann eða Sérmennta ráðunautana okkar í að lesa þessi bákn sem ríkisstjórnin virðist vera að fara eftir í öllu sínum aðgerðum þessa dagana!)

Þetta er ekki í lagi og veldur óstöðugleika meðal bænda og rýrir afkomumöguleika og þetta veldur óstöðugleika á matvörumarkaðinum því ég er ekki viss um að ég vilji selja
17 hross í sláturhús hjá SS og fá fyrir það 150.000 isl/kr -
eða láta frá mér nautkálfa og fá fyrir það 1000 kr ísl -
Það er ekki  hægt að lifa af svona tekjum ... og því ættum við endalaust að láta bjóða okkur það að horfa í kjötborðið - þar sem saltað hrossakjöt er í boði fyrir yfir 500 kr kg -


Kjötiðnaðarmaður sagði mér það í heitapottinum á Hvolsvelli um daginn að honum finnist það synd og skömm að vinna ALLT ÚR INNMATNUM sem fellur til - en vita að bændur fá ekkert greitt fyrir -... SEM ER SANNLEIKUR - hingað koma uppgjörs nótur upp á kr 0 - og stundum á þremur A4 blöðum - þar sem týnt er til - INNMATUR - kr 0 - Húðir - kr 0 og Síður - kr 0!
Allt vara sem sláturhúsið síðan kemur í verð og selur!

Og það er hlátursefni að bændur skuli ALLTAF samþykkja það að láta umframmjólkurlíterinn fyrir innan við helmingsverð - og ég sem framleiddi (reyndar stóðu Halldór og Inga sig svona vel í mjöltum þvísýnið er tekið 02.01.2009) úrvalsmjólk og fæ greitt fyrir það í smámynnt aukalega - (að mig minnir 2 krónur; leiðrétting óskast ef þetta er rangt!) - 
samt hefur mjólkin nær aldrei verið betri á bænum en akkúrat núna;
Fruma 81, gerlar 6, prótein 3.44, fita 4.17 og úrefni 6.6 - hvers vegna á ÉG að láta þessa mjólk á hér um bil sama verði og þeir sem framleiða í fyrsta og annan flokk???
ÞAÐ ER EKKI EINU SINNI GREITT AUKALEGA FYRIR GÆÐAVÖRU - þannig er málunum komið fyrir hjá afurðastöðvunum!

Bændur hafa ALLTAF - verið settir á lægra þrep en aðrir VINNANDI MENN í þessu þjóðfélagi og samt er ætlast til að sveitir lands séu "landanum" boðlegar til útivistar; ferðalaga og aðdáunar - Fólkið vill geta farið út í búð og keypt í matinn og fengið vörurnar fyrir ekki neitt en kvartar svo og vill fá EVRU og MEIRI INNFLUTTNING - heldur því fram að landbúnaðurinn í landinu sé úreltur og ekki boðlegur fyrir sig -

SAMT ER BÚIÐ AÐ STYLLA ÞV'i UPP ÞANNIG AÐ ÞEIR SEM GRÆÐA MEST AF LANDBÚNAÐINUM Í LANDINU - eru milliliðirnir og NEYTENDUR!

Vanþakklæti segi ég og bendi á að EKKI VILDI ÉG LIFA Í KREPPU Í BORGINNI ef aðeins hefðu verið til INNFLUTTAR MATVÖRUR og ef búið hefði verið að leggja landbúnaðinn okkar af... - BÆNDUR ERU BESTIR !!!

Sæunn Þórarinsdóttir
Lágafelli

15.01.2009 19:12

Ótrúleg þessi börn!

Kids are increatable!

Tölvan hefur ekki haldist í gangi nema nokkrar sek. í margar vikur - á nýju ári fór hún varla í gang en svo fór Freysteinn að fikta og hún VIRKAR!
The computure has not been able to stay focust without turning itself down for many weeks - and then on our new year it was only going on by LUCK - but now Freysteinn has been - working on it and it WORKS!

