Nafn:

Sæunn og Halldór Lágafelli

Farsími:

8918091

Tölvupóstfang:

lagafelli@gmail.com

Afmælisdagur:

06.06.2001

Heimilisfang:

Lágafelli 861 Hvolsvöllur Iceland

Önnur vefsíða:

www.lagafelli.is

Um:

Landbúnaður, sala heimaafurða og íbúðarleiga / ferðaþjónusta

Uppáhalds manneskjur:

mamma og pabbi

Uppáhalds matur:

steikt lifur

Eftirminnilegast:

þegar við tókum við Lágafelli

Færslur: 2008 Maí

27.05.2008 23:10

Dans Dans Dans Dans Dans

Það verður stuð!

Nýtt myndband af krökkunum í Hvolsskóla á Dansnámsskeiði -
Foreldra dagur á Vorhátíð!
Kveðja Sæunn

27.05.2008 20:37

Bless - God bless you!

Helló Hæ hæ
Við erum að hnýta síðustu hnútana á töskunum okkar
Frá og með kvöldinu í kvöld erum við farin í frí og komum ekki úr því fyrr en 10júní
Þakka ykkur fyrir að vera með mér í stressinu undanfarna daga - þið sem hafið þurft að þola það - Það er ótrúlega gaman að sjá hve vel öllum hefur tekist að komast yfir þetta tímabil ÁN ÞESS AÐ GARGA OG GÓLA; MISSKILJA og GERA FLÝTIBUNDUVILLUR

Það er bara dásamlegt að hlutirnir skyldu ganga upp!

Vona að svo verði líka hjá ykkur!

We are fastening the last bands on our lougages
From tonight we are off to an holiday - and we will not be back till 10th june
Thank you all for being so helpfull in my stressfull moment´s over last days -
to you all that have had to live through that horror! - It is so nice to see how everyone has been doing in this perioud off time without YELLING AND SHOUTING; MISUNDERSTANDING AND MAKE MISTAKE´s BECOUSE OFF THE STRESS!

It is just wonderfull that everything has worked out like planed!

Hope your time has been like this too!

Graðhestarnir eru allir farnir að starfa -
All the stallion´s are now working -

Kindurnar eru allar bornar NEMA 1 -
All the sheep have had their lambs but 1 -

Sokka is going to have her calf TOMORROW - So the girls will have problem from day one - Rútur og Guðbjörg = ég sagði þeim að hringja í ykkur EF á þarf að halda og svo hafa þær símann hjá Charlottu dýralækni ef í hart fer!
Sokka ætlar að eiga kálfinn sinn á morgun - Svo stelpurnar munu eiga í vanda frá degi eitt - Rútur og Guðbjörg - I told them to phone you IF they need help - but then they have the phone off Charlotta the VET - if all things go UPSIDE DOWN!

Eftir mikla leit og vangaveltur um það hvar passarnir okkar Halldórs væru - fundust þeir eftir kvöldmat í kvöld - Og við förum því ekki með gömlu símanúmerabókina úr FJöLBRAUTASKÓLANUM Í GARÐABÆ og BIBLÍUNA - til Danmerkur - (datt það helst í hug að grípa þær með í staðinn fyrir passana - því þessar bækur eru líka svartar)
After serching for the passport the hole day (mine and Halldórs) - They were found tonight -FINALLY - and I had already planed for taking the Bible and the phonebook for my old school FG - for they also are black like the passport - but... now I really do think that I don´t have to - The passport just has to do! :-)))

Langar að fara að sofa núna - en á eftir að keyra að Baugsstöðum í kvöld til að vera NÆR Keflavík í nótt þegar við þurfum að leggja af stað á flugvöllinn -
I really would like to go to sleep now - but I have to drive to Baugsstaðir tonight - to be closer to Keflavík early in the morning when we have to go to the airport!  - 

To those we are going to see during the trip - I LOOK SOOOOOO FORWARD TO SEE YOU - We have our mobile open - they are ; 8918091 and 8978091 -
Till later Sæunn
Til þeirra sem við munum rekast á í ferðinni - Ég hlakka svo til að hitta á ykkur - 
Við verðum með símana opna = 8918091 og 8978091 -
Þar til síðar Sæunn

P.s
The plan is like this;
28-31mai = Köben and the area around it -
31-3 june = Klingenberg am Sea - near Neustadt in SL-HOLSTEIN AREA -
3 june HAMBURG - with guide 
3-6 june Rheinland area - Boppard will be our home -
6 june to 10th BlackForest and it´s area -
10th june Friedrikshafen - airport to home around 12 -

Have to go now - Love to you all!
Sæunn

p.s
Ferðaplanið er þetta;
28-31mai - Kaupmannahöfn og Sjáland -
31-3 june - Klingenberg am Sea - sumarhúsastaður sem er nærri Neustadt þaðan sem tengdamamma er frá í SL-HOLSTEIN NorðurÞýskalandi - 
3 june - Hamborg með túlki -
3-6june - Rheinland héraðið - En Boppard í Rheinland - verður okkar heimabær -
6.june - til 10june - Svartiskógur og nágrenni - með túlki 
og heimferð 10june - frá Friedrikshafnar flugvelli klukkan 12 -

Verð að fara - Kem til með að sakna ykkar allra!
Sæunn

 


 

24.05.2008 11:20

Stóðhestarnir settir í merarnar á Lágafelli

The stallions have already been put in use at Lágafelli

Mamma, Sjöfn og Inga systur mínar - komu hér í gær og við unnum allar að því - þær og ég (Sæunn), Fló (frá Sviss - vinnukona á förum :-( ) og Kristín (vinnukona - frá Baveria S-Þýskal. nýkomin :-))) - að koma merunum í hólf og undir graðhestana -
My mum and my two sisters - Söfn and Inga - I (Sæunn), Fló (from Sviss - worker wich we are regreating though she is not leaving till 4.june) and a new great worker Kristín from S-Germany Baveria) - sorted the mare´s to different group´s for the stallions all yesterday - and they are now splited into groups like this; (stallions names are blue)

Hér verða í notun;
Jarpur f/ Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit (undan Kormáki frá Flugumýri og Eldingu frá Brún)
og undir hann voru settar.
4 merar frá Guðnastöðum; Ylfa, Kóróna, Mön og Kolbrá
10 merar frá Lágafelli; Ör, Básúna, Ísbjörg, Unnur, Iðunn, Litbrá, Ísold og Bjáma
og
6 merar frá Mömmu; Bleik frá Strönd, Brjálaða Bína frá Strönd, Brúnskjótta merin hans Skúla, Rauðstj. frá Strönd, Sóley og Öngulblesa

Pí f/Lágafelli (undan Geysir frá Sigtúni og Ölfu frá Viðvík - Safírsdóttur)
og undir hann voru settar.
11 merar frá Lágafelli; Von, Líf, Dagsbrún, Þrenna, Fluga, Hít, Stráka-Lýsa, Dys, Stygg, Vör og Kólga + Freyja
Og frá Baugsstöðum;
BS21, BS10, Lokkadís, Birta frá Brjánslæk, Ör frá Hala, Hlédís f. Gíslholti, Brák, 778-meri frá Skúla og Mía(Elding).

