Nafn:

Sæunn og Halldór Lágafelli

Farsími:

8918091

Tölvupóstfang:

lagafelli@gmail.com

Afmælisdagur:

06.06.2001

Heimilisfang:

Lágafelli 861 Hvolsvöllur Iceland

Önnur vefsíða:

www.lagafelli.is

Um:

Landbúnaður, sala heimaafurða og íbúðarleiga / ferðaþjónusta

Uppáhalds manneskjur:

mamma og pabbi

Uppáhalds matur:

steikt lifur

Eftirminnilegast:

þegar við tókum við Lágafelli

Færslur: 2008 Febrúar

29.02.2008 13:44

29.feb 2008 - Haupár!

Sæl verið þið! Helló you all!

Grét mig í svefn í gærkvöldi af verkjum í hendinni - leið eins og það væri víbróvaltari að keyra yfir hana fram og til baka - eins og það væri alltof þykkur vökvi að leka í gegnum slöngu og það færi fram og til baka um hendina á mér og ég bara verð að segja að ég er ekki vön að grenja en...í gær bara láku tárin vegna þess að ég gat bara ekki meir!
Helv. ... aumingi er ég að verða ... -
Vaknaði svo í morgun og mér leið eins og hendin á mér væri ekki með... það væri bara tómarúm í stað handar og ég var lengi að komast í gang... - og svo sit ég hér núna og vola yfir því að vera ekki farin að gera eitthvað! - ... En ja - það er ekkert gaman þegar þú ert með stanslausan verk og kvíða yfir því að þurfa að fara að taka á einhverju! -
I cryed myself to sleep last night becouse off my arm... - it was like someone was trying to burn it off or something ...  like the blood was to thick or ... I don´t know what ... and becouse I am not use to cry ... I do not know why I was but it somehow happened automaticly ... I just was crying and crying ... till I couldn´t anymore!
I am getting to be an ... cry baby! -
When I woke up this morning - I felt like the arm was off.. like there was nothing were it was to be... and I took ages to get started in the morning ... and now I am sitting here feeling sorry for myself for I am tired and hurting ... but well when you have an endless pain and feel only worrie´s over having to do something .. then feeling sorry for yourself is the only thing you can do ... :-(

Fór ekki í tíma í reiðkennslunni í dag ... það er of mikill snjór og svo er hendin á mér svona og Elvar á Skíðbakka festi sig hér á hlaðinu í morgun og sagði okkur svo að það væru allir að festa sig í sköflum uppi á þjóðvegi svo að ég treysti mér ekki til að keyra þetta -... Of langt fyrir mig á EINARI (einni hendi) og of erfitt ef ég festi mig að þurfa að moka með EINARI (hendi) ... - Svo ég bara bíð eftir betri tímum!
Didn´t go to my riding class today - to much snow and my hand is how it is... then our naigbour Elvar was here STUCK on his huge truck and told us there was a mountain off snow on the way to Hella - so I desided - it wasnot a vise idea do go to the riding class with only one arm and perhaps getting stuck in snow! :-(((  I will rather wait for better time!

Folöldin flugu út til Evrópu í morgun... ég vona að þau komist fljótt til nýrra heimkynna -... það er nógu erfitt að vera ný tekin frá móður og þurfa svo að vera um borð í flugvél í KASSA og fara úr frosti í HITA í Suður Evrópu! ...(Sviss, S-Þýskaland)
Now the foals flew out this morning ... I hope their journey will be quick ... it is very difficoult for them to leave their mum´s and then having to be in a BOX  ... and entering Europe with all this heat after all the frost up here ... so... I just wish them a plessant trip and to the owner´s I tell ...GOOD LUCK - take good care off them in the beginning! This is an offull change!

Halldór minn er svo fyndin maður... - Hann hitti frænda sinn nýverið - en sá er mikill fótboltaundur og var í fyrra reyndur fyrir unglingalandsliðið - en...ja ... Halldór vill endilega selja hann í ManUnd (því guttinn heldur með ManUnd) - því að ef hann verður seldur þangað ÞÁ VINNI LIVERPOOL DEILDINA - (:-)))))) hahahahaa - Halldór er Liverpool maður!)
En þó að það sé viss brandari í þessu þá var jokurinn ljótur - og við sögðum við strákinn að Halldór væri bara lélegur spaugari og að við værum stollt af honum sem íþróttamanni -... En guttanum þótti þetta sjálfum svo fyndið að ég varð að deila þessum brandara með ykkur hinum ... því að þrátt fyrir alvöruna ... þá er jókurinn góður!
Halldór is a very funny guy ... We met his very young ungle few days ago - a boy wich is very good in foodball and last year the national ICelandic teem off foodball under 16 tryed him for their teem ... - and well ... Halldór had to make fun off this - Said that if he was his father he would try to sell him to MANUND - for then LIVERPOOL would winn the English LEAD! - hahahaha - (the boy just loves MAN UND and Halldór is a fan off Liverpool) - So ... I did tell how I felt about this comment and we turned to the boy and said sorry ... this joke was a bad one ... but the boy thought it was VERY FUNNY - ...so I desided that this was a good spot to tell it... for ... well it is a good joke for foodballers! ;-))) hahahaha

Ég er líka á fullu að fagna deginum í dag ... því ég tel mig hafa grætt alveg helling á honum... t.d. tefst öldrun mín um einn dag! - Og ég verð ung 24 klst lengur á þessu ári en ég var í fyrra og verð á næsta ári! - :-))) Ég hef líka meiri tíma til að taka ákvarðanir og skipuleggja mig - og ... ja ... ÞESSI DAGUR ER UPPÁHALDS DAGURINN MINN AF ÖLLUM VEGNA ÓTAL ÁSTÆÐNA - sem tengjast lengri frestun, meiri möguleika og afsökunar á LETI!
I also am trying to selebrait this special day today 29.feb ... for I think I gained a lot by having it - ... for exsample I will not get old as fast as I would have, -...And now I have a hole 24 hours to spend as young and pretty as before ... when ... well if it was last year or next year ... I would have kept on getting old ... as fast as normally! ...SO TODAY IS OFFICIALLY MY FAVORIT DAY OFF ALL TIME's ... - this day make´s me have more time, more opertunity´s and is an excouse off being LAZY ...!!! :-))) So I JUST LOVE IT!

En nú verð ég að fara að harka af mér!
Hrossin eru farin að bíða og ég er að fara með karli mínum í Hvolsvöll að redda heiminum - fyrir helgina!
Sjöfn systir á AFMÆLI Á MORGUN og kannski finnst eitthvað í Hvolsvelli til að gefa þeirri stuttu ...:-))) (Konan er orðin 23 ára en er alltaf LITLA SYSTIR Í MÍNUM HUGA! Man hvað hún var lítil eins og dúkka og hvað ég var montin þegar hún fæddist því að engin átti fallegri systir en ég! -... Jafn montin og hvað ég varð hneiksluð - á mömmu og pabba þegar þau sögðu okkur Val bróðir að von væri á barni (henni Sjöfn) því þegar maður er 12 ára og á allt í einu von á systkini - þá vill maður ekki vita að MAMMA OG PABBI GERA ÞAÐ! - (OJ BARA! - GAMALT FÓLK GERIR ÞAÐ BARA EKKI - ... hahahahaha - ÞAU VORU 31 .... ÞIÐ GETIÐ ÞVÍ ÍMYNDAÐ YKKUR HVERSU OFT VIÐ HALLDÓR GERUM ÞAÐ! (við erum fædd 1973 - reiknið þið svo! :-))))) hahahaha ...
But now I have got to go out to feed the mare´s...
I have to go to town today to save the day - becouse tomorrow there is a weekend!
My sister Sjöfn has a birthday tomorrow... - perhaps I can find something in Hvolsvöllur to give to that pretty girl!
(She is suddenly getting 23 ... though she looks to me like my baby sister!  I can still remember how happy I was when she finally came to this world - she looked like a DOLL - ... and I was so happy!  As happy as I got shocked when I found out my mum and dad still had sex - ... when they were already SO OLD (they were 31 - when they had her) ... -
(and now you can all emagine how much sex there is at Lágafelli .... for we are both born 1973... and ... well .. now you have to figure it out ... hahahahaha!)

Góða helgi öll sömul -
Ætla ekki að opna fyrir tölvuna fyrr en á Mánudag... - við erum að reyna að hafa LOK og læs um helgar og ... ja ... - það er komin helgi! :-))) Parketið mitt er loksins allt komið í Hvolsvöll og Óskar Álfarhóli er að sækja það fyrir mig - þannig að kannksi verður hægt að klára gólfin niðri! ?????:-))))
Kveðja SÆunn
Hope you have a nice weekend!
I will not open the computure again till Mondayu ... we are trying to keep it shut off on weekend´s ... so... now it is already weekend! :-)))   My floor is in Hvolsvöllur already ...and Óskar son off Bjössi is getting it for me... so... perhaps this weekend we can finish the floor downstairs!???:-)))
Greetings  Sæunn



28.02.2008 20:53

Af okkur!

News from us!