Jæja - en ég hef hafið nám - búin að borga skólagjöldin og lesa í gegnum fyrstu pappírana sem mér  hafa borist þarf að kaupa mér bók sem heitir SMALL BUISSNESS - svo að ef þið eigið hana í hillu heima og viljið lána mér þá vil ég gjarnan kaupa en ... Náttúra Íslands kúrsinn er eins og allir hinir NÁTTÚRU - kúrsarnir; fjalla um eldgos - lífríki - og uppbyggingu landsins -...
Well I am at school - have finished to pay for my schooling and read from our first curse papers and then I am to buy a book called SMALL BUISSNESS - so if you have it at home I like to have it as RENT ... but - the curse Nature in Iceland is all like the studys I have done before - about vulcano´s, eruptions and live in Iceland from settlement ...

Hendin á mér er bara nokkuð góð og mikið minna bólgin en hin hendin var nokkurn tíma og hreyfigeta fingra mikið betri -... en ég er með GUMMA FRÆNDA  í þrælavinnu svo að ég ætti ekki að þurfa að fara út eða nota hendina ... en heimilisverkin eru bara unnin ef ég tel mig geta það og svo garga ég GUMMI eða HALLDÓR - eftir því hver er mér næstur ... skera ost, smyrja brauð, hella mjólk í könnu ex.... og það virkar ótrúlega að fá þá til að heyra í mér! hahahaa
My arm is supergood - much better then the other one was after the operaition - but the hand is much more flexible and the fingers too -  I have had Gummi here to help me - and Halldór and ... therefor I do not have to go out... - and I only do the house when I can handle it -
I can´t cut cheese, put butter on bread, poor milk and so on... and still everyone can hear me when I cry out for help! :-)))

Snjórinn sem kom í vikunni er núna á hröðu undanhaldi undan rigningunni - og það er hálf leiðinlegt fyrir karlana að vera úti í vinnu - ... en það er svo sem ekki mikið sem hægt er að gera nema mjólka kvölds og morgna og gefa hrossum og kindum - því að dagurinn er svo stuttur - ... hinsvegar finnur maður alveg hvað birtuna lengir fram eftir degi og bráðum kemur uppáhaldsmánuðurinn minn Febrúar með allri sinni birtu og breytingum dag frá degi!
The snow wich fell here last week - is now running way with the rain - and the men are dead borad off having to be outside working - ... but there is not much to do outside - for the day is still so short - .,,,How ever you can almost feel how much more light we get every day -
My favorit mounth Feb. is almost here ... and then light is getting so much longer that every day matters for the future! ;-)))

Freysteinn vaknaði í nótt með gubbupest - og ældi hér allt út - en... svo er hann bara nokkuð hress í dag - en mér virðist Bergrún ekkert sérstaklega hress - svo ætli það sé ekki alveg að koma að henni - ...
Freysteinn got very sick by throughing up last night and didn´t go to school this day - but he is ok now - How ever it looks like Bergrún is getting sick she is so white and tired ...

Það er komið að kveðjustund
Vona að þið hafið það sem best og séuð heil heilsu og hamingjusöm...
Now is time to say Goodbye
Hope you are doing fine and that you have good health

Kisses/kossar
Sæunn

13.01.2009 17:58

Ekki AÐGERÐARLAUS

Not without my other half

Er með bilaða tölvu - en hef núna lagt í sjóferð - og er komin í skóla - norður á Hólum -
Skráði mig í tvö fög á vorönn; Rekstur smáfyrirtækja og Náttúra Íslands
En svo verð ég bara að setja fingur í kross og vona að tölvumálin leysist -

Var skorin í gær á HINNI HENDINNI - og nú má með sanni segja að ég hafi  ekki verið AÐGERÐARLAUS í vetur -  Eftir aðgerð þarf ég að vara mig á "HÆGRI" reglunni - því ég er óttalega HÆGRI SINNUР núna en ætti ekkert að gera nema gæta mín á Hægri vængnum!
hahahahaha - Rosalega er ég eitthvað RÉTTSÝN! hahahaha -

En ja - héðan er allt gott að frétta - met mjólk; gæðamjólk; yfir 1300 L eftir 2 daga - og það er frábært - á þessum síðustu og verstu tímum! :-( Seldum eina kú á Búland í dag - vegna plássleysis en það er að koma burður aftur og við verðum að fara að taka til!