Snær f/Fróðholti (eig.Ársæll Jónsson) (undan Orri frá Þúfu og Sælu frá Gerðum)
og undir hann voru settar.
4 merar frá Guðnastöðum; Hófí, Fjöður og tvær merar undan Orra syni - svo hér verður skyldleikaræktað -
5 merar frá Sæla - (????)
10 frá Lágafelli; Viktoría, Blásól, Stefanía, Bóla, Klóra, Kilja, Tinna, Trú, Afródíta og Bára 
og 5 frá Baugsstöðum; Dögg frá Fossi, Únó frá Brjánslæk, Moskva, Kolfinna frá Brjánslæk og Náttfreyja -

Fróði frá Fróðholti (eig. Ársæll Jónsson) (undan Sæ frá Bakkakoti og Særós)
frá Lágafelli;  Rea, Völsavilla, Spurning, Pandra, Ísafold, Fregn, Björk, Fiðla, Glóð, Sandra, Smygla og Svala
frá Baugsstöðum; SteinsSnör, Viðja frá Brjánslæk, Frá frá Brjánslæk, Skvísa frá Brjánslæk, Raupa (rauð og ný meri), Sæunn

Kraftur frá Reykjavík (eig. TómasBragason) (undan Krák frá Blesastöðum og Sjöfn frá Hala) - 2ja vetra - til reynslu sem blóðstóðhestur og fær -
Reim frá Lágafelli, Broddu frá Lágafelli, Laufu frá Lágafelli og Þverstjörnu frá Lágafelli

Stormur frá Reykjavík (eig. Tómas Bragason) (undan Töfra Kjartansstöðum og Sneglu frá Reykjavík) - (Töfrasonur eins og Sólfari) -
Brúnstjörnu frá Lágafelli, 3 merar frá Strönd, Öðuskel frá Lágafelli, og 3 merar frá Skúla/Steini -

Sólfari verður svo hér í nokkrum merum frá Lágafelli og Baugsstöðum; eftir Landsmót - (eða vonandi kemst hann þangað inn) Fram að því verða merarnar hestlausar sem bíða hans og ég í útlöndum svo ekki verður hægt að sinna um hann og hans náttúru fyrr en ég kem heim - Ef einhverjir hafa áhuga á því að koma merum undir hann þá er það vel mögulegt - Tómas er Tómas Bragason smiður í símaskrá (Reykjavíkursvæðið) og hann tekur niður pantanir undir hestinn - Verið ófeimin við að hringja -
Sólfari will be here for mare´s at Lágafelli - after Landsmót (or the dream is that he gets a place to go there:-))) - You must always have hope! - If someone is intressted to use him for their mare´s pleace contact Tómas Bragason  smiður in the phonebook for Reykjavíkursvæðið -  Have to call - important call ... futher translaitions later!:-)))

Við vonum að þið kíkið við á nýfædd folöld hjá okkur ef þið eruð að leita ykkur að folöldum fæddum núna í sumar - Þetta eru álitleg folöld og flottar ættir -
En við verðum samt ekki heima til skarfs og ráðagerðar fyrr en eftir 10.júní -
Með bestu kveðjur frá Lágafelli -
Sæunn







23.05.2008 10:35

Síðasta helgin fyrir "útförina"

The last weekend before we fly off to Europe!

I have in the morning been searching my passport! And Halldórs! :-)))
I know I have them somewhere but - WHERE???

Ég er búin að leita að pössunum okkar Halldórs síðan ég vaknaði í morgun -
Ég veit að við eigum þá einhversstaðar - á mjög góðum stað - en ÞEIR ERU MARGIR!

Við erum að verða tilbúin að öðru leiti - Ætlum að pakka létt og fara bara hvert og eitt okkar með lítinn bakpoka - enda á leið í LESTARFERÐIR um alla Evrópu - og þá er ekki gott að draslast með of mikið dót! -
We are ready for the trip in all other part´s - We will travel very light - for each and everyone are going to have their own things on their back - and we are going to be travelling through Europe in a TRAIN - so... it is better not to pack too much!

Ég er búin að eyða nokkrum mín í morgun í það að setja inn nýjar myndir á vefin - það eiga eftir að koma fleiri - Stelpurnar vinnukonurnar eru að fá sérmyndamöppu með uppl um það hvernig kveikt er á og slökkt er á mjaltakerfinu á Lágafelli - Þið sem eruð áhugasöm - megið lesa ykkur til um það líka - ....:-))) Kannski getið þið svo leyst mig af í fjósinu þegar ég þarf að fara í frí! :-))) hahahaha
I have spend few min this morning to put in new photos - and more are comming -
Our workers are getting a photomap for useing - when they want to learn to turn on and turn off the milkmashine - ... If you are also intressted to read and learn about it - pleace do learn it too... - :-))) For then I can ask all off you to releace me when I want to go off on a holiday - in the future! :-))) hahahaha

Kossar og knús frá mér til ykkar
Sæunn
Hugs and kisses to you all
Sæunn

22.05.2008 13:59

Nýjar myndir í folöld 2008b

New photos at foals 2008b

Kveðja Sæunn

21.05.2008 11:06

Vika í "útferð" og allt á "niðurgangi"

Week till we go to Europe - all upside down!

Hæ hæ
Héðan er allt gott að frétta -
Vorverkirnir eru að mestu horfnir - það er verið að hnýta síðustu hnútana í þeim málum -

6.kindur eiga eftir að bera - Gemsarnir eru eins og á flestum bæjum - næstum allir geldir - (hafa sennilega misst í vetur - án þess að ég viti það!) - Ein ær drapst svo við erum með 2 heimalinga - og eitt lamb fannst drukknað í morgun - svo ein tvílemban er núna einlemba - (ég hefði kosið að það hefði verið 3lembingslamb - fyrst þetta þurfti endilega að fara svona! :-((( - En maður ræður víst ekki öllu! 3 kindur ganga með 3 lembingum undir - og allt gengur vel þar á bæ - en Gunnsa á enn eftir að bera og hún er ótrúlega mikil um sig - ... VEIT AÐ HÚN ER MEÐ 3 - Hefur alltaf verið það eftir gemlingsárið - svo það bara hlýtur að vera - Ekki það að ég óski þess - en það þarf þar af leiðandi að fylgjast vel með henni!)