Við búum enn á Lágafelli - We still live at Lágafell -

Hér er allt á kafi í snjó - There is all covered with snow outside -

Hér er verið að mjólka 29 kýr - en það er komið að stóra stopp - Við erum að fara að gelda einar 7 núna eftir viktina í morgun og ætlum að gelda 5 í næsta mánuði! - Bylgja okkar var hæst í vikt í morgun með 36 lítra, Langhala 34 og Úa og Nína voru í 31 lítrum... - ... og svo komu nokkrar þarna nærri - en... ja - það eru jú nokkrar að komast í frí - þannig að mjólkin í 2ja dag tanknum er ekki nema um 1100 L eða svo! -
En... eins og ég sagði fyrir nokkrum vikum eru bornar síðan í júlí 21 kú - og það er annað eins eftir að bera núna á vormánuðum og fram í Maí! - (en við ætlum líka að fara að stytta nokkrar kýr um nokkra sentimetra - svo að það þynnist í hópnum þegar það fer að vora! - Á meðan framtíðin er svona í búskapnum er eins gott að selja alla lítra sem maður nær að kreista úr hverjum grip áður en þeir eru látnir fara yfir móðuna miklu!)
We are milking 29 cows at the moment - but now we are heading for the big stop - We have to give 7 cow´s their yearly break after the messurement we did this morning! And in next mounth there will be a stop on 5 others...! - Our Bylgja was the highest in the morning - gave us 36 líter´s - then Langhala with 34 and Úa and Nína gave 31 líters each - ... and few cow´s came close to this - ... but like I said there are some that need their brake already and therefor our two day´s milk is only 1100 líter´s - or so...!
Few weeks ago - I told you we had 21 new born cow´s since júlí - and we have another thing comming like that - till Mai start´s ... -(but few off our cow´s we need to shorten by some centimeter´s soon - so when the spring come´s - we will not have that many cow´s again!  This is called - ... selection  - to have only the animals working for you that give the most product´s and money back and then... do not cost that much to run!)
While the future is like this in the agriculture off Iceland - then we do need all the liter´s we can sell - but there are cow´s in our heard that do not get any more secound changes!

Okkur barst bréf í dag - þar sem við vorum beðin að vera viðstödd fund á Þingborg - þar sem á að veita okkur viðurkenningu fyrir afurðakú - ... Við erum mjög hreykin af þessari viðurkenningu - ... og ætlum að sjálfssögðu að reyna að mæta -... We got a letter today - where we were asked to come at a meeting where we will get a medal for one off our cow - ... We are very happy about this ... and we will ofcourse try to go... -

Það varð ekkert af reiðkennslu í gær ... Svanhildur var veik - og lá í rúminu með flensu - En ég ætla að reyna að komast uppúr á morgun - Merarnar eru að komast í ágætt form - þó að ég sé eins og SLYTTI -... :-))) There was no riding lesson yesterday ... Svanný got sick ... and was in bed with fever... - But tomorrow - ... I will go ...  My riding mares are getting very good ... but I feel like shit over my performance!

Við keyptum miðana til Evrópu í morgun! - Úbs - nú verður ekki aftur snúið! - Það verður farið í sumarfrí ERLENDIS!
Nú er bara að vorið komi - svo Halldóri takist að klára allar vor annirnar áður en við förum!
We bought our ticket´s to Europe this morning! ... Úbs - now we can not back out off this idea! ... We will go abroad this summer! - Now it is just to wish for the spring to come - ... so Halldór can prepair summer before we go! 

Það kom frétt í sjónvarpinu og á hestafréttir um folaldið góða sem fæddist hér á bæ þann 25.02.08 í uþb -10°C frosti - 
þið getið nálgast hana á þessum link hjá www.rúv.is ...   http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4397850/18 -
og hér hjá www.hestafrettir.is  ...  http://www.hestafrettir.is/Frettir/3851/
There are news all over both in TV and at Hestafréttir - about this fine new born foal that got born at our farm 25.02.08 - in
-10°C frost and snow...  you can use the links here up ove - and then you can see Góa - on new´s report in Iceland!

Freysteinn og Valberg spiluðu á enn einum tónleikunum í gærdag kl 18... - ég er enn ekki farin að setja myndirnar af tónleikunuminn á tölvuna mína - svo ... myndir af þeim verða að bíða þar til síðar -
Freysteinn and Valberg were playing in one more music - meeting yesterday at 18 hours - but I have not put those photos on the computure yet so... these photos have to wait till better time!

I think I have no more new´s about us! Ég held að það séu ekki fleiri fréttir að færa ykkur frá Lágafelli -

Ég var spurð að því hvort það væri ekki VENJULEGA ALLTAF STORMUR Á ÍSLANDI - þegar það er vetur... -
Og ég held að við verðum að útskýra svolítið hérna! -
I was asked  if there was not always STORM in ICELAND during WINTERTIME -
And I do think I have to explain!

It is often in Iceland - that we do get storm - but normally we do not get snow with it .. like this winter...
Last time I remember so much snow was when I lived 11 years ago on a Farm called Grenstangi!
Síðast þegar það var svona mikill snjór - hér í Landeyjum - var þegar ég bjó í Grenstanga - fyrir 11 árum síðan!

Það blæs jú oft duglega hér um slóðir - en mér virðist sem þeim blæstri fylgi mjög oft REGN - ... nú ef ekki er rosalega kaldur NORÐAN GARRI sem getur mann alveg drepið!
Yes - it can blow very hard out here - but normally when it is a blizter then we also get RAIN  - ... so this winter´s NORTHERN FROST - can almost kill you!

En það er bara gaman að eiga við snjóinn - þegar hann er eins og í dag ... bara kyrr á sínum stað ... og það er bara logn úti - eða hér um bil ...Þegar svona veður er - er bara gaman að búa í Landeyjum ... það er allt svo hreint og fallegt á að líta! 
But it is just nice to have snow when it is like today... just staying where it landed -... it was almost quite wind today ... and then the snow is not blown up to the sky ... MAKING LANDEYJAR COVERED WITH MIST!

Ég var líka spurð að því hvers vegna ég væri að blogga svona mikið um allt og ekkert og ja -... það eru vinir og félagar um allan heim ... Sem eru að spyrja okkur sömu spurninganna ALLA DAGA... - oft á dag! -
Með bloggi leysi ég ákveðinn vanda -... ég bara bendi á bloggið mitt og svara svo þeim spurningum sem ég VERÐ að svara frá hverjum og einum - í persónulegum skrifum!
I was also asked about WHY I wrote so often on my blogg side ... and well... there are friends and family all over the world - We get questions EVERY DAY  - OFTEN A DAY -... wich are all the same!
With my blogg - I fix a sertain problem ... - where I point to by blogg -... and then I choose the question´s that I have to answere personally -... to write back to my people!

SNIÐUGT!??? CLEVER!???

Jæja -... Verð að hætta núna...
Ég er búin að bulla frá mér allt vit ...
Well ... I have to quit now ...
I already wrote down all my thought´s long time ago!

Kossar og knús til ykkar allra!
Kisses and hug´s for all off you!

Sæunn




26.02.2008 11:36

Sogæðabólga!?

Æðakerfi líkamans skiptis í þrennt

Slagæðar
Bláæðar 
sogæðar

Ég ætla hér að fjalla um sogæðarnar - því mér er sagt það af lækninum mínum að það sem ég er að glíma við þessa dagana sé sogæðabólga! -

því að hann segir mér að í öll æðakerfi líkamans getur komið upp sýking -

Sogæðabólga er sýkning -
Í hverju líkamskerfi eru hópar sogæðaeitla og hafa þeir síunarhlutverk! 

þar eru bakteríur, vírusar, dauðar frumur og ýmis eiturefni brotin niður og skilin frá! 
Sogæðarnar gegna mikilvægu hlutverki í vökvajöfnun um líkamann!
Í þeim ferðast prótein og síaður blóðvökvi aftur út í æðakerfið!
Þetta kerfi í mér er semsagt eitthvað lasið! - Og veldur því að mér er sífellt kalt, ég er alltaf með verki, eitlarnir á mér eru rosalega stórir og ég er síþreytt - því ég sef svo illa vegna verkjanna!!!

Sýkingar sem þekktar eru í sogæðakerfinu eru;
Sogæðabólga - og sogæðabjúgur!

En hvað er sogæðabólga?

Umhverfis allar frumur í líkamanum er vökvi sem er kallaður millifrumuvökvi og er hann nálægt því að vera 15% af líkamsþyngdinni. Þessi vökvi endurnýjast stöðugt vegna leka út úr háræðunum og hann tæmist út í sogæðakerfið eða öðru nafni vessaæðakerfið. Sogæðarnar liggja í gegnum eitla, sem gegna m.a. því hlutverki að hreinsa sogæðavökvann af sýklum, og opnast að lokum inn í bláæðakerfið í brjóstholinu. Ef sogæðarnar skemmast eða eitlarnir eru fjarlægðir, truflast frárennsli millifrumuvökvans og þá myndast það sem er kallað sogæðabólga, sogæðabjúgur eða vessabjúgur.

Sjúkdómurinn leggst nær eingöngu á konur! Og það virðist vera mjög lítið hægt að eiga við hann því lítið er hægt að hjálpa sjúklingum með sogæðabólgu.
Það er stundum hægt með ýmsum ráðum að halda bólgunni/bjúgnum niðri, og sumar fá einmit stundum einkenni en góð hlé á milli. Þær sem hafa króníska sogæðabólgu geta sig eiginlega hvergi hrært.

Minnsta álag/áreiti á handlegginn(ina) veldur auknum bjúg/bólgu með tilheyrandi verkjum og restin af skrokknum drabbast niður af einskæru hreyfingarleysi. Sem er ömurlegt því að stundum finnst mér ég alls ekki geta hreyft mig! Þrjóskan ein rekur mig áfram!  Það er skelfilegt að geta sig hvergi hrært!

Það er sama hvar leitað hefur verið á netinu; enginn virðist geta gefið upp neitt sérstakt æfingaprógram og mótsagnirnar eru óteljandi. Það helsta má samt súmmera í: ekki teygja á, ekki lyfta/halda á neinu yfir 2 kg, ekki fara í heita potta/sólbað eða sitja fyrir framan arineld, ekki sveifla útlimnum, ekki láta hann hanga, ekki verða fyrir hnjaski/fá sár/láta sprauta sig/mæla blóðþrýsting, og helst ekki fara í flugvél.

Er eitthvað eftir til að lifa fyrir?

Sogæðabólga getur átt sér margar orsakir, meðfæddar og áunnar.

Meðfædd sogæðabólga er til staðar hjá einum af hverjum 10 þúsund einstaklingum, hún getur byrjað skömmu eftir fæðingu eða ekki fyrr en eftir 35 ára aldur.   Er ég orðin svona gömul!??? - Eða fæddist ég með þetta!??!?