Ég er ekki ánægð með sjálfa mig - eins og þið lásuð í síðasta meili en ... mér tekst vonandi að ná mér upp úr depurðinni - þegar ég hef náð áttum í lífinu - en já ... það er stundum leitt að vera ég!

Krakkarnir eru breyttu prógrammi í skólanum - koma heim kl 17 Mán, Mið og Fimmtudaga en Þriðjdaga kl 15 og Föstudaga kl 13 - áður voru þau 4 daga til kl 17 og einn til 13.
Freysteinn hefur verið hækkaður um bekk - i; í Ensku - er með 9 bekkjar námsefni - en ég verð að viðurkenna að ég varð fyrir vonbrigðum með haustprófin hans - svo hann verður að taka sig á fram á vorið til að gera betur í öðrum fögum! -

Bergrún nennir ekki að stunda neinar íþróttir eða tómstundir og því var henni beint á braut lista - ... en auðvitað fer hún í skóla-leikfimi - það gera öll börn og er bara hollt!

Gummi frændi minn er hér á meðan ég er með "HANDS UP" - og er þrælað út frá dagsbirtu til sólarlags - enda höfum við aldrei haft svona "FRÆNDA" sem getur allt í vinnu!
hahahahaha -

Vona að þið hafið það sem best -
Ég er hætt ... enda leyfir hendin á mér ekki meiri vinnu og ... tölvan fer að frjósa -
Hún er búin að vera OF GÓÐ í þetta sinnið!

My operaition went fine - I am back home -with hands up and am supposed to do nothing - and becouse off my boring computure I do - but it is so boring so... I have spent this hole day trying get an result off how to enter Hólar - school for students off Travel-industry and well I have result - from today I am a student off Hólar and start with learning Economic and Natual environment in Iceland - so... HANDS UP FOR THIS!

Our kids are doing fine in their school -Freysteinn has been exsepted into an higher class for English - and is now  2 year faster then his class mates! FANTASTIC -
How ever he has made a terrible scoure off exs. in winter-test so his spring tests have to have better result if he wants to be called a superstudent like it has always been! :-(

We have my cousin Gummi here to help us and ofcourse we have took out the WIP - just like all other workers have got to known whyle they work for us! And he is only allowed inside the house after sunset - even though he wakes up by first crack off dawn! :-)))
SLAVERY AT LÁGAFELLI AS ALWAYS!!!

We have never had so much milk - it is over 1300 L - per two days - and we already sold one cow - for there is not enough space in our cowstable for all off them! KATA WENT OFF NOW -
Well - I have to go...
My computuer is dead half the day by turning itself off just like that and no matter what we do it doesn´t go on again... so this time it has been just to good!
But my arm is also killing me ... after eating 6 VERY STRONG PAINKILLERS from 8.00 in the morning - and I am only allowed to eat 8 during each 24 hours - so... :-(((((
Have to go cry somewhere ...

Till I´ll be back!
SÆunn

12.01.2009 18:32

Að fyrirgefa eða fyrirgeyma

To forgive or forkeep!