Tókum inn 4 kvígur í gær - sem eru komnar að burði - Fyrsta á að bera á meðan við erum úti (en gengur vonandi bara yfir) - Sú sem átti að bera í gær eða í dag - var seld - því að við gátum ekki treyst því að allt yrði í lagi á meðan við værum úti og vegna þess hreinskilningslega að OKKUR VANTAÐI FÉ TIL FARARINNAR! -

Við ætlum að sortera merarnar og koma í þær graðhestum á Fimmtudaginn -
Eigandi Sólfara hefur ákveðið að reyna við þessar 0.04 kommur sem Sólfara vantar til að komast inn á Landsmót og hann á að sýna aftur á kynbótasýningu í Hafnarfirði -
Svo allir setji fingur í kross TAKK! - Hann verður svo hér í girðingu seinna í sumar - fyrir þá sem hafa áhuga á að nota hann! - :-)))
Folöldin eru að vera 20 - en mamma á þau flest - Af mínum merum eru bara kastaðar Viktoría, Sylgja, Hríma, Spurning, Blásól, Svala, Stygg og Básúna -

Verð að fara - núna -
Ætla að setja inn myndir í dag - til að þið sjáið þessi frábæru folöld sem eru fædd -
En þau eru hvert öðru fallegra - Uppáhaldið mitt er ennþá Spurningarfolald - það er svo áræðið og forvitið - og leikur sér svo mikið en svo Básúnufolald sem fæddist í gær!
Kíkið endilega við í kvöld og sjáið dýriðna!

Kveðja Sæunn

17.05.2008 11:48

Stóðhestalisti frá 2007 (feður folalda fædd2008)

List off Stallions in use summer 2007 - (father´s off foals being born now in year ´08)

Sólfari       Snær       Lykill          Sóti        Spyrill          Aðrir hestar notaðir 2007 
 Klóra           Björk        Unun           Viktoría      Brúnstjarna  Yrja = Markús Langh.parti
 Angantýra  Ísafold       Litbrá         Rea            Vör                Frussa= Markús
 Fála            Hít             Spurning    Þrenna       Þverstjarna
 Ör                Fiðla         Sandra      Snælda      Smygla
 Þóra          Stefanía      Kilja           Bjáma        Fregn
 Svala          Iðunn           Trú           Blásól        Bóla
 Öðuskel    St-Lýsa       Dys                              Stygg
                     Harpa                                              Hríma
                    Fluga                                               Dagsbrún
                    Laufa                                                Reim
                    Brodda                                            Glóð                                       
                    Pandra                                             Básúna
                    Bára

Alls eru þetta 47 merar - 2 eru í eigu Skúla Steins og tvær eru "spari" svo þær eru ekki látnar selja blóð - svo í allt eigum við "fyrir þá forvitnu að vita" = 43 blóðmerar!
Samkvæmt blóðlista síðasta árs - gáfu ekki nema 38 merar blóð hér síðastliðið sumar því að fimm merar eiga að vera geldar samkv þeirra spá -
Þær eru; Kilja, Brúnstjarna, Vör, Iðunn og Angatýra -
Og svo eru Snoppa og Tjáning farnar HEIM - og tvær eru dauðar eftir veturinn!
(Snælda og Harpa!)
Þannig að í stóðinnu á Lágafelli er enn að fækka!
Það koma bara 5 nýjar hryssur inn til blóðgjafar í ár - Svo við verðum í svipuðum fjölda og venjulega! -
In total are those 47 mare´s - 2 belong to Skúli wich is our friend and then two mare´s are our "unic"breeding mare´s so they do not sell blood like the rest off the heard - in total there are then 43 mare´s in the bloodmaregroup! But compaired to list off our bloodmare´s company - then only 38 mare´s gave blood last summer - in total - wich means that 5 off those 43 will not have foals in year 2008 -
Those are; Kilja, Brúnstjarna, Vör, Iðunn and Angatýra -
Then Snoppa and Tjáning are gone HOME and two off last years bloodmare´s died in the wintertime - (Snælda and Harpa)
So our heard is always getting smaller!
There are in total = 5 new mare´s comming into the bloodmare´s heard this season -
So our bloodmare group will be about the same as it has been last years!

Mamma mín - svo þú getir nú haldið réttan blóðlista - þá ættir þú að skrá eftirfarandi niður - ;  To my mum - so you can have a correct bloodlist for your booking - then these are your info about your mare´s!

Sólfari                        Snær                 Lykill                        Sóti                   Spyrill            
Jarptvístj 7457          Mósótt/steinn    Únó                       Jörp/Bár             Rauðbl/str/7554
Oríondr/Clinton          Ljónslöpp          Viðja                    Alrauð 778         Öngulbl/6953 
Rauð/str/7154          Brúnlitf/steinn    Sóley                    Náttfreyja            jarpvind/str/6898
Brúnskjótt/skúla         Agla                 Rauðbl/str/7672    Sæunn               Alrauð/str/7346
Frá/Clinton                 Moskva            Bleik/str/7655      JörpSteinsSnör  Skvísa grá
                                    Brák                 Rauðstj/str/6737    Ör frá Fossi       Dögg frá Fossi
                                                              Ljósrauble/str/7436                         Hlédís
                                                              Kolfinna
                                                             Brjálrauð/str/7427

Ég er líka alltaf að leika mér að búa til hrossanöfn -
I am always playing with new horsename´s - my new favorit one´s are!

Nýjasta nýtt er;
GrettirSterki -
Steinsnar frá Lágafelli  = mean´s almost few step´s away from Lágafelli
Afþreying frá Lágafelli = fun frá Lágafelli (Afþreying is what you find nice to do when you have a spare moment!)
(mið)Punktur frá Lágafelli = Miðpunktur is a center to something , Punktur would be = THE END or the dott that finishes this sentence....
Bókun frá Lágafelli = Bókun is when you have confirmed something you want then you have booked the think you wish to have - and you can then bet on it being there when you come next time!
Heimskringla frá Lágafelli = Heimskringla is our WORLD!
Þorpari frá Lágafelli = Þorpari you say about someone that come´s from a village - or Þorpari can also be someone that is a theaf but doesn´t really mean to be evel = more like Oliver Twist does it out off an need!
Pompai frá Lágafelli = We all know what Pompai is!???

17.05.2008 10:14

Sólfari komst í fyrstu verðlaun! Ae. 8.11

Sólfari made it to first prise stallion - total score is 8.11

Til hamingju Tommi - Congrat. Tommi!