Áunnin sogæðabólga er vegna skemmda eða stíflu í áður eðlilegum sogæðum.
Síendurteknar sogæðasýkingar (vegna baktería) leiða oft til langvarandi sogæðabólgu en algengasta orsökin á heimsvísu er þráðormasýking (filariasis).  Þáðormarnir geta stíflað sogæðar, valdið langvarandi sogæðabólgu og stöku sinnum því sem kallað er fílsfótur (elephantiasis). OJ BARA!!! :-(((

Aðrar orsakir sogæðabólgu eru skurðaðgerðir og geislameðferð við brjóstakrabbameini sem geta valdið sogæðabólgu í handlegg og af sjaldgæfari orsökum má nefna berkla, snertiofnæmi og iktsýki.

Sogæðabólga er oftast sársaukalaus en útlimurinn er þrútinn og þungur og ef ástandið stendur mjög lengi versnar útlit útlimsins smám saman!
 
Meðferðarúrræði eru ekki upp á marga fiska. Svo ég verð sennilega bara að halda áfram að vera með hendi sem sífellt verður bólgnari og bólgnari (sérstaklega þegar ég vakna á morgnanna!) Með hjartslætti og hræðilegum náladofa - alveg upp í handakrika...!!! -

Flestir eru þó sammála um að engin lyf dugi en hvetja eigi sjúklingana að hreyfa sig og stunda hæfilega líkamsrækt; sprautugjafir og blóðþrýstingsmælingar er hægt að framkvæma á hinum handleggnum.

Það hjálpar oft að nota teygjuumbúðir sem veita hæfilegan þrýsting og koma þannig í veg fyrir að bjúgur safnist á útliminn og getur þetta m.a. skipt miklu máli ef farið er í flugvél.  Ég man eftir að hafa séð augl. einhversstaðar þar sem seldar voru flíkur til að klæða sig í og um leið örva sogæðakerfið! - MUNIÐ ÞIÐ HVAR HÆGT ER AÐ NÁLGAST ÞETTA!???

Gerðar hafa verið tilraunir með tvær tegundir skurðaðgerða sem lofa nokkuð góðu. Æ NEI EKKI SKERÐA MIG MEIRA!

Stundum er hægt að tengja skemmdu sogæðarnar við bláæðar og veita vökvanum þangað; þetta eru vandasamar aðgerðir sem heppnast stundum vel og stundum ekki.

Einnig hefur verið reynt að beita fitusogi á útliminn og fjarlægja þannig fitu undirhúðarinnar og hefur stundum náðst góður árangur á þennan hátt. Um öll þessi úrræði getur viðkomandi skurðlæknir veitt upplýsingar. 
ÉG æTTI AÐ FÁ MÉR STÓRAN SKAMMT AF ÞESSARRI MEÐFERÐ! - ;-)))))))

p.s ...
flestar þær upplýsingar sem fylgja með inn á bloggið mitt - eru teknar út af vef laekning.is - ...
þannig að þangað ættuð þið að halda ef ykkur vantar upplýsingar um hvað gæti verið að YKKUR! :-)))

p.s.s.
ÆTLI ÞAÐ SÉ TIL LÆKNING VIÐ FORVITNI!???

25.02.2008 08:09

Gunni og Krissa sækja útfluttningshrossin í dag!

Helló you all!
Gunni and Krissa are comming for the export horses today!

Sæl verið þið

Það stendur til að smala og örmerkja í dag og væntanlega gefum við folöldunum aukaskammt af ormalyfi fyrst að við erum með þau í höndunum - og svo fara 8 stk til nýrra heimkynna í dag - en það er flogið með þau út 29.Febrúar -
Svo nýir eigendur vera í skýjunum um helgina ef allt gegnur vel! Og að sjálfssögðu óskum við ferðalöngunum alls hins besta hjá nýjum eigendum og nýjum eigendum til hamingju með kaupin!

It is a day off horses today - when we put in the chipmark´s and then we will get the foals their extra share off the devermicure - since we will already have them in our hands and then we have to pick out 8 off them for the transport wich will be done today - when Gunni and Krissa take them to Reykjavík and at 29.Feb they will be exported to Europe -
So the new owner´s will for sure walk on their toe´s the hole weekend if everything goes like planed!
FINGERS KROSSED! We wish all the new owners - a very good future with their great horses! 

Kveðja Sæunn

24.02.2008 13:40

VEI - það varð ekkert Hey hey hey!

Hurray - there was no HEY HEY HEY!

The Eurovision precontest in Iceland finished last night with the victory off a group wich called themselfs the Euroband - and the song is called This is my live! -
Evróvision söngkeppninni lauk í gær með sigri sönghópsins Eurobandsins - Sigurlagið var This is my live! (upp á ensku)

Þið getið séð keppnina á www.ruv.is - vefsjónvarp - laugardagslögin - ... (veljið laugardagur) - ef þið hafið missta af henni!

Hér á bæ er mikið gert úr keppninni - það er alltaf haldið Eurovision partý og við höfum öll skoðanir á lögunum sem voru í keppninni - Ragnheiður Gröndal átti mitt atkvæði alveg fram á fluttning á laginu hennar I wanna stay í gærkvöldi en þá missti lagið ljóma sinn og mér finnst núna þegar allri keppninni er lokið að lagið sem Páll Rósinkranz flutti - sé EINA LAGIÐ í keppninni - enda er Páll alveg svakalegur söngvari - og hefur ALLTAF átt hjarta mitt - sama hvort hann syngur með Jet black Joe eða Fíladelfía - Hann er með frábæra rödd og nær þér inn í hjartstað þegar hann flytur lögin sín! -

Það voru hinsvegar ekki allir á heimilinu á sama bandi og ég ... Halldór hélt mest upp á Dr. Gunna - og uppþvottahanskana - Freysteinn fagnaði þvílíkt í lok keppninnar því að Friðrik Ómar og Regína áttu hug hans og hjarta alla keppnina - en Valberg og Bergrún voru HEY HEY HÓ fólkið í minni fjölskyldu!

Mér fannst reyndar í allri keppninni að Wigle Wigle song - hefði átt að komast áfram ... Fíla það virkilega og kemst í þvílíkan dansham þegar ég heyri það að mig langar bara að Dansa upp á DEKKI! :-))) Flott lag hjá henni Svölu!/HAFFA HAFF -

Við ætlum að kaupa lögin á nýja Laugardagslaga disknum og dansa og syngja með eins og við eigum lífið að leysa!

You can see the contest at www.ruv.is - vefsjónvarp - laugardagslaugin - (choose Laugardagur) - if you want to see it!

We are doing everything - every year to see this contest - both here at Iceland and when the grandpre is in Europe -
We all have our opinion on the song´s and the preformer´s and up till last night there was a young singer Ragnheiður Gröndal wich held my vote - but her stageperformance last night was so LAME - last night that I changed pulse and my vote ended with the song wich Páll Rósinkranz sang for us last night - but he is the best male singer we have - and where ever he is my heart is ALWAYS banging as hard ... He use to sing in a band called Jet Black Joe and that band is one off the best one´s that Iceland ever had - But he also sings in a Filadelfia church for he belive´s and when he sings such song´s he is also very good singer! - He has got a great voice and when he is singing my heart always get´s it!

How ever There was no harmony in the family´s belive on the song´s wich were sang last night at the contest -
Halldór´s favorit was the song by Dr. Gunni - the band with the yellow dishwasher glow´s - Freysteinn was holding his vote for the band wich in the end had victory - and he was very happy about that ... - Valberg and Bergrún were however our Hey hey hey people! - Like many off the young people in Iceland - ... for it is such a fun song - but luckyly it didn´t get passed the telephonevote - :-))) hahahaha - That would have been on my opinion a BAD CHOICE! :-(((

I how ever thought the very best song off all the contest was the song wich fell out some weeks ago - named WIGLE WIGLE SONG by Svala - ... When ever I hear it I want to jump up on a table and dance my shoe´s off! :-)))

We are for sure going to buy these song´s on the CD they have made after the contest and ... there will be dancing at Lágafelli for some weeks! :-)))

Það er loksins komið skaplegt veður -
En það er snjór úti - ... ég fór á bak í gær í fyrsta skipti í langan tíma - og ég verð að segja að mér finnst merin hún Alfa hafa lært alveg heilan helling af þessari Reiðkennslu sem við erum í! - ... Ég reyndar skil ekki hvers vegna hún vill alltaf lulla með mig í gangskiptingunum - en Töltir bara eins og milla undir Halldóri - og svo finnst mér eftir því sem mér fer fram í getu - að hún sé að leggjast meira og meira í taum ... - en...??? Það er kannski mín tilfinning!??? Eða kannski er ég að gera eitthvað rangt!?  Best að spyrja út í þetta í næsta tíma!
Now finally we have good weather -
But it is all covered with snow - ... I was riding Alfa yesterday - and I feel like she is getting much better as a riding horse now ... learning a lot from it! - .. But I do not understand why she always has tendence to do pig pase with me when I do my shift´s between tölt and brokk ... - when she has always just gone on pure Tölt with Halldór - and then when I have learned so much about the brislet work - I feel like she is suddenly more on the range - ...but??? perhaps it is just my feeling!???
Or might be I am doing something wronge! ?  I will for sure ask about this in my next class!

Halldór er að kalla á mig út...
Verð að hætta -...
Héðan er allt gott að frétta annars - ... Við erum hress og krakkarnir klárir... það er að koma mynd á neðri hæðina - ætlum að reyna að setja parket undir stigan í dag! - VONANDI - það er annars búinn að vera gestagangur og SÍMATÍMI í dag -
svo er ég upptekin við það þessa daga að fylgjast með flugfargjöldum vegna utanlandsferðarinnar sem fyrirhuguð er! -
Þess vegna fer meiri tími í tölvuna en búið er að gera í allan vetur!
Halldór is calling for my help...
Have to go..
We are fine though - All healthy and the kids as smart as ever... there is also a form off an house downstair´s - today we are going to put parket on the floor under the stairway downstair´s - HOPEFULLY - ... we have had guest´s this morning and there have been people phoning us all day ... -+ that I am very bussy now finding out the best way off going to Germany and Danmark next summer - ... So I am at the computure much more then I have been the hole winter!