Að undanförnu hef ég átt í heilmiklu stríði við sjálfa mig! Ég er búin að orga af reiði og grenja af óhamingju og klífa tilfinningaskalan frá dýpsta botni til hæstu hæða og ég er enn að berja mig í sekt sem hefur valdið því að ég er alvarlega búin að vera að spá í því að leita mér faglegrar ráðgjafar og reyna þar í frá að byggja veröldina upp á nýtt. 
En ég hef þó þegar rætt vanda minn við vinkonur mínar og leitað ráða og huggunnar. 
Auk þess sem skrif inn á bloggið hafa aðstoðað mig við að sjá hlutina í víðara samhengi en það að blogga hófst fyrir hvatningu geðhjúkrunarfræðingsins míns Bergþóru - fyrir all mörgum árum og hefur hjálpað mér að henda reiður á það hver ég er; hvernig ég upplifi dagana og hvernig við hér á heimilinu og fjölsk. og vinir tvinnum saman dagana. 
Í yfirferð minni yfir vefsíðu mína hef ég komist að því að björtu tímarnir í kringum okkur eru umtalsvert fleiri en þeir dökku og margt af því á ég að þakka fólkinu mínu - öllum þeim sem mér finnst vænt um og hafa fært mér lífið og gert tilveru mína bjartari.  Hinsvegar þegar þú ert eins og ég - búin að sannfæra sjálfa þig um það mörgum sinnum á lífsleiðinni að þú ert vonlaus, eigir ekki uppreisn æru skilið, eigir enga ást til að gefa öðrum -
hvað þá heimtingu á ást annarra - þá er erfitt að breyta lífsstílnum og lífsstandarnum -
þú bara siglir með og reynir að fljóta með - þrátt fyrir að vera að drukkna flesta daga!
Þið megið ekki skilja mig sem svo að ég sé á leið að kála mér eða ganga frá einhverjum en ég er yfirleitt alla daga í svokölluðu "uppklappara" hlutverki gagnvart mér sjálfri; fagna því að vakna, koma krökkunum í bílinn, mjólka - vera húsmóðir - eiginkona - móðir -
Ég er búin að mála mig út í horn í flestum vinasamböndum - er ömurleg dóttir -
Svo ég tali nú ekki um systurhlutverkið!
En ég er alla daga að reyna mitt besta og reyna að gera gott úr þeirri brotnu sjálfsmynd sem ég er að burðast með alla daga.  Og mér finnst ég oft verða að verja mig og mitt! 
Þess vegna er ég oft fljót að stökkva upp á nefið á mér eða fara - bakka frá og verja mig alls ekkert þó orð og athafnir særi og því miður er ég grátgjörn og nota reiði mína á óréttlætinu gagnvart mínum nánustu - þegar aðrir ættu í raun að taka við útrás minni. 
Ég er vön að vera álitin klikkuð, brjáluð, geðveik - og já OK ég er þá allavega eitthvað! 
En flesta daga reyni ég að vera bara ég; Sæunn - sem í gegnum tíðina hef reynt að vera manni mínum stoð og stytta, börnum mínum leiðbeinandi og umönnunaraðili af óskilyrtri ást og fjölsk. og vinum - hef ég reynt að sinna eins vel og mér framast er kostur.
Góð vinkona mín sagði við mig um daginn; Sæunn; það er munur á því að FYRIRGEFA og FYRIRGEYMA - þegar fólk á í deilum...  Síðan þá hef ég eytt miklum tíma í það að  sópa út lónni sem fylgt hefur í skúmaskotin í huga mér og valdið því að þegar ég fer svona langt niður í geðlægð - þá get ég endalaust grafið upp atvik og orð sem hafa nagað mig og valdið mér hugarangri - Orð og athafnir sem eru þungar byrgðar en verða ekki fyrirgefnar nema sópa og taka til í baklandinu!  Ég hef aldrei ætlast til að nokkur fyrirgefi mér orðna hluti en ég er að vinna í því að fyrirgefa sjálfri mér að hanga á hlutum sem engu skipta fyrir framtíð mína ef ég aðeins læri að FYRIRGEFA - Fyrirgeymdir  hlutir og orð eru mannskemmandi og þjóna litlum tilgangi - sér í lagi ef þeir eru ófyrirleitnir og leiða til vanlíðunar.
Vona að þið séuð ekki að burðast með fyrirgeymda hluti  - Fyrirgefning er ekkert erfið en garðurinn heima þarf að sjálfssögðu að vera plægður til að sáning betri frjóa geti hafist!
Standið ávalt með ykkur sjálfum - enginn getur ætlast til annars af ykkur!
Þið eruð mikilvægustu manneskjur í eigin lífi!
Gætið fyrst að ykkur áður en þið farið að hafa áhyggjur af öðrum.
Þið ein getið skapað YKKAR hamingju!
Virkið hana!
Sæunn

 
 
clockhere
Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 111
Gestir í gær: 46
Samtals flettingar: 222375
Samtals gestir: 29382
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 01:41:32