Kýrnar okkar mjólka sem aldrei fyrr - Our cows are also milking VERY MUCH -

Kindurnar eru allar að verða bornar - Our lambing season is almost over -

Akurvinnan er að verða búin - klárast sennilega núna um helgina -
The fieldwork is almost over - will probl. be finished this weekend -

Krakkarnir voru með frábæra vorhátíð í Hvolsskóla í gærdag - þar sem foreldrar og börn gerðu sér glaðan dag og skemmtu sér við ýmsar listar - t.d DANS -
en ég ætla að færa inn myndband af snillingunum dansa - næst þegar ég opna fyrir tölvuna - og set þá linkinn inn hér!
The kids had a festival in their school yesterday - where parent´s and kids made a familydaytogether - selebr. the spring by looking over the work in the school - theme was the environment and then the kids have for exsample been learning how to DANS -
I made a video off those geni´s and will put it in to the videocollection next time I will enter the webside - then the link will be added on here!

Folöldin detta eitthvað seint úr merunum - flestar merar sem kastaðar eru tilheyra mömmu og pabba - :-((( Það eru bara Blásól og Spurning sem eru kastaðar í mínu stóði og samkv Ístekalistanum eiga þær ekki að kasta fyrr en í 2 viku - :-(    ????
Samkv mínu "Ístekaviti" er vika 0 - að klárast - og vika 1 að hefjast á morgun! (???)
There are foals falling out off our mare´s all the time now - most mare´s that have gotten foals yet - belong to my mum and dad - :-((( Only Blásól and Spurning have foals and belong to me - but according to my count´s then their foals shouldn´t be here till week 2 off the foal´s birth - and to my "count" the week nr 0 is ending and week 1 is starting - so...???? What is happening is a wonder! :-)))

Myndir af folöldunum birtast inni á myndaalbúm - undir folöld 2008 -
Photos off the foals are in myndaalbúm - file foals 2008 -

Við erum að fara að girða um helgina - og því er ekki ráðlegt að koma við nema vera í GALLA til þessa verka gerður - því að graddarnir eiga svo að fara í merarnar 21.mai!
Our goal this weekend is to make fences ready for the stallions to stay in them - and if you want to visit this weekend you have to whear clothe´s that you can work in! :-)
Stallions are to find the mare´s ready on their field at 21.mai! -

Verð að fara!  Ætlaði bara að koma hér inn til að finna ryksuguna!
Have to go! Was only comming in here to find the vacumer!

Það er nefnilega þannig á mínu heimila að krakkarnir og ég skiptum með okkur húsverkunum -
HVERNIG!???
Ja- eins og á öllum venjulegum heimilum - Þau ganga illa um ... og ég laga til!
On my home it is like this - that my kids and I share the household - the mess it all up and I have to cleen! :-)))

LOVE YOU ALL/Ástarkveðjur
Sæunn

13.05.2008 09:58

Halldór

Sæl
Hér er mikið búið að ganga á um helgina -
Áburðurinn kom loks og Halldór vann í áburðardreyfingu í allan gærdag - ER BÚINN -
Við sáðuðum í 9 ha af gras, rýgresi, hafra, blöndu sem fór í nýræktarstykkinn, völtuðum, og bárum á -
We have worked our ass off this weekend - with harvesting our fields and prepairing the grasfields since the furthtyliser finally came to us! - And we are almost finished!

Halldór og Matti gengu frá nýja - stykkinu - "sem að mér skylst að allir séu að hneykslast á" en var að okkar mati mjög mikilvæg aðgerð til að sleppa við það að keyra yfir mörg tún og króka, beygjur - til að sinna um túnin sem Halldór lýsir svo rækilega; "AÐ VORU GRAFIN MEÐ BUNDIÐ FYRIR AUGUN - BLINDANDI Í MYRKRI" fyrir all mörgum árum! - Og nýja stykkið er sem sagt búið að tæta, plægja, herfa og valta - Halldór sáði svo í það í gær korni - og svo ætlar hann að halda áfram hér sunnan við bæinn - en þar á líka að vera korn í sumar - (næst Ljótarstöðum!) og kál til sláttar!
Halldór and Matti worked the new field "wich is making our naigbour´s shocked - for we are spending so much money - if I understand the rumour correctly!???" - Well as Halldór says so wisely - it is like the old fields where made by a blind man; wich had a scurf over his eye´s - and worked the fields in the dark! - so... - our work on the fields will become much eacyer - like this then ... as it was before!

Það gengur vel að fá úr kindum - hér eru bornar um 50 ær - og 7-9-13 allt hefur gengið þrautarlaust fyrir sig!  Our sheep are on a "fast" deliver - We have now 50 sheep with lambs - and 7-9-13 till then NO PROBLEMs!

3 merar eru kastaðar - 2 frá mömmu og ein kastaði í nótt frá Mér - Spurningin sjálf!
Það eru komnar myndir af henni með folaldið á gallerýið - undir Folöld 2008
Þetta er brúnt tvístj. merfolald - og eins og venjulega eru folöldin hennar Spurningar á þönum - þetta er strax farið að hoppa og hendast um allan móa - GAMAN AÐ ÞVÍ!
3 mares have delivered foals - 2 off my mum´s and then Spurning gave a mare foal to Lágafell this night - a black two stared playfull mare - JOYFULL FROM THE START!


Hætt - en...Finish but ....
ætla að fara aftur upp í stóð í dag og fiska fleiri folöld - Ef einhver eru - þá set ég það strax hér inn!  I will go to the heard again today to try to fish more foals from the mare´s - IF there are more I will put them in under Foals 2008/Folöld 2008 file in the gallerý/myndaalbúm -
Kveðja
S

p.s  to owner off Skína - this is her standing there on Spurning´s foal photos - if you like to see Skína on fresh photos since 09.00 this morning!

11.05.2008 14:24

Myndir; Bergrún, Jarðvinnsla, folöld 2008,

Photos at; Bergrún, jarðvinnsla, foals 2008

Hæ hæ -
I was running with my camera all over in last days - took photos off many things and those photo´s will be pupping up all the time -
Ég var á ferð með myndavélina mína síðustu daga - að taka myndir af öllu og engu - þessar myndir eru að detta inn á milli annarra verka -

Gleðilegan mæðradag mæður - og slappið nú af því að það er Hvítasunnudagur -
Ég er allavega búin að sofa - Halldór meira að segja líka -
En núna er hann að taka út vélarnar okkar með Kristjáni "ráðskonu" og yfir féhirði í næturvörslu -

Happy mother´s day mother´s all over - relax it is "white sunday" by the Bible -
I have been resting today - Halldór even slept a little longer this morning -
But now he is getting our mashine´s out off their winterselder with our housekeeper - Kristján - wich also is our "chief off lamb´s" - during night´s!

Enjoy this day - Njótið dagsins

Sæunn

10.05.2008 12:07

Aulahúmor!