En nú verð ég að hætta ...
But now I have got to go...

Vona að þið hafið það gott hvar sem þið eruð!
Hope you are doing fine - where ever you are in the world!

Kveðja
Sæunn

p.s Linda frænka er orðin 25 ... og sendi mér meil um daginn frá Nýja Sjálandi - ... Henni finnst hún sé næstum orðin 50... hahahaha....- upplifði sig þvílíkt gamla af því að verða 25 ... og ég sagði henni að svona hefði mér líka liðið þegar ég varð 25 ... eins og næst yrði ég 50.. en síðan þá hef ég bara orðið 18 ... á hverjum afmælisdegi sem líður ... og mér finnst ég alltaf vera að yngjast - .... -:-þ

p.s.s.
Halldór var að skammast í syni okkar í gær - Þeir hafa alltaf þótt nokkuð líkir í útliti Valberg og hann - og skapferlið er að mínu mati eins -... en... í gær toppaði Valberg allt sem á undan hefur gengið í uppeldinu á honum...
Hann gerðist sem sagt brotlegur á ákveðinn hátt og pabbi hans tók í hann fyrir - en sá litli vildi ekki hætta - svo pabbi hans varð grimmur á svipinn og gerði sig mjög alvarlegan yfir þessu öllu - Og þarna horfðust þeir í augu mjög grimmir báðir tveir þar til Valberg galaði upp fokvondur; - PABBI - ÞÚ ERT BARA LEIÐINLEGA LJÓTUR! -
Og þar með var uppeldið farið fyrir vísindin - því mamman sprakk náttúrulega yfir þessu kommenti sonarins og hló og hló sig máttlausa - þar til það voru allir farnir að hlæja og ... ja... stundum eru börn bara perlur! - Mín eru það dýrmætasta sem ég á ... þó þau séu hálfgerðir villikettir! :-)))


22.02.2008 09:28

Bara stutt!

Only short

Ég skrifaði inn á naut.is í morgun
Ætla að gera copy paste á það hingað inn seinna en...
þið sem eruð óþolinmóð ættuð að snúa ykkur þangað www.naut.is kýrhausinn

I was written an article about the famers-status - in Iceland - this morning to express my fellings -
If you understand anything about what I am talking about in ICelandic - then you will find it on www.naut.is Kýrhausinn
I will copy paste it in here too.. but for the unpatient ...start translaiting!

Kveðja Sæunn

20.02.2008 14:48

Myndbönd sem mér finnst þið ættuð að sækja!

Video clip´s I think you should download from internet!

Neikvætt - negative news
Sláturhús í Usa - sjúk dýr til neytenda - Sloughterhouse in USA - sick animals put into food production -
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4397840/11

og jákvætt! positive new´s

Svona landkynning er frábær og vinningur fyrir okkur Íslenska bændur -
This is very nice introduction on Iceland and a surprise victory for Icelandic farmers -
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4397840/13

Og þegar þið komið á bak hjá mér - vil ég að þið kunnið allt þetta!
And when you ride for me - then I want you to know all this! - AND BETTER!
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4397837/16


Kveð ykkur að sinni -

Sæunn
p.s ekkert ferðaveður að Neðra Seli - er bara heima og ætla að reyna að taka til - og koma mér í það að leggja parket um helgina -
p.s no weather for driving with a trailer - I will just stay at home today and try to cleen the house - and then we are putting new floor on downstair´s - so.. I have enough to do!

20.02.2008 12:09

Af Evrópusambandsaðild!/Going to Europ.union -

Hæ hæ -
Sá það á www.naut.is núna í morgun að það hefur birst frétt frá Noregi þar sem þarlendir bændur eru farnir að átta sig á því að þeirra uppruna kúakyn (skylt því íslenska) er að deyja út og telur stofnin nú ekki nema um 800 dýr -
Því eru Norðmenn farnir að vinna að því hörðum höndum að byggja upp þennan deyjandi stofn - og sú sem ritar í Kýrhausinn segir að sennilega sé þetta verðandi útfluttnings grein á Íslandi - AÐ SKAFFA NORÐMÖNNUM SÆÐI fyrir upprunalega Norskan Kúastofn! (:-))) hahahaha ... það er vissulega undirtónn í þessum skrifum en...og það hlakkar í mér!)

Ég var að hluta á Rás2 á Föstudagsmorguninn síðasta þar sem þau ágætu Stjórnendur morgunvaktarinnar á Rás2 - áttu viðtal við fróðan mann um Evrópusambands aðild - til að tryggja okkur hér uppi á Ísaköldu landi - framtíð! -
Og sá sagði - og vitna ég nú í skrif mín hér á blogginu fyrir fáeinum dögum síðan - að EF VIÐ GÖNGUM Í EVRÓPUSAMBANDIÐ - þá erum við þar með búin að missa part af SJÁLFSTÆÐI OKKAR - (gætum sem sagt alveg eins verið enn undir Dönum! :-) - Því að þegar við göngum undir Evrópusambands aðild - erum við að skrifa undir samninga þess efnis að LÖG OG REGLUGERÐIR EVRÓPUSAMBANDSINS ERU ÁVALLT RÉTTHÆRRI OG VEIGAMEIRI EN LÖG OG REGLUR AÐILA SEM DRAGAST INN Í EVRÓPUSAMBANDIÐ! -
Sem þýðir það að það VERÐA ENGAR UNDANÞÁGUR FYRIR OKKUR ÍSLENDINGA - Ef við ætlum að verða aðilar að Evrópusambandi erum við Evrópusambandsríki og okkar stjórnsýsla verður í raun Evrópusambandsins -
Því þaðan koma jú - allar reglur sem okkur ber að fylgja - Okkar ágæta Ísland verður þar með komið aftur á vald ofurherra sem fyrst og fremst tryggja sína framtíð og við þurfum að taka á honum stóra okkar til að lúta ekki algjörlega "í gras" með okkar skoðanir og vilja innan sambandsins sem allir þrá svo mikið þessa dagana!

Því kalla ég aftur eftir því að við bændur förum að líta eftir aðilum/aðila sem er vel Lögfróður og þekkir Evrópusamningana  - Við þurfum á aðstoð þeirra að halda sem eru viljugir að standa VÖRÐ um okkar hag í samþykktum sem snúa að EVRÓPUSAMBANDINU - ÞVÍ við megum ekki falla í þá gryfju að halda að íslensk Stjórnvöld geri það!
Ég kalla eftir því að allar áherslur innan greina íslensku bændastéttarinnar - verði snúið á sömu sveifina - og OKKAR HAGUR TRYGGÐUR sem FYRST - ef kemur að því að semja um Evrópusambandsaðild -

Ég veit að ég hef verið gagnrýnin og ekki sparað stóru orðin þegar mér hafa blöskrað Kýrhausaumræðurnar - sér í lagi þegar mér virðist sem svo að það eina sem kemst að í huga þeirra aðila sem kosnir hafa verið til að vasast í málefnum Kúabænda - sé að flytja inn NÝTT KÚAKYN en ... samningar sem tryggja eiga OKKUR kúabændum framtíðina - eru bara látnir liggja til hliðar á skrifborðinu og ekkert verið að fylgjast með umheiminum! -

Ég vona að við bændur stöndum ekki uppi með það einn daginn að hér verið komin Evrópusamþykkt - og eins og stjórnvöld okkar ágæta Íslands vilja hafa það .... enginn kvóti -... en samt ótakmarkað flæði innfluttra neysluvara sem okkur ber að keppa við á markaði ... en samt verði ... fáir útvaldir aðilar sem mega skipta með dýrustu aðföng sem bændur þurfa til að reka bú sín og takmarka þar með getu okkar til að lækka afurðir okkar til jafns við samkeppnisaðilana - ... og ríkið og kosnir stjórnarmenn bændastéttarinnar gleymi að tryggja afkomu okkar til framtíðar ... því ef ég hef lesið mér rétt til þá eru til samningar sem eiga að tryggja það að MITT ÁGÆTA KÚAKYN SEM ER EINS OG ÞAÐ NORSKA ... sé styrkhæft vegna þess að fjöldi gripa í allri hjörðinni er Í LÁGMARKI til að tryggja eðlilega stofnstærð - ... ótti minn er sá að vegna þess að menn eru enn ekki farnir að tryggja það að ... ef til Evrópu verður sótt - ... þá séu menntaðir aðilar á okkar vegum sem skima út - alla peningagreiðslur og réttindi - OKKUR TIL HANDA - og tryggja þar með að hér verði ekki glundroði og tekjutap í bændastéttinni - vegna þess að ég held að margur bóndinn megi því miður ekki við miklu ef tekjurnar skerðast - það eru margir búnir að botnkeyra reksturinn ... og það veitir ekki af að vera á varðbergi!