Vitið þið að það er farið að framleiða bjór á Íslandi = svo segir í fréttum - sá heitir Kaldi
Og  að nýjasta töfralyfið til lækninga hjá pörum í krísu - er eins og allir vita VÍAGRA - sem þýðir af þegar eiginmaður sem tekur inn eina Víagra + drekkur bjórinn Kalda - til að fyllast kjarki til fá það hjá úrillri eiginkonunni -  Þá er hann kominn í gírinn á hárréttu augnabliki korter í 3 - prýddur einum ágætum;
 
STYNNINGSKALDA!

hahahaha

Did you know that in Iceland there is a beer called Kaldi (the frosen one!?)
And when doctor´s treat men with problems in their privat area´s then they often treat their patience with VIAGRA!
Well if you do then you must know that these two together make one;
good STUFFED FROSEN for these nice gentlemen´s! :-)))

09.05.2008 07:44

Komið folald -

a foal has arrived -

Verð að taka myndir af því í dag -
Have to make photos off it today -

Var búin að spyrja dýralæknanna hvort að það sé eitthvað eitt frekar enn annað sem ræður því að merar kasta - Hvort það væri eðlilegt að gamlar merar kasti síðar og hvort ég ætti að fara að hafa áhyggjur af of stórum folöldum í merarstóðinu - sér í lagi vegna þess að Heiður og Freyja eiga að kasta - og mér sýnist þær báðar með fyli!
En doctorinn sagði mér að það væri ekki hægt að reikna út tíma á merum - þær köstuðu sumar eftir 11 mánuði og sumar hreinlega ekki fyrr en eftir 12 -
Eðlilegasta meðgangan væri hinsvegar nokkra daga yfir 11 - en samt væri ekkert til sem heitir "eðlilegur meðgöngutími hjá hryssum" þær bara þyrftu sinn tíma!
Svo "skipulagða" Sæunn verður bara að læra þolinmæði! :-)))
Það gerist ekkert alveg eftir réttum útreikningum -
Asked my Vet why the foals were appering so late - I was already waiting - for foals - and I thought perhaps Heiður and Freyja would have problem when they are having foals so old - and being riding horses - and in training - for their foals are not yet here - but ... he told me - not to worry - the time-ing on mare´s foaling is from 11 mounths to 12 depends on the mare - There were no actual time for a mare to have foal for sure -
So I just have to be patient - hahahahah :-)))
Nothing is going to happen as I planed when it comes to this!

En hinsvegar eru fæddir tvennir 3lembingar í gær og núna klukkan 6 í morgun - sem þýðir það að ég á mikið verk fyrir höndum að láta allt lifa - og tryggja móðurinni mjólk -
Eins gott að ég keypti þessa kjarnfóðurköggla sem karlinn minn var að hneikslast á -
Því að af 8 bornum gemlingum eru 7 tvílembdir og núna hrynja niður 3lembingar -
Ég er viss um að mórauða kindin okkar hún Gunnsa - er með 3 eins og í fyrra og svo er ein til sem ég veit að er alltaf 3lemd svo ... URRR - Það verður einhver vinna að tryggja þessu dóti eðlilegt vaxtarviðhald! - Erum komin með heimaling - ein ærin fékk júgurbólgu og er hræðilega illa farin og annað lambið hennar var nærri dautt þegar við fórum að nudda í það líf - og núna hleypur það um öll hlöð á eftir Bergrúnu -
I got 3 lambs at 6 o´clock in the morning  - and now I am waiting for another sheep -
It is usually 2 lambs per each sheep in Iceland - 1 makes a farmer unhappy unless it is a sheep being lambsmother for the first time - But our sheep wich were lambs last year themselfs and are having lambs for the first time now - are all giving 2 lambs - (7 out off 8 wich have lambs) - I know I can exspect more 3lets for Gunnsa has not yet had her lambs and then I have one wich is always with 3 - wich has not yet had her lambs -
Having so many lambs per one sheep makes the risk off lambs being dead - out off hunger - or at least one always being smaller then the other two - for a sheep has only 2 teat´s with milk in them -and that makes 3 lambs fight for their milk - and somehow two are always stronger - one always grow´s a little less!

Bergrún er með gubbupest í dag heima - Hún fékk ekki flensuna þegar allir aðrir fengu hana hér um daginn og er að taka það út núna! -
Bergrún is sick today - with the flue - we had last week - but she is having it now!

Mamma ætlar svo að koma og sækja krakkana til okkar í kvöld - því að það verður svo mikið hjá okkur að gera um helgina að það verður ekki hægt að passa þau líka - svo mamma þessi elska ætlar að taka skrílinn og dekstra hann til! :-)))
My mum is comming to pick up the kids tonight - for we will have endlessly much to do this weekend - and it will not be possible to babysitt them too - so my mum is going to come and spoil them - ;-)))

Vinnukonan fór og er að koma aftur! hahahaha -
Ég er greinilega ekki nógu leiðinleg! :-)))
Our worker left us two days ago to fly home but is comming back TODAY! hahahaa
I am clearly not bossy enough! :-)))

Óli og sætasti strákurinn í sveitinni og sá sem segir "Glæsilegt" öllum stundum - eru búnir að vinna skákarnar austan við bæjar afleggjarann - alveg frábærlega síðustu daga - og um helgina á að sá í kornræktarstykki og kálstykki -
Hinsvegar þarf ég að fara að toga í "réttann spotta" á honum Bergi vini minum Pálssyni - til að fá þennan áburð sem hann seldi okkur fyrir áramótin - það eða aðstoða Pétur vin minn Guðmundsson að plokka hárin af höfðinu af - því að mér er sagt að hann stundi svoleiðis plokk óspart þessa daganna - vegna þess að áburðurinn er ekki kominn til skila! ÉG GET ALLAVEGA RÉTT HONUM FLÍSATÖNG og haldið uppi speglinum - hahahahahaha - ER ÉG EKKI SKEMMTILEG - PÉTUR!???

Óli and two boys from this area have been working our fields lately and are now almost finished - how ever we have to start pulling some strings to get Bergur Pálsson to deliver the furhtyliser - for gras doesn´t grow enough for cow´s - when there is not help -
I will have to think where I buy such thing next year if it is not here soon...


MAÐUR HUGSAR SIG TVISVAR UM ÞEGAR MAÐUR KAUPIR ÁBURÐ Á NÆSTA ÁRI - hvert maður leitar! :-///


Verð að fara að mjólka -
Er að bíða eftir að það beri kind í fjárhúsunum og því sit ég hér - (hún á eftir að skila seinna lambinu) - og Bergrún er með gubbupestina og ég var líka að þrífa upp ælu eftir hana síðan í nótt - (bara til að forvitnir viti hvers vegna ég er inni klukkan 8.00) -
I am going out to milk -

Bestu kveðjur
Sæunn

05.05.2008 11:32

Halldór er ,,, ég er...Halldór is... I am...