Ég vona að þið áttið ykkur á því að Evrópusamningar eru ekki bara "seðlar" - Króna vs Evru - Við erum að fara inn í miklar breytingar (ef af verður) og við megum hafa okkur við að skilja allar þær samþykktir sem nú þegar teljast LÖG og REGLUR innan Evrópusambandsríkjanna - ÍSLAND FÆR EKKI "SÉRMEÐHÖNDLUN" - frekar en önnur ríki -

Eigið góðan dag!
Kveðja
Sæunn Lágafelli

I think I can not really translate all I just written about the EU - but the biggest part off it is that Icelandic politic and finance market is all for signing up for EU - and all becouse the ícelandic Króna (money) is so unstabil at the moment that it is almost impossible to trust it on the finance market -.. and therefor the Goverment is thinking that ICELAND is allowed to take up EURO (money) - without going to E.UNION - But as far as I know it the Euro is only for the contry´s that take part off the signed agreement that Country´s off E.UNION have made between them and that there is no contry allowed to get only one part off these agreement´s and not join the rest off the signed contract´s the EU country´s have made between each other - I think  - IF WE GO TO THE E. UNION - We as farmer´s in Iceland - have to make sure that there is a member off our Union or even more then one member - that make sure that he/she know´s exsactly what these agreement´s are going to meen for us when Iceland is suddenly a member off EU - ... someone should have leagle and professional stand to guard our ICELANDIC FARMER UNION - but at the moment it seams to be the only goal off these good people chosen to work for us and make deals for our future - to find out a way to get a new cow-pedigree into the country - and it has to come from NORWAY - (they want to transport new cows into the country - though it is not allowed to transport any animals into the country wich are used for food - and IT IS A STRIGHT RULE - made many year´s ago to protect our animals for all kind off sickness you know from all over the world but doesn´t exsist in Iceland) - ... this fact makes me angry - I would rather have thouse chosen people off our Farmer UNION working on something important like protecting MY FARM from going bankroped if there will be a membership in Europian Union - for I know it already that Iceland is not going to have any special agreements in these already made lows and orders that the country´s wich are already in thouse contract´s have already made -... and I am affraid that MANY Icelandic farmers are going to be ... bankrobed if there is ever going to come to this - ... We can not as the now a day is ... compete on an open market with all those cheep country´s in Farmer´s product - without know exsactly what is allowed and what is not ... in these contract´s wich are over EU - and... well I know for sure our low´s and regulation´s are not working after we join in! THAT IS A FACT! - 

Hope this is readable -...
IT IS RAINING LIKE HELL OUTSIDE and I have to get myself going for the riding class -
Pí was to go there today - I think I will just wait till the weekend come´s to get him up there - It is anyhow not possible to do anything in training when there is such a bad weather! 
Sæunn 

18.02.2008 22:22

Keypti mér trippi í dag - en setti samt 8 í sláturhús!

I bought a one year old mare today - but 8 off our foals form 2007 went to the slougtherhouse!

Ég komst ekki til að klára textann í síðasta bloggi - en ég ætla að gamni að rifja upp það sem á daga okkar hefur drifið síðan ég bloggaði síðast -
I didn´t get the change to finish the blogg on Sunday - but I will now try to remember all that has happened at Lágafelli - since my last real blogg -

Foreldrafundum í skólanum er ný lokið - Krakkarnir okkar koma bara vel út úr mati hjá kennurunum og við erum rosalega stollt af Freysteini okkar - en hann fær eintómar 10 og 9 - og er virkilega að standa sig í skólanum -
Hinir krakkarnir eru ekkert síðri - og við erum mjög stollt af árangri þeirra!
The parent´s meeting at the children school have just took place - Our kids scored very high in the teacher´s value off ability to studyand we are VERY happy for Freysteinn scored only 10 and 9 - and has really made it an effort to be GOOD at school - Our other kid´s are not worse then this - and we are very HAPPY about their schoolyear! - Exsellant!

Við Halldór erum eins og gamalmenni - það er alltaf svo mikið að gera að ég er öll orðin skökk og skæld í höndunum og í mjöðmunum en Halldór er að farast í löppunum og í bakinu - (en ég verð að segja það ... MAÐUR VEIT EKKI FYRR EN MAÐUR LEITAR SÉR LÆKNINGA HVAÐ ER AÐ! - Ég er þó búin að fá úr því skorið að eitlastarfsemin í mér er eitthvað röng og eitlarnir OF stórir - en... Halldóri finnst læknar bara BULLARAR og nennir ekki að fara til þeirra til að KRUKKA Í SIG - hahahaha - Eins og hann sé eitthvað merkilegri en ég!??? Eða þú!??? - Læknar eru að mínu mati ákaflega færir menn/konur og vita oft miklu meira en mann grunar - þó að maður hitti ekki alltaf á rétta læknirinn - en þeir eru svo margir að maður verður bara að þrjóskast við og LEITA að þeim eina rétta!)
Me and Halldór are walking around the farm like two elderly people - it has been so much to do ... - I have been very bad in my hip´s and my hand´s and ... Halldórs back and the leg´s are killing him (But I have to say this... YOU NEVER KNOW WHAT IS WRONGE WITH YOU till SEEK A CURE!) - I already found out by going to the doctor that my "eitlar"/the ends off my "wain´s that deliver the blood back to the sircle in the body" - well they are TOO BIG - and ... I should go for a massage and eat some kind off pill´s for it ... :-)))) (D.E.S.K.U.S.T.I.N.G!) - (I have never in my live been able to take pills!)
But at least I have a CURE - Halldór only sit´s on the sofa and say´s Doctor´s are only steeling your money and then talking about the thing that COULD BE WRONGE WITH YOU - THEY "never" know what is wrong! :NO REALLY-) -
...ON my opinion Doctors are very clever people - you just do not know wich kind off profession you are looking for when you go ahead and pick one - if your homedoctor doesn´t know ... and that can make you wonder around MANY before you find the correct one ... and THEN YOU ARE IN GOOD CHANGE off getting a CURE!

Þið ættuð að sjá allan græna gróðurinn sem er úti í garði og allt í kring - Þegar að snjóinn tók upp og jörðin kom í ljós undan vatni þá bara LIFNAÐI JÖRÐIN VIÐ og ... það er eins og VORIÐ SÉ KOMIÐ - það er svo grænt úti!
Og ég sver það að í fyrra dag voru álfahjónin okkar komin heim ... þau alla vega flugu yfir vatnið og lentu svo í túnunum vestur frá - eins og þau gera á hverju vori! -
You should see all the green gras wich is around our house now ... - When the snow suddenly went away in a hurry - leaving all the water wich has been covering the ground till today - then the gras was just green under it - Like it was already spring outside and ... Then I swear that I saw the Swan - cupple that always stay at Lágafelli - flying home again after winter - two days ago - at least they came flying over the water and then sat down in our gras fields like OUR SWAN´s do when they come home every spring!

Vakri - Skjóni er kominn heim úr tamningunni hjá Sæla - ... En hinir hestarnir fengu að vera áfram hjá kauða - Honum líst best á þá sem hann er með - til sölu -... og ... já VakriSkjóni svo sem var ekkert slæmur - og hann var aldrei til sölu en bændur eins og Sæli bara þurfa að einbeita sér að því sem þeir eru að gera!
Vakri Skjoni is already at home after being with Sæli for training ... the Other horses are still at his place -
Sæli thinks the horses that he has there with him - are all very good for selling ... - Well - Vakri Skjoni was not bad - but he was never for sale ... and when you are a farmer like Sæli - you need to be able to consintrait on your real work!

Ég þekki strák sem stal í búðinni í dag -...
En mamman fór með hann strax inn í búðina aftur þegar upp komst um stuldinn en ... það vildi svo heppilega til í þessu ferli öllu að það eru myndavélar í búðinni og Mamman hafði sagt stráknum frá þeim og svo frá því að þegar þjófnaður sæist á myndavélunum ... þá kæmi Lögreglan alltaf strax á vettvang og athugaði með GLÆPINN -
Og löggan var sem betur fer í búðinni að kaupa sér í nesti í bílinn þegar komið var til baka í búðina til að biðjast afsökunar - og strákurinn varð rosalega hræddur - Baðst afsökunar og lofar að gera þetta aldrei aftur ... Og mamman er sátt við niðurstöðuna fyrst að hlutirnir þurftu endilega að fara á þennan veg... -
KENNIÐ BÖRNUM YKKAR AÐ VIRÐA EIGUR ANNARRA og SKILA ÞVÍ SEM ÞAU EKKI EIGA - þó þeim finnist það sem þau finna liggja á glámbekk - eða sé ekki á réttum stað í búðinni - eins og tilfellið var í dag ...
Það gefur þér enginn rétt til að stinga á þig því sem liggur við fætur þér þegar þú gengur eftir vegi - Bein braut er aðeins bein ef allir þekkja leikreglurnar og foreldrum ber að aðstoða börnin við að skilja leikreglur lífsins! -

Sem kemur mér til að tala um vináttu - 
Ég á rosalega góða vini - Reyni eftir fremsta megni að vera góður vinur á móti - 
En ... ég vil endilega "leiðrétta" leiðan misskilning sem mér finnst ég upplifa þessa stundina með ákveðna vinkonu mína -
 sem ég veit að les reglulega yfir skrif mín hér á blogginu ... ÉG er ekki bara svona TUSKA sem hægt er að krækja í þegar á þarf að halda og svo bara hengd á snaga þar til mín er þörf á nýjan leik -  ÞAÐ ER EKKI VINÁTTA! 
"Þetta kalla ég frekar - tilætlunarsemi - og - mikilmennskubrjálæði - Kannski svolítið;
 MITT ER ÞITT OG ÞITT ER MITT EN ÞEGAR ÞITT ER BÚIÐ ÞÁ ER MITT MITT!

Verð að fara að sofa - það er komið langt fram yfir heilsusamlegan fótaferðatíma!
¨Kveðjur frá Lágafelli -
Sæunn

Wich brings me to friendship -
I have very good friends - Try as hard as I can to be one back -
BUT... I would like to "correct" things wich I feel like I am exsperiancing at the moment with sertain friend off mine -
one that I know reads over my blogg every once in a while - I AM NOT JUST SUCH A CATCH - wich is waiting to be cought when need but then between visits sit and wait till I am needed again - THAT IS NOT A FRIENDSHIP TO ME!
"I RATHER CALL IT ;
MINE IS YOURS - AND YOURS IS MINE - BUT WHEN YOURS IS FINISHED THEN MINE IS MINE!

Have to go now ... it is already past bedtime -... 
Greetings from Lágafelli 
Sæunn
 







15.02.2008 18:24

Hæ hæ! Föstudagur, og það er vor í lofti!

Hæ hæ! It is friday and it is smelling like spring outside!

Hvað er að frétta?
What ´s the new´s?

Ég skrifaði inn á 123. grein á síðasta sunnudag sem ég tók eftir að hefði ekki birst ykkur á vefnum og er nú orðinn viku gamall en ég hakaði við birtingu og núna er það ykkar að skilja mig VIKU EFTIR AÐ GREININ ER SKRIFUÐ!
I wrote to 123 a blogg on last sunday - but then I noticed today that it was not on an open blogg - so it is open now but week old - for I have opened it ... and YOU JUST HAVE TO REMEMBER A WEEK BACK IN TIME!

Hér eru tvær merar komnar á járn - Alfa - reiðskólahross - og Mósa - en ég ætla að æfa tæknina á henni -
Ég er reyndar alveg svakaleg í mjöðmunum núna og mér gengur rosalega illa að komast á bak - en...

10.02.2008 19:38

Enn er spáð versnandi veðri - there is again new´s off a new storm arriving

Hæ hæ -
Við erum enn lifandi eftir þessa miklu storma sem hafa farið yfir landið að undanförnu -
Það eru nú meiri lætin þetta!
Hér fauk ekkert sem ekki mátti fjúka - veggurinn á kofanum sem átti að rífa næsta sumar fór og skemmdi sem betur fer ekki neitt - En ... annað í okkar eigu er á sínum stað -
Hinsvegar ýttist hestakerran frá Búnaðarfélaginu eftir hlaðinu og inn í snjóskafl ca 70-80 m vegalengd - og sem betur fer fór hún ekki yfir um - og valt - því þar sem hún fór út af og inn í skaflinn er töluvert bratt fram ... - og svo stóð hún þarna með langhliðina upp í veðrið - ... sem hefði alveg leikandi getað svift henni um koll ... en... sem betur fer gerðist það nú ekki!
We surrvived thouse horrible stormy nights - thouse were terrible hurricanes!
But nothing blew away that couldn´t go ... the wall in our young cattle house - (the one we are going to take down in the summer) Is already half off the house - But didn´t hurt anyone or brake anything - or blow into anything - So we are ok...
How ever was the horsetrailer on the moove - when we woke up - it had gone with the wind about 70-80 m up the road away from Lágafelli and ended in a snow-hill - ... with it´s tail to the wind - ... wich could have triped it over in the wind - but luckyly that didn´t happen!!!...


Við vorum hér í rafmagnsleysi á Föstudagskvöldinu og hlustuðum á skruggur á glugganum og fylgdumst með eldingum á himninum - Halldór rifjaði það upp þegar Bergrún lýsti því yfir að hún væri hrædd í veðrinu að hann hefði einu sinni í denn heyrt pabba sinn segja þegar hann kom inn úr fjósi - ÞAÐ ER BARA LJÓSAGANGUR ÚTI - og greyið hann Halldór misheyrði hvað gamli maðurinn sagði og lá stjarfur uppi í rúmi alla nóttina - því að pabbi hans hafði sagt að það væri DRAUGAGANGUR ÚTI! :-))) - En við kveiktum bara á kertum og sögðum sögur - og höfðum það náðugt þar til við fórum að sofa en það var samt ekki fyrr en í dag að maður náði sér almennilega niður eftir stormanætur frá því á fimmtudag!
On a friday night we sat in the livingroom with candles on becouse the electric was out and outside there were thunder´s and lightnings - makind Bergrún half crazy off fear... - and then Halldór remembered a storie since he was a boy - and his father came in from milking - saying that there was a horrible "Thunder weather outside"! - but Halldór misunderstood what he was taling about and thought - "Gosts outside" - (for Ljósagangur mean´s the lighnings in a Stormy weather - but when you talk off Gost´s in Iceland - you always say - Draugagangur  - and that is NOT NEARLY THE SAME - but ... when you are a child you can eacilly misunderstand! ???
We told storie´s like this all evening and then we went to bed early - ... But how ever it took till later we could really rest! ...

Nína bar í látunum í gær - NAUTKÁLFI - ;-))) Þetta fer að verða þreytandi - við önsum þessu ekki! ... (hvernig var þetta annars í laginu!???) -  Jón og Jórunn verða sennilega bara ríkari en þau héldu!???
There was another Bull calf born yesterday -... from Nína ... and this is getting to be really boring ... it is not funny anymore!
But Jón and Jórunn should get rich... at least more ritch then they thought to get....hahahahah...

Krakkarnir fóru til ömmu sinnar og afa í gær - í næturheimssókn og ég til Svandísar vinkonu minnar - sem var heima á Hellu og leit dásamlega út - Falleg kona þar á ferð - fyrir þá sem ekki vita hver hún er... og gæða sál! -
Maður er bara endurnærður að fá að vera með henni nokkrar mínútur! Takk fyrir kaffið mín kæra!
The kids when to their grandmum and dad yesterday... for a night visit ... and I went to my dear friend Svandís - for a visit - she is wonderfull... Beautyfull lady there... - for thouse who do not know who she is - we grew up together in Vestmanneyjar when we were kid´s - and she is one off thouse in my childhood teenage best friends group - and for she has just mooved to Hella - we get to meet each other every once in a while ... - When I had been with her for few moment´s I was really happy and relaxed... - Thanks for the coffee darling! ;-)))

Það gengur mikið á í hrossasölu núna - og allir að biðja Heike og Georg um að útvega hross en... ég er svo vonsvikin á þessarri blessuðu ríkisstjórn og þessum ráðamönnum í bændastéttinni að ég er að hugsa um að leggja niður allan búskap sem ekki ber af sér HÁMARKS TEKJUR okkur til handa - á næsta ári - ÞAR MEÐ TALIÐ HROSSIN! - (örugglega allar kindurnar - enda ekkert nema auka vinna að hafa svona fáar!)
Hélt að staðan yrði ekki svona á grundvelli búskapar - ... fannst eins og það yrði gripið í taumana áður en áburðarverð, olíuverð og plastverð - myndi fara úr böndunum og núna þegar ég heyri að það á að KAUPA UPP KVÓTAN -
Ísland eigi að verða FYRSTA LANDIÐ til að starfa við kvótalausan landbúnað - þá finnst mér öryggi mínu sem bónda verulega ógnað - (ég er búin að steypa mér í skuldir við að kaupa jörð og kvóta undan farin ár og það er eins gott að ríkið ætli þá að KAUPA AF MÉR KVÓTAN Á KOSTNAÐARVERÐI og tryggja að afurðir mínar geti á boðlegu verði fyrir mig sem ræktanda - komist í hendur ykkar sem neytenda - og þó þannig að ykkar budda líði ekki fyrir!)
Finnst pólítík á Íslandi í alvörunni komin á villigötur - Ég segi eins og Halldór minn - við vorum hreinlega betur sett undir valdi Dana en í þessum ólýðræðislega dansi sem dansaður hefur verið ríkisstjórnum landsins frá fyrstu tímum Lýðræðis! -
Það er því miður ekkert lýðræði hér á landi - ... Það er þá mjög kommónískt og einræðislegt! -
Meira að segja innan sjálfsstæðisflokksins er ekkert lýðræði! - :-((( Bara mafía! - Nokkrir strákar sem allir sátu á sama bekk í menntaskóla hér í denn - sem eru að leika sér með tíma okkar! - .... (og sér í hag!)
Huh... - Best að hugsa ekkert um þessi mál - maður verður bara að læra að fljóta og passa sig að sökkva ekki skútunni! -
We have suddenly a lot going on with horses now ... - Everyone is asking Georg and Heike to get them horses from Iceland ... - But  I have to say that I am so terrible dissapointed by this Goverment that we have - and people that should be taking care off farmer´s intressed ... hat I think I have to cut down every single thing that could make our income worse -
So ... next year I have to start cutting down more off the mare´s to make the foals less to make the profit off Lágafelli more AND STOP TAKING HORSES FOR OTHER´S TO KEEP - it is tooooo exspensive ...
The prise for a foal in next year can never be less then 70.000 isl/kr and the prise for keeping the horses at Lágafelli during one year - can never be less then 60.000 isl/kr - if the govermental-farmer´s-status doesn´t get any better! :-(((
And now they are already before they change the tax; % - or the prise off plastic, oil and kraftfood - talking about how the goverment could save much money by not supporting the agriculture at all in comming future... -
And for my opinion I think they didn´t yet find out how WE the farmer´s should be able to SELL our product to the costimer´s on an open market in Europe - when the prise off everything in ICeland is so high - but the prise off our product is not allowed to get higher then "sertain" - krón. figure - made by the "official farmer´s govermental commity"!" -
I think Icelandic govermet is getting into a blind - street by their stubitity and ... I am starting to think like my Halldór has been talking about since long time a go ... That we would be better off by the Danis goverment - then trying to run an Icelandic liberty - wich is so much to the Kommunishm as this one is... or .. even run by a Single minded Dictaitor´s!
Even the liberal party in our country is not liberal any more - it is Just a Gang bang - Boy´s party off the 50´ from one off our best school´s in the Capital city - wich have had their influance in our goverment for age´s and there seem´s to be no end off where their "Mafia" hand can bring them... - I feel like played with ... by people that only take care off their best intress.!