Nei - hvernig læt ég ...
Er hér til að segja ykkur að ég er að setja inn myndir sem ég tók af ýmsu mikilvægu og merkilegu frá síðustu vikum - og síðustu myndirnar voru meira að segja teknar í gær!
Það er annars allt gott að frétta -
I am here to put in new photos - from things I thought were important to us last week - the newest photos are from yesterday -
Showing we are doing fine ...

Halldór er í flagvinnu - með hervi aftan í og er að verða búinn að klára nýræktarstykkin til kölkunnar og sáningar -
Halldór is working the fields - making the grasfields ready for the summer -

Ég er hinsvegar löt og leiðinleg í skapi þessa stundina -
I am in a horrible bad mood and feel offully lazy -

Mér finnst ótrúlegt að búa við það að snúast í kringum alla eins og skopparakringla og svo er þakklætið ekkert! -
I can not belive how I can run around everyone´s need all the time - when I get nothing but ungratefull words instead - and no THANKS nor cheer up !

Þetta á við bæði um karlinn minn og börnin - ég á alltaf að hlaupa upp til handa og fóta þegar á mig er kallað - og flestum stundum geri ég allt óbeðin en að reyna að óska þess að fleiri gerðu það sama á heimilinu er jafn stór ósk og að biðja um "tímabil allsnægta til handa öllum" (sagt því að ég vildi óska þess að fólk væri aldrei leitt, pirrað eða sorgmætt, hungrað, sært eða auðmýkt!) -
It goes for both my husband and the children - I have to run there and get this here and turn around everytime someone calles me - but most off the time I also have to think for them before they ask - - and I am dead bored off this - "I belive in rightfull share for all people in the world in everything there is to share" - but ... PERHAPS IT IS TO MUCH TO ASK - ??? (I wish that no one will ever get lost, irretaited, sad, hungry, hurt or humiliaited) - But... well ... the news are not that way!

EN SVONA BÓN ER OF STÓR TIL AÐ FÓLKIÐ MITT TAKI VIÐ SÉR - það er bara ætlast til að MAMMA geri það - SÆUNN reddar því -... og ÉG ÞOLI ÞAÐ EKKI! -
Even within my family these words are to much to handle - and everyone always scream´s MUM - SÆUNN - HEYRÐU ( WICH MEAN´s HEY YOU!) = AND I HATE THIS

Ég hef hundrað sinnum skrifað um það að ég ætlaði mér ALDREI að FINNA MÉR KARL - en Halldór er bara svo góður og skemmtilegur maður - að ég mátti ekki missa hann þegar upp var staðið! - og ÉG ÆTLAÐI ALDREI AÐ EIGNAST BÖRN - hahahaha - þið vitið hverra ættar hann Halldór minn er - svo... það var erfitt að standa við þessar fullyrðingar! -
I have told everyone that 100 time´s that I was NEVER GOING TO FIND A HUSBAND - but as you know my Halldór is the best man I know and also the funnyest - so I could not loose him when finally I found him - BUT THEN I WAS NOT EVER GOING TO HAVE CHILDREN - hahahaha - but as you know - Halldór is one brother off 7 brothers and 2 sister´s - ... so these words drowned themselfs when I opened my mouth so... :-))

En mig dreymir samt um líf án þess að vakna og sofna með orðin
"MAMMA" - HANN/HÚN SAGÐI ÞAÐ EÐA GERÐI -... ÉG NENNI EKKI - VIL EKKI og ÆTLA EKKI - ÞÚ ERT LEIÐINLEG og .... HVAR ER....??? -
How ever that can not kill my dream off waking up and falling asleep with out words like "MUM" - HE/SHE TOLD.../DID... - I DO NOT FEEL LIKE IT ... - I DO NOT WANT TO... - nor I WILL NOT DO IT ... - YOU ARE BORING ... WHERE IS..:!??? hahahaha

Í hinu fullkomna lífi er það ÉG sem fæ að spyrja svona spurninga og allir hinir verða að snúast í kringum mig! :-))) (sem þýðir að sennilega átti ég að fæðast drottning!? -
Miðað við vaxtarlag - sennilega sem HUNANGSFLUGA! :-)))))
In my most perfect live - I am the one asking all those question´s using all those words and all the world turnes for me! :-))) (perhaps I should have been a queen in my future live!???) - (compaired to my figur´s - I SHOULD HAVE BEEN THE QUEEN OFF THE BEE - (fly´s!) - ... for they are rounded like I am! :-))))

"Bý-kúpudrottning" - (SUÐANDI - TÆLANDI - SEIÐANDI) = segir í einhverjum góðum dægurlagatexta - (NÝ DÖNSK) - ...  Kannski var það óðurinn um mig! ??? :-)))
There is even a song in Iceland called Bý-Kúpudrottning - Perhaps it is all about me!?
(by my favorit band NÝ DÖNSK)

Hinsvegar ætla ég að taka það fram að ENGINN á FALLEGRI FJÖLSKYLDU EN ÉG - og þetta er með sanni mitt einlæga mat -... og enginn á heldur betri mann og krakka - svo þar með er ég enn og aftur eins og Ragnar Reykás - komin í hringi með þessar "umkvartanir" og verð því bara að fara að snúa mér að því sem hugur minn stóð til í upphafi ... þ.e.a.s setja inn frábærar myndir af öllu mögulegu og ómögulegu - VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU!
Inspite off all those  words in my blgg now - I have to tell you - I BELIVE NO ONE HAS AS PRETTY FAMILY AS I DO - ... that is my true inner motion - ... NO ONE HAS A BETTER HUSBAND nor KIDS - so right now I am already in circles again over what I feel about my people - ... so my task from beginning was to show you photos off all or nothing happening here these past days´... ENJOY!

Megi þið öll gleðjast yfir því að eiga þó allt það sem þið eigið - því aðrir eiga mikið minna en það! Vonir manna og væntingar búa í brjósti hvers manns og þar og aðeins þar er hægt að skapa sér ró og hamingju yfir hversdaginum! -
I hope you will all enjoy what you have - for other´s have much less!  Your hopes and your dream´s are only in YOUR heart and to find happyness you have got to find that innerfeeling and pureity that makes your day!

Ert þú óhamingjusamur/óhamingjusöm???  ARE YOU HAPPY?
 - FINNDU ÞESSA INNRI RÓ - FIND YOUR INNER SOAL -
þá finnur þú líka lífshamingjuna! there you find your happyness!

Lifðu bara fyrir þig - og þig einan/eina - Ef þú ert ekki ánægður/ánægð -
Hvernig getur þú þá ætlast til að aðrir valdi þér ánægju - eða séu ánægðir!???
Live only for yourself - and you alone - if you are not happy - How can you exspect that others will bring you happyness /or can make you happy ???