En núna er ég að fara að keyra á móti honum pabba - Hann er lagður af stað með krakkana í áttina til mín og ég verð að flýta mér því hann keyrir alltaf í soddans loftköstum! :-))) hahahaha ... - Hvers vegna haldið þið að hann sé alltaf inni á Hrauninu??? - hahahaha .... Hann veit bara ekki betur en svo að hann starfi þarna! :-)))
Kveðja SÆunn
But now I have to start driving towards my dad - - WIch is driving the kid´s home - and I am going to meet up with him in the middle off the way ... so I have to hurry for he always drive´s like he is running the formula! :-))) hahahah
Why do you think he is always in prison...??? hahahaha... We jus tell him that he works there .! :-))) hahaha
Kveðja
Sæunn




08.02.2008 14:19

Listi yfir söluhross á Lágafelli - List off salehorses from Lágafelli

Year 2001 - frá árinu 2001 -

Atlas frá Lágafelli - undan Fálu frá Lágafelli og Díl frá Dísarstöðum -
Fála er undan Skrögg frá Lágafelli og Díll undan Ófeigi frá Flugumýri -
Mikið taminn bleikálótt skjóttur geldingur- sem hefur verið í tamningu hjá Ársæli í Fróðholti í vetur -
Fallegur litur - þægur - stór - 4 gangur -
Two coloured - white dun -gelding - wich has been in training with Ársæll Jónsson owner off Sær from Bakkakoti - this winter -
Nice colour - very eacy character - Big and stronge - 4 open gait´s -
SELDUR/SOLD

Year 2003 - frá árinu 2003

Harrý frá Lágafelli - undan Glaum frá Svanavatni og Anganóru frá Lágafelli -
Anganóra er undan Skrögg frá Lágafelli - Glaumur er undan .... (uppl koma síðar)
Harrý er jarpur blesóttur - RISASTÓR - geldingur - með 4 gangtegundir -
Lítið taminn - en fær með hnakk og beisli - og þægur í umgengni - (var svolítið hvumpinn í byrjun tamningar!)
Harri is red dun with blesa - HUGE - gelding - with 4 gait´s -
Has not been trained much - but can walk with saddle and have brislet - is calming down (but in beginning off the training he was VERY JUMPY!) -
HARRÝ IS FOR SALE AT 150.000 isl/kr -

year 2004
Dys frá Lágafelli - undan - Feng frá Lágafelli og Hrímu frá Lágafelli - FYLFULL - ÓTAMIN - FYLFULL VIÐ FRÓÐA FRÁ FRÓÐHOLTI -
Fengur er undan Sviðari frá Heinabergi og Hríma undan..... (uppl síðar)
Dys er fædd rauðblesótt en varð grá - og er næstum hvít -
Hún er háfætt og reist að sjá en ótamin og svolítið viðkvæm sál - þó hún sé forvitin og áhugasöm um fólk -
Henni var haldið í sumar við ... (uppl síðar)
Dys was born red with white bleza - but turned gray - is now almost white -
She has very high leg´s - and is very elegant in movement´s - she is untrained - and little big jumpy but very intressted in people and very curious -
She has been with a stallion this summer ... (more info later)

Fannhvít frá Lágafelli - undan Prins frá Miðdal og Öðuskel frá Lágafelli -
Prins er undan Gusti frá Hóli 2 - Öðuskel er undan ... (uppl síðar)
Fannhvít er eitt af þessum trippum undan Prins sem FÆDDUST HVÍT - (ofbjört)
Hún er í tamningu á S-Úlfsstöðum hjá Sigríki og þykir alveg ágætt reiðhross - Óhrekkjótt og námfús! -  GREAT FUTURE MARE FOR BREEDERS - FRÁBÆR Í RÆKTUN
Fannhvít is one off those foals wich got born in year´s when Prins from Miðdal was used as a stallion at Lágafelli - wich got born with this exstreemly white colour (unexplained - for white horses in ICELAND are never born white!)
She is in training now at S-Úlfsstaðir with Sigríkur Jónsson and is thought to be VERY GOOD - after one mounth´s training
MIKIÐ TAMIN - en þarfnast mjög  aga og mikillar skólunnar í samreið -
TIL SÖLU Á 500.000 isl/kr eða besta tilboð!
 
Pí frá Lágafelli - Undan Geysi frá Sigtúni og Ölfu frá Viðvík -
Geysir er fyrstu verðlauna graðhestur undan Gusti frá Hóli 2 - Alfa er undan Safír frá Viðvík -
Pí er traustur og geðgóður hestur- brúnn - með góð gangskil - taminn af Ólafi í Miðkoti í ca mánuð fyrir jól - en þá hafði verið átt töluvert við hann - .. Hann er á leið í tamningu upp að Efra Seli í Febrúar - TAMNINGIN Í EFRA SELI GEKK VEL ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ GANGSETJA KLÁRINN OG HANN ER TILBÚIN TIL FREKARI ÁTAKA -
Pí is from the first prise stallion Geysir frá Sigtúni wich is son off Gustur frá Hóli - Alfa is from Safír frá Viðvík -
Pí is very calm - and has exstreemly good temper- brown/black - very good gait´s - was trained by Ólafur from Miðkoti about one mounth before christmas - but before that we had given him a lot off lesson´s - He is now going for training to EfraSel sometimes in Febrúar! - HE IS NOW VERY MUCH TRAINED AND IS READY FOR FUTHER TRAINING - costs not under 500.000 isl/kr -

Punktur frá Lágafelli - Undan Kiljan frá Bólsstað og Pöndru frá Lágafelli - ótaminn -
Pandra er undan... (uppl síðar)
Bleikálóttur geldingur - 4 gangtegundir - mjög áhugasamur um fólk og spaklátur -
Dun gelding - 4 gait´s - very intressted in people - calm -
For sale at 90.000 islkr as he stands today -

Rúbín frá Lágafelli - Undan Feng frá Lágafelli og Glóð frá Baugsstöðum - mánaðar taminn -
Fengur er undan Sviðari frá Heinabergi en ekkert er vitað um ættir Glóðar - en hún er tamin og mjög gott reiðhross -
Sótrauður faxprúður geldingur - Fljótur að læra og þolinmóður að eðlisfari en var frekar hvumpinn í upphafi tamningar -
Dark red gelding with much main and tail - quick to learn and patient by nature - but was rather unstabil in beginning off his training - (got to be very calm)
SELDUR/SOLD

Year 2005 - frá árinu 2005

Skær frá Lágafelli - undan Svölu frá Lágafelli og Prins frá Miðdal -
Svala er undan...(uppl síðar)
Skær er í eigu konu í þýskalandi sem vill ólm selja hann og ég tengi þann sem hefur áhuga beint við viðkomandi -
Hann er staðsettur á Lágafelli
Skær belongs to a woman in Germany - wich would like to sell him - and I will connect those intressted to her if needed!
He is placed at the moment here at Lágafelli
for sale at 90.000 islkr as he stands today -

Year 2006 - frá árinu 2006

Skrúður frá Lágafelli - Undan Sesar frá Reykjavík og Angatýru frá Lágafelli -
Sesar er undan ... (uppl síðar) og Angatýra undan Skrögg frá Lágafelli
Skrúður er rauður - fallega blesóttur með mjög mikið og glófext fax - góðar 5 gangtegundir - notar brokk mest -
Skrúður er spakur og sérstaklega fallegur geldingur -
Skrúður is a red gelding with bleza and very much golden main and tail - and 5 clear gaits though he uses brokk/trott mostly -  He is calm and very nice horse to look at ... ELEGANT!  For sale at 90.000 islkr as he stands today -

Year 2007 - frá árinu 2007

Íó frá Lágafelli - undan Pí frá Lágafelli og Hít frá Lágafelli
Pí er undan Geysi frá Sigtúni og Hít undan Díl frá Dísarstöðum
Íó er bleikálóttur sokkóttur með hvíta rák á bóg - Hann er spaklátur og sýnir 4 gangtegundir -
Íó is dun with 4 white sock´s and white spot on a sholderblade - He is calm and show´s 4 gait´s  for sale at 100.000 isl/kr as he stands today -


These are all the horses I have for sale right now -
Þetta eru öll söluhrossin á Sölulistanum að þessu sinni -

For sure all horses are for sale for the right prise - BEST OFFER! -
Að sjálfssögðu er allt fallt fyrir rétt verð - ÓSKA ÞÁ EFTIR GÓÐU BOÐI -

Er enn ekki búin að ganga frá þessari grein á blogginu en það verður unnið í þessum texta fljótlega -
Have still not finished with this blogg- the text will be fixed as soon as possible -

Thanks/TAKK
Sæunn












07.02.2008 16:16

Freysteinn sonur Halldórs á Lágafelli

Það var árshátíð í Hvolskóla í vikunni 05.02.08 - þar sem krakkarnir á miðstigi héldu skemmtun fyrir fjölskyldur og velunnara -
Við Halldór fórum þar sem Freysteinn okkar var að spila í skólahljómsveitinni - sem spilaði undir í nokkrum atriðum!
(gítarleikari)

Þetta var hálfgerður Sirkus og allir höfðu gaman af -
Sérstaklega krakkarnir!

Vona að þið skemmtið ykkur líka - http://www.123.is/album/display.aspx?fn=lagafellbugardurfarmoghestarhorsespferd&aid=696947707

Hér finnið þið myndirnar -

og hér finnið þið Videoin - get ekki tengt það við en það eru tvö nafnlaus video inni!

Here you will find photos off Freysteinn - playing gitar - og the anivers. festival in Hvolskóli - 05.02.08 -
This was made like kind off Sirkus and everyone enjoyed themselfs really much - Exspecially the kids in grate 4, 5 and 6.

Hope you enjoy these photos -http://www.123.is/album/display.aspx?fn=lagafellbugardurfarmoghestarhorsespferd&aid=696947707

There are also two video´s wich I can not hook on ... they are without a name under myndbönd

Kveðja Sæunn

p.s Það koma kálfur í dag - NAUT - hahahaha - Ég er farin að halda að Smári sæðingur snúi stráinu eitthvað öfugt þegar hann kemur sæðisdropunum sínum fyrir í Lágafells - beljunum! -  hahahaha -

p.s There came another calf today - BULL - hahahaha - I think Smári - the LOVE DOCTOR - putt´s the sperm in backward´s when he comes to inplant the sperm for the cow´s at Lágafelli - hahahaha -

P.s.s - Það er storm viðvörun um allt land og mikil ófærð á vegum - Flugfélögin eiga í stökustu vandræðum og þetta er í 5 sinn síðan um áramót sem flugið stöðvast algjörlega yfir Íslandi!
p.s.s - There is a storm over Iceland - and the road´s are all blocked - The aircompany´s are all complaining for this it the fith time since new year that the flygt´s are all stoped becouse off weather over Iceland!

Fylgist með á www.ruv.is - vefsjónvarp undir Féttir - www.vegagerdin.is - www.vedur.is or www.mbl.is - VEÐUR -
Follow all news in Iceland in www.ruv.is - at Vefsjónvarp (top off the page - News are = Fréttir) -
Road company has www.vegagerdin.is
and weatherforcast you find at www.vedur.is or www.mbl.is under VEÐUR - there you can also read the new´s!

Kveðja Sæunn

06.02.2008 18:03

HELLÓ HALLÓ - SLÁTURBÍL FRESTAÐ, NO SLOUGTERCAR TOMORROW

Sæl
Vegna veðurs hefur sláturbílnum sem átti að sækja folöld á Lágafelli á morgun - verið frestað -
Það verður reynt aftur í næstu viku -
Kannski veður réttin ekki full af snjó þá!

Helló you all
Becouse off weather the sloughtercar wich was to come tomorrow to pick up the rest off our foal - told to come next week - Hopefully then the fence where we sort them out will not be full off snow like this week!

Bestu kveðjur
Sæunn

p.s Krakkarnir voru frábær í gær á árshátíð Miðstigs í Hvolskóla - ætla að setja inn myndir um leið og ég hef tíma til!
The kids at Hvolskóli (midsection) had their anivers. yesterday and did great - will put in photos off their performance - as soon as possible

Mér gekk rosalega vel á reiðnámsskeiðinu í dag - og er ofsalega ánægð að fá svona góða tilsögn frá góðum kennara"!
I did very fine at my riding lesson today - I am so happy - it is great to have a exspearianced teacher to tell you how to do good things much better! :-)))

Verð að fara í fjósið!
Have to go milking -

Sæunn

04.02.2008 11:23

Við græðum 7 mínútur á dag We earn 7 mín. extra a day

Hæ hæ
Nú er Febrúar hafinn (MINN MÁNUÐUR!)
Og ég finn það í sálu minni hve létt mér er!
Það er bara gaman að upplifa það með jörðinni og náttúrunni hvernig SÓLIN og birtan læðist inn!
Þó að enn sé vetur úti og skít kalt - þá er BIRTAN 7 mínútum lengri á HVERJUM DEGI - og er það
vel í svona vetri eins og búinn er að vera!
Now febrúar has started (my Febrúar)
And I feel it in my soul how delighted I am!
It is ONLY fun to feel it with the earth and the nature how the SUN and her brightness is finding a way to shine!
Even though it is still a horrible cold winter outside - then you know it - for every day now we get 7 mín longer DAYtime -
and in this kind off winter you just need to have more brightness!

Við erum búin að vera ótrúlega dugleg - alla daga núna í langan tíma!
Og við erum líka að verða orkulaus - sem betur fer fer að styttast í fyrsta hjálparmanninn - (konuna:-)))
Hér er nefnilega burður í gangi - 3 kýr að bera núna fyrstu viku Febrúar - og svo verður runa af nýjum kúm í Mars - (allar kvígurnar sem við tókum inn á haustmánuðum og létum sæða :-) -
Fyrsti Feb kálfurinn er fæddur - nema hvað - NAUT - það 17 í röðinni! - Og Bylgja var ekki með tvo kálfa eins og ég hélt allan tímann - nei - bara með ROSA BOLA!
Mjólkin eykst og eykst og við erum farin að þurfa að nota extra tankinn þegar 3ja daga mjólkin fer!

Ég var að horfa á mynd með krökkunum í sjónvarpinu um daginn - sem minnti mig á það að ég tilheyrði einu sinni svona Stúlkna-vinkonu hópi - en ég verð að viðurkenna að samband mitt við þessar "vinkonur mínar" er nánast ekki neitt -
Það dó að einhverju leiti þegar ég fór fyrst upp á land (eins og Eyjamenn segja)  - þegar tími var kominn til að læra til stúdents og ég held það hafi endanlega dáið þegar ég komst í búskap!
Því miður - því það var mjög gaman að vaxa upp í þéttum hópi vinkvenna sem brallaði eitt og annað í barnæsku, á unglingsárunum og eftir að við urðum fullorðnar var djammið á okkur enn nú meira!
En núna erum við flestar orðnar svo ráðsettar og fínar með okkur að við þekkjumst ekki nema á jólakortum!
Svona er nú það!
I was watching the TV - with my children - few days ago - wich reminded me on my early years off being in a huge gang off girls wich did everything together - but I have to admit that that relationship didn´t last forever like planed - for today our comunication´s is harldy none - This friendship started to die when I went from Vestmannaeyjar - to study for my deploma and then when I got to be a farmer - suddenly I had no "friends" anymore!
And I am truely sorry for this - It was a lot off fun growing up with a large group off girlfriends wich did everything together from childhood till grown up live - and often our fun was so great WE DO NOT TALK ABOUT IT!
But now suddenly we are all OLD - and tired housewifes wich do not know each other but only on christmascard´s sent once a year - just out off some rutine!
So that was all the friend´s for live part off our friendship!

Ég var líka að rifja það upp þegar ég horfði á þessa annars ágætu mynd - að ég hef sennilega verið svolítið sérstakt barn og unglingur! hahaha - SURPRISE!
Ég nefnilega gat farið úr því að vera skítug skotta í það að vera prinsessa - sem ekki vildi óhreinka sig - og í það að vera slorgella og allt á einum degi!
Það gekk meira að segja svo langt að Valur bróðir kom með það komment - þegar ég átti að kaupa mér GÚMMÍ STÍGVÉL fyrir sveitina - en vildi engin stígvél því það var svo hallærislegt! AÐ ÉG GÆTI ÞÁ BARA FARIÐ Í SVONA SKÓM Í FJÓSIÐ; Og þarna stóð hann þessi PÚKI og hélt á gylltum og háhæluðum bandaskóm ÆTLUÐUM FYRIR DANSARA í klassískum dönsum! Og enn í dag HEF ÉG EKKI FYRIRGEFIРHONUM HÆÐNINA!¨URRRR! :-))))
Það fóru náttúrulega allir í búðinni að hlægja að þessum heimskulega brandara hans!
I was also remembering when I was watching that nice film - how special I have been when I was a kid and a teenager!
SURPRISE!!!
I have always been such a "crowling in the ground baby" - always dirty - but then suddenly there came time´s where I was a prinsess who didn´t want to whear just anything and for sure NOT DIRTY - and then suddenly in a day - I was working in the fishery in the middle off the section where the inside is out off the fish - and your hole body gets coverd with slimy, bloody fish-gutter! - 
I even went on the perioud where it was NOT COOL to where boots - so I refused to buy boot´s to whear when I was working at my grandparent´s place - 
And ofcourse my NICE LITTLE BROTHER made a comment - about it - by telling my mum to buy those nice little golden, dance highheal shue´s - wich I could whear whyle milking the cow´s and then just walk into a water to cleen my tose!
TODAY I STILL HATE HIM FOR THAT COMMENT - for everyone in the store was loughing off his stubit joke! :-((( hahaha

Ég rifjaði líka upp með ömmu minni - þegar ég eyddi páskunum á Ketilsstöðum  - þegar ég átti afmæli - 16 mars fyrir fjölda mörgum árum síðan - Vegna þess að ömmu finnst eins og það hljóti að vera eitthvern maðkur í mysunni vegna þess að bolludagur, sprengidagur og öskudagur eru svona snemma í ár! -
I also remembered talking to my grandmother that once I spent easter´s at Ketilsstaðir when I had birthday 16 mars - many years ago - But we were talking about how the year changes the days wich are important - like now today, tomorrow and on wedn.day we have days we call bolludagur (when you eat baked "egg-muffince" with creem) - Sprengidagur (when you have to eat till your stomage exsplot´s (saltmead and yellowbean soup) and then öskudagur (sertain trick and treat day we have in Iceland) - and thouse days are exspecially early this year!

Amma rifjaði það líka upp þegar ég var 4 ára gömul og sagðist heita - allt örðu nafni en mínu og vera frá bæ handan fjarðar - og ...bla bla bla - .... En þegar fólk fór að kanna þessa sögu mína kom í ljós að ég hafði sennilega ekkert verið að skálda - þessi kona var til og var látin EN HVORT HÚN VAR AÐ TALA Í GENGUM MIG - veit ég ekki en ég veit að ég hef aldrei verið ein í þessari tilveru - ÞAÐ ER ALLTAF FÓLK SEM FYLGIR MÉR!
En það eru bara góðir andar og ég er sátt við að vera sú sem ég er!
My grandmum - remembered that when I was about 4 years old then suddenly out off the blue I told everyone I was a lady by sertain name - .... from a farm at a sertain place and...talking..... talking .... - But then when people started to wonder why I said this - the truth was there was a storie about this woman - living exsactly where I told but she had passed away - so EVERYONE THINK SHE WAS TALKING TROUGH ME - and I do not know if that is true - I only know I have never been alone in this worl - THERE IS ALWAYS PEOPLE AROUND ME! But thouse spirit´s are all kind and I am very gratefull to be who I am!

Núna ætla ég að fara að haska mér -...,
Mig dreymir um að komast í skot túr út á Selfoss í dag - ... eftir að gefa öllu hér og sinna sæðingnum - en ein af uppáhalds gripunum mínum er að beiða í dag og ég verð náttúrulega að vera heima til að segja til! :-)))
I have to get going ...
I am dreaming off Selfosstrip today -....but we have not yet went out to feed every animal and then there is a spermdoctor comming for one off the cow (LOVE DOCTOR) - one off my favorit cattle is dreaming off sex at the moment and I have to be at home to make sure only the best sperm is used for her! :-)))

Sjáumst á blogginu
Sæunn

 
  • 1
clockhere
Flettingar í dag: 56
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 142
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 217814
Samtals gestir: 28337
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 10:21:28