Til að öðlast innri ró - þarftu að gæta þess að sofa nóg, borða nóg og hafa reglu á daglegu amstri - Ef þessi 3 atr. eru í jafnvægi - þá er ertu komin(kominn) langt á veg með að öðlast færni til að takast á við lífið og lífshamingjuna! -
To have peace in heart - is when you can rest, eat and controle your day by waking up - and finding something to do  - If these matter´s are in order - then you are on your way to find live and it´s happyness"

(Sæunn Þórarinsdóttir - 5.maí 2008)

Mér þykir vænt um ykkur öll!  I love you all!

Kveðja Sæunn

04.05.2008 23:46

Það gengur allt vel! We are fine!

Hæ hæ -
Fyrst meðan ég man - TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ DÖGG -

First I wan to say whyle I can remember - CONGRAT. ON YOUR BIRTHDAY DÖGG -

Héðan er allt gott að frétta - við mæðgur komum heim seinnipart á Föstudag - eftir að hafa verið 4 daga í Reykjavik með mömmu í leiguíbúð Rafiðnaðarsambandsins - vegna þess að Bergrún þurfti að fara í augnaðgerð á Landspítalanum síðastliðinn miðvikudag - og hvíla sig svo eftir hana fram á SUNNUDAG - þ.e.a.s. í dag! -

All is fine - we arrived back home on friday - after 4 days in
CRAZY TOWN = REYKJAVÍK

Við mættum á þriðjudagsmorgni - til skrafs og ráðagerða við deilalækni barnadeildarinnar hjá Barnadeild landspítalans; svo við hjúkrunarfræðing; og svæfingalækni og skurðlækni - á Þriðjudaginn -
Vorum mættar kl. 9.00 en... sluppum ekki af göngum Landspítalans fyrr en 12.15 - höfðum þá rekist á Magnús Finnbogason og hana Auði -

We had to come on a thuesday - to find the head doctor on childrensection in Landspítalinn - then the nurse on duty and the doctor that helped Bergrún to fall asleep during the OP and then ocourse the surgent (doctor that did the OP (cut the musckles in Bergrún´s eye´s and mooved them!))

Og ég vil nota tækifærið til að biðja góðan Guð að hjálpa þeim í þeirra raunum - það er ömurlegt að sjá þennan líka höfðingja og frábæran lífskúnster í þessari baráttu! 
Bestu kveðjur kæri vinur - hugur okkar er allar stundir með þér á meðan á baráttu þinni stendur!  (this is about people I met when I was waiting in the hospital!)

Klukkan 8.00 á miðvikudagsmorgun vorum við Bergrún komnar í sjúkrahúsnáttföt - og inn á herbergi 2 á dagdeild Barnaspítalans - og frá þeim tíma til klukkan 11.00 biðum við eftir því að á okkur yrði kallað til svæfingar - en þá tóku læknarnir við og ég var send til að fá mér að éta - til þess að ég gæti setið yfir barninu eftir að aðgerð lyki - sem og ég gerði en... - peningurinn á kortinu mínu var búinn - svo ég fékk ekkert að éta fyrr en MAMMA MÍN BLESSUÐ kom og bjargaði mér með samloku og kók - :-)))
TAKK -    MÖMMUR ER ÁGÆTAR INN VIÐ BEINIÐ! :-))) hahahaha Mín bjargaði mér alveg í þessari Reykjavíkur dvöl!
OG FORELDRAR; Læknarnir á Barnadeildinni - höfðu alveg rétt fyrir sér - flestir foreldrar gleyma í stressinu að borða sjálfir þegar börn eiga að mæta fastandi inn til meðferðar - og ... ja - ég hafði ekkert borðað um morguninn og var orðin sársvöng! :-)

At 8.00 wedn.day - we were already in our hospital clothing and in room 2 in the childrensection in the Landspítalinn area - and from that time till 11.00 we had to wait till someone came to get Bergrún for the OP - But I was told to go have something to eat so that I would be ready in aprox 2 hours to take over the care off Bergrún - and the people in the Children hospital are right - When your child is to be without food from 21.00 day before the operaition ... till after the OP - then YOU as parent just do the same - without thinking about it really ... - and I was dead hungry in all this time! ;-)))

Læknarnir voru um 2 tíma að gera aðgerðina - sem fólst í því að færa vöðva á auganu og stytta annan en lengja hinn - (bæði augu tekin fyrir í einu!) - en með þessu nær Bergrún betri stjórn á þessum óstýrlátu augum sínum og getur einbett sér betur  - í stað þess að berjast við að fókusa á hluti allan daginn - með misgóðum árangri - og oft á tíðum hringli á augum! - ... Hún stóð sig eins og hetja - átti reyndar að fá að fara heim eftir svæfinguna kl 17 að deginum til en svaf mikið fastar en læknarnir gerðu ráð fyrir og við vorum ekki komnar upp í íbúðina hjá Rafiðnaðarsambandinu fyrr en klukkan 19.30 eða svo ... - og samt hélt hún áfram að sofa - og svaf til klukkan 8.00 á fimmtudagsmorguninn - :-)))

The OP took about 2 hours and it went fine - Better then we all hoped for - for Bergrún has not once been graying or telling us that she is in pain - but once when we had to put in steril. eyedrop´s - for the first time -... but since then she just open´s her eye´s to have them in... (take care there will not be any infection in her eyes and that her eye´s are running to make the possible dirt go out off her eye´s!)
After the OP she how ever slept much longer then the doctor´s exspected - but My mum told me it is for She and I and also my grandmum - are BAD in such OP - after being putting to sleep ... - then we can sleep for hours! And Bergrún did .... sleep till 8.00 next morning  - on a thursday! :-)))

Mamma segir að þetta sé eins með þær "ömgurnar" - Svæfingar bara fara illa í þær og þær þurfa að sofa lengi eftir slíkar hörmungar! -

En síðan aðgerðinni var lokið og Bergrún komst til meðvitunar - hef ég bara heyrt hana grenja einu sinni - (í fyrsta sinn sem ég setti þar til gerða augndropa í augun á henni til að halda sýklum og óhreinyndum frá ... - Það svíður undan og saumarnir í augunum og sárið eftir götin eru viðkvæm - svo að það er ekki furða þó að hún mótmæli - ... en síðan þá hefur alltaf verið hægt að biðja hana um að koma því að það sé kominn dropatími - ... og hún hefur bara harkað af sér! Enda kjarnorkukona EINS OG MAMMAN - ... Á að fá þessa dropa 3 sinnum á dag - á meðan bólgurnar eru á augnsvæðinu! - ... (augnlokin og augnumgjörðin er svolítið bólgið svæði og svo sagði skurðlæknirinn okkur strax frá því að það hefði verið óvenju mikið af æðum í hægra auga í slímhúð og þegar hún skar þar í gegn þá fór að blæða - svo mikið að hvítan í því auga í ytri augnkrók er blóðrauð og verður svo í einhverjar vikur!) -

These eyedrops I told you about are used for her eye´s for a week - 3 time´s a day - for the eye´s are little red and swallowed after the muscles being cut and mooved to different place´s ... but she is in good recovery and will soon be fine! :-)

Við mamma skiluðum svo af okkur lyklunum af íbúðinni til Rafiðnaðarsambandsins og fórum heim seinnipartinn á Föstudag -... TAKK MAMMA FYRIR ÓMETANLEGA HJÁLP - og KRISTJÁN FRÆNDI LíKA - sem gerðist "RÁÐSKONA" hér á Lágafelli á meðan við mæðgurnar skelltum okkur í Reykjarvíkur ástandið! :-)))

Now I want to say ... THANKS MUM - YOU HELP ME A GREAT DEAL and Kristján
my "cousine" (male name - male cousin but we call him cousine for he was so happy to help in the kitchen!) HE WAS HERE AS A HOUSEKEEPER for me whyle I was off ... - to make sure everyone had something to eat and were happy! - THANKS!

Halldór minn er búinn að standa vaktina ásamt Fló í fjárhúsunum fyrir mig á meðan - og þrátt fyrir smá "hnökra" - þá get ég ekki betur séð en að allt sé í ró og spekt í fénu mínu og kindurnar sælar og sáttar með lömbin sín! -  Fór strax í það þegar ég kom heim að setja út kindurnar sem ég ætlaði að setja út fyrir Reykjavíkurferðina (og gerði sem betur fer ekki vegna þess að veðrið var svo skelfilegt á meðan ég var í burtu ... 
= kuldi og rok!)) -

Halldór and Fló have competely tok care off the sheepstable for me whyle I am gone -and though they have had some problems - I think everything is in peace and quite - with my sheep and their house! ;-))) I already have put out 6 sheep with 2 lambs each - after I came home - but luckily I couldn´t do that before I left to RVK - for the weather here was crazy ... up to +18°C during the day - down to - 2°C over night - and HEAVY WIND so that the weather forcast told everyone heading over Mýrdalur to take care and also everyone driving to North ou off Reykjavík - in Kjalarnes area! :-(((

Á meðan ég var í burtu - drapst æsku vinur minn og félagi - reiðhestur úr hrossastofninum að vestann - sem afi sendi hingað í fyrra til að gera hinstu tilraun til að fá folald -  en nú er hún död - og Afi og hún eru sennilega á grænum grundum í "GLAÐHEIMUM" að skemmta sér við "Brölt og Skrölt" um beinar brautir himinsins - í tómri geði yfir endurfundunum! :-))) Snælda mín - þakka þér fyrir samveruna í þessari tilvist - því miður fengum við ekki að sjá afkvæmi þitt - þó að það hefði verið stutt í köstun ... - en ja... svona er lífið! 

Whyle I was gone - Snælda - the old mare off my late Grandfather from the Vest - died - and I bet you that she and he are now together riding the wind! Thanks Snælda for all our childhood dreams and wonders! :-))) I am very unhappy over her death but ... that´s live - you never know when your call is!???

Hér fæddist kálfur á meðan ég var í burtu - NAUT - og svo fæddist kvígukálfur í dag - og annar væntanlegur sennilega í nótt! :-))) Og við seldum eina kú - ... Stínu - 
Hún var sótt af nýjum eiganda í gær! -

There was a calf comming whyle I was gone - BULL - and another female calf today!
And we exspect another one this night - :-))) And for Christine - we sold Stína - ... we needed her space in the cowstable and she was not prod. enough milk to fill our standard! :-((( Good cow though! The new owner picked her up yesterday!


Óli á Gularási er að grafa hérna og snúa við austurtúnunum - Draumur okkar að rætast en þetta höfum við gengið með í maganum síðan í hitt í fyrra! -
Löggi-mann kom svo með ýtuna fyrir bróður sinn frá Guðnastöðum í dag - ... en við þurfum að fara að haska okkur við vorverkin - því að það er brottför til Danmerkur eigi síðar en 28.mai - ... og þá þurfa allir hlutir að vera klárir á stórbýlinu Lágafelli! :-)

Halldórs brother Óli is here to fill up our dream´s off better fields to the east off the road you drive to get to Lágafelli ! -
We have to get going if we are ever going on that trip to Europe in 28.mai! :-(((

Er komin með hesta í öll hólfin hjá blóðmerunum ... - 
Kormákson frá Flugumýri - ... 
Svein-Hervarson 
Geysir son frá Sigtúni (okkar Pí) 
Töfrason ... (ef hann fer ekki á Landsmót en draumarnir standa þangað!)
og 
Orrason ... (sömu draumar... og Töfrason´s eigandinn hefur!)
Staðgengill þessarra hesta er Kráksonur á öðrum vetri !

We already filled up all places for stallion´s -
We will have a Jarpur Kormáksson from Flugumýri
We will have Svein-Hervarson Spyrill
We will have our Geysir son from Sigtúni - Pí
We will have Töfrison - Sólfari - (if he is not going to Landsmót!)
We will have Orrison (same goal!)
To fill up the gap off Landsmót stallion´s - we have very promissing Krákson - waiting for a place in our mare´s! :-)))


Ég á svo pantað undir Hágang eins og margir félagar mínir í Hrossaræktardeildinni og
á Markús L-Part sem ekki nýttist í fyrra - ... Auk þess sem hugurinn stendur til Kolskeggs frá Oddhóli - ... en... MAÐUR VERÐUR KANNSKI AÐ SPARA!???
My breeding mares will go to Hágangur - Markús frá Langholtsparti and Kolskeggur Oddhóli - that is if I do not have to "save money" for pefairable trip to Europe! :-)))

Er of sein að vinna ... 
Ætlaði að senda inn nýjar myndir en læt það bíða betri tíma - 
Ætla í fjárhúsið áður en ég fer að sofa og svo sjáumst við hress á morgunn ef tíminn HELDUR MEÐ OKKUR!  ????

I am working so late...
I was going to put in new photos but ... they have to wait!
I just came home from the sheepstalbe and now I can only think;    BED!
I will be here soon for those photo´s! -
If time is on our side!???


Verð að hætta núna! Have to go now!

Kær kveðja / Greetings
Sæunn




 



  • 1
clockhere
Flettingar í dag: 99
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 148
Gestir í gær: 28
Samtals flettingar: 221879
Samtals gestir: 29224
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 21:51